FBI birtir myndir af grímuklæddum manni við heimili Guthrie Lovísa Arnardóttir skrifar 10. febrúar 2026 18:47 Eins og má sjá er maðurinn grímuklæddur. Bandaríska alríkislögreglan birti myndir af manninum í dag. FBI Bandaríska alríkislögreglan (FBI) hefur birt myndir af grímuklæddum einstaklingi í tengslum við leit þeirra að móður fréttaþulunnar Savannah Guthrie. Í tilkynningu með myndunum kemur fram að yfirvöld reyni nú að bera kennsl á einstaklinginn, sem þau segja hafa verið vopnaðan.
Átta dagar eru síðan hin 84 ára gamla Nancy Guthrie hvarf af heimili sínu í Tucson í Arizona. Yfirvöld telja að henni hafi verið rænt. „Í morgun tókst lögreglu að endurheimta þessar áður óaðgengilegu myndir sem sýna vopnaðan einstakling sem virðist hafa átt við myndavélina við útidyr Nancy Guthrie morguninn sem hún hvarf,“ sagði Kash Patel, forstjóri FBI, í yfirlýsingu á samfélagsmiðlinum X. New images in the search for Nancy Guthrie: Over the last eight days, the FBI and Pima County Sheriff’s Department have been working closely with our private sector partners to continue to recover any images or video footage from Nancy Guthrie’s home that may have been lost,… pic.twitter.com/z5WLgPtZpT— FBI Director Kash Patel (@FBIDirectorKash) February 10, 2026 Hann sagði að yfirvöld hefðu unnið að því að endurheimta myndir úr eftirlitskerfi heimilisins sem „gætu hafa tapast, skemmst eða verið óaðgengilegar af ýmsum ástæðum – þar á meðal vegna þess að upptökutæki voru fjarlægð“. Talið er að maðurinn hafi átt við myndavélina við dyr Guthrie. FBI Mikið hefur verið fjallað um málið í erlendum miðlum síðustu daga. Savannah Guthrie sagði í gær að fjölskylda hennar teldi móður sína enn vera á lífi og ítrekaði ósk sína til allra þeirra sem gætu haft upplýsingar um hvarf hennar. Fram kom í fréttum í gær að lögreglunni hefði ekki tekist að bera kennsl á neina grunaða eða ökutæki í tengslum við Guthrie. FBI hefur heitið 50.000 dollurum í verðlaunafé fyrir allar upplýsingar. Það samsvarar um sex milljónum íslenskra króna.
Bandaríkin Erlend sakamál Mest lesið Lést eftir alvarlegt slys á Gæsavatnaleið Innlent Biður Jón afsökunar Innlent Móðir ósátt við að bara aprílbörn fái ekki RS-bóluefni Innlent „Ég elska Obbu“ Innlent „Vitum ekki hvaða skrímsli er verið að skapa“ Innlent Landtökumenn réðust á evrópska erindreka Erlent Þorgerður Katrín í ítarlegu viðtali Innlent Hörð átök lögreglu og mótmælenda í París Erlent Gaus úr úðarakerfi í Mjóddinni Innlent Vara við „perragleraugum“ Innlent Fleiri fréttir Hörð átök lögreglu og mótmælenda í París Barn og fullorðinn létu lífið þegar bíl var ekið inn á knattspyrnuvöll Landtökumenn réðust á evrópska erindreka Lögreglan skarst í leikinn á mótmælum í Kaupmannahöfn Setti málningu í matinn og eitraði fyrir hundruðum barna Mótmælendur réðust inn í ráðhúsið í Marseille Alvarlega slösuð eftir skotárás í íþróttahúsi Frestar gildistöku refsiaðgerða gegn Rússlandi Faðir tveggja nemenda í skólanum sá sem skaut árásarmanninn Varaði við nýju Rússlandi Pútíns Ástvinir þeirra sem létust í flugslysinu bíða enn Talsmaður Trumps rekinn eftir brösuglega byrjun Deilt um sönnunargögn og mögulegan vitorðsmann Norðmaður í tuttugu ára fangelsi í Bretlandi vegna leigumorðs Landtökumenn börðu og rændu ljósmyndara Washington Post „Atkvæði gegn Kanada er hættuleg blekking“ Rýnt í stöðuna í Úkraínu: Trump hleypir öllu í bál og brand, aftur Árásarmaðurinn sextán ára Skipun um að hægja á Starshield hafi komið úr Hvíta húsinu Minnst fjórir féllu í skotáras í Oregon Lést í stormi í Færeyjum Hættir við að skjóta Hasan í beinni Biðja viðskiptavini að vera á varðbergi Andersson hafnað í sænska þinginu Hófu aftur árásir á olíuvinnslur í Rússlandi Eldur í ráðuneyti og banka í óeirðum í Tirana Tuttugu og sjö nemendur látnir eftir að þak skóla hrundi „Þessi ákvörðun mun kosta mörg mannslíf“ Bækur Rooney teknar úr sölu í Bretlandi Umsátur opinberar skuggastríð málaliða Sjá meira