Hækka lánshæfiseinkunn Íslands í ljósi bættrar stöðu ríkisfjármála Eiður Þór Árnason skrifar 6. febrúar 2026 22:43 Fjármála- og efnahagsráðuneytið. Vísir Matsfyrirtækið Fitch Ratings hækkaði í dag lánshæfiseinkunn Íslands úr A í A+ með stöðugum horfum. Uppfærslan er sögð endurspegla bætta stöðu ríkisfjármála og spá um samdrátt í skuldum ríkissjóðs sem byggi á þeirri áherslu stjórnvalda að færa sig í átt að auknu jafnvægi í ríkisfjárlögum.
Þá hefur fyrirtækið afturkallað áframhaldandi mat á lánshæfiseinkunn ríkissjóðs. Þetta kemur fram í tilkynningum frá matsfyrirtækinu og fjármála- og efnahagsráðuneytinu. Mat Fitch sýni að fjárlagahallinn hafi lækkað úr 8,8 prósentum af vergri landsframleiðslu árið 2020 í 1,3 prósent árið 2025. Fyrirtækið á von á því að það dragi enn frekar úr halla á árunum 2026 til 2027 vegna þjóðhagslegu stöðugleikareglunnar sem takmarki raunvöxt útgjalda, samþykktra tekjuráðstafana og víðtækrar pólitískrar samstöðu um að ná hallalausum fjárlögum árið 2027. Ríkisskuldir haldi áfram að lækka „Lánshæfiseinkunn Íslands og mat á stöðugum horfum byggist á auðugu hagkerfi, traustum stjórnarháttum, sterkum stofnunum og sterkum efnahagsreikningum einkageirans. Á móti þessum styrkleikum vegur smæð hagkerfisins og hversu berskjaldað það er fyrir áföllum í stökum atvinnugreinum,“ segir í tilkynningu Fitch. Hlutfall ríkisskulda af vergri landsframleiðslu lækkaði úr 60,4 prósentum í 50,4 prósent milli áranna 2024 og 2025, samkvæmt mati Fitch, en hlutfallið var hæst 76,1 prósent árið 2020. Fitch gerir ráð fyrir því að hlutfallið lækki í 45,9 prósent árið 2027. Fitch gerir einnig grein fyrir verðbólguáskorunum sem hafi áhrif á íslenskt hagkerfi en spáir 1,5 prósenta hagvexti á Íslandi árið 2026. Fréttin hefur verið uppfærð.
Efnahagsmál Mest lesið Breytingar við Leifsstöð: Renna komumegin líka og gjaldfrjáls hálftími Viðskipti innlent Arion banki hækkar gjöld Neytendur Ríkið ekki lengur ábyrgt fyrir neinum skuldum Landsvirkjunar Viðskipti innlent Styrkja fjarskiptakerfið fyrir almyrkvann Neytendur Ekki syrgja sumarfríið (of snemma!) Atvinnulíf Drægnitölurnar komu út í plús Samstarf Vill tvöfalda umsvif Samkeppniseftirlitsins Viðskipti innlent Sviptingar í stjórn Amaroq Viðskipti innlent Selur eftir þrjátíu og fimm ára rekstur Viðskipti innlent TikTok næst eftir sektir á Google og AliExpress Viðskipti erlent Fleiri fréttir Breytingar við Leifsstöð: Renna komumegin líka og gjaldfrjáls hálftími Ríkið ekki lengur ábyrgt fyrir neinum skuldum Landsvirkjunar Laun hækka umfram verðbólgu Starbucks kemur í stað Kaffitárs „Nú verða allir að líta í eigin barm“ Verðbólga eykst enn Aðeins 50 hafa nýtt sér meðeignarúrræðið: „Þetta eru fimmtíu sem hafa komist í eigið húsnæði“ Kaupverð undir 80 milljónum í 60 prósent kaupsamninga Selur eftir þrjátíu og fimm ára rekstur Vill tvöfalda umsvif Samkeppniseftirlitsins Atvinnuleysi fimm prósent í júní Sviptingar í stjórn Amaroq Félag Höllu fær fimmtíu milljónir í arð Icelandair tapaði fjórum milljörðum en samt með mettekjur Crowberry fjárfestir í Jónsbók Fengið 375 milljónir endurgreiddar vegna Trump-tolla Áfram lækkar íbúðaverð að raunvirði Fleiri færðu lögheimili í ár Fjögurra milljarða hagnaður hjá Emblu Medical Fannar stofnar ráðgjafafyrirtæki Greenfish og samtök evrópskra útgerða kortleggja hrossamakríl Áhrifavaldur losar sig við steinefni „Nauðsynlegt að fá varanlega lausn“ Ekki króna í þrotabúi Lucky records „Þessi framlenging var ekki sjálfgefin“ ESB framlengir sérlausn Íslands vegna losunarheimilda Daníel Þór frá Kviku til Reita Húsnæðislán séu síðasta vígið en það muni falla Valgeir Örn af skjánum til Landsnets Þrjú ný í eigendahópinn á BBA//Fjeldco Sjá meira