Tóku enn eitt skipið Samúel Karl Ólason skrifar 15. janúar 2026 14:05 Bandarískir landgönguliðar um borð í olíuflutningaskipinu Veronica í morgun. Southcom Bandarískir landgönguliðar og sjóliðar í Strandgæslu Bandaríkjanna gerðu í morgun áhlaup um borð í olíuflutningaskip. Þetta er í sjötta skipti sem vitað er til þess að Bandaríkjamenn taki yfir stjórn olíuflutningaskips sem bendlað hefur verið við Venesúela.
Bandaríkjamenn hafa sett Venesúela í herkví og vilja nota hana til að stýra olíusölu ríkisstjórnar landsins og þvinga þannig ríkisstjórnina til samvinnu. Maria Corina Machado, leiðtogi stjórnarandstöðunnar í Venesúela, mun fara á fund Donalds Trump, forseta Bandaríkjanna, í Hvíta húsinu í dag. Sjá einnig: Ætlar að taka við nóbelnum frá Machado Áhlaupið var gert af flugmóðurskipinu USS Gerald R. Ford, sem er á Karíbahafinu, og tóku Bandaríkjamenn stjórn á olíuflutningaskipinu Veronica. Yfirstjórn herafla Bandaríkjanna í Suður-Ameríku deildi í dag myndbandi af áhlaupinu en þar segir að eina olían sem muni yfirgefa Venesúela verði flutt þaðan með samþykki Bandaríkjamanna. Through #OpSouthernSpear, the Department of War is unwavering in its mission to crush illicit activity in the Western Hemisphere in partnership with @USCG through @DHSgov and @TheJusticeDept.In another pre-dawn action, Marines and Sailors from Joint Task Force Southern Spear,… pic.twitter.com/brxO9xXUu3— U.S. Southern Command (@Southcom) January 15, 2026 Ekki liggur fyrir hvar á umráðasvæði Southcom áhlaupið var gert. Engan mun hafa sakað. Engin olía var um borð í Veronicu þegar áhlaupið var gert. Síðast var vitað af skipinu í höfn í Venesúela þann 3. janúar. Sérfræðinagar TangerTrackers segja að skipið hafi að minnsta kosti tíu sinnum verið notað til að flytja olíu frá Íran, þvert á viðskiptaþvinganir. Skipið var eitt af sextán sem reynt var að koma gegnum herkví Bandaríkjamanna. Sjá einnig: Reyna að koma sextán skipum gegnum herkví Wall Street Journal segir að herkvíin hafi mikil áhrif á olíuiðnað Venesúela. Olíu sé nú einungis dælt um borð í skip sem flytji olíu til vinnslu í Bandaríkjunum eða annarsstaðar í Venesúela. Skipinu var siglt undir rússneska fánanum. Nafninu Veronica var breytt í Galileo í síðustu viku og var rússneski fáninn þá dreginn að húni. Skráningu þó nokkurra skipa úr skuggaflotanum hefur verið breytt að undanförnu svo þau sé skráð í Rússlandi. Markmiðið virðist vera að komast hjá því að Bandaríkjamenn geri áhlaup um borð. Umdeildur skuggafloti Skipin sem hafa verið stöðvuð tilheyra flest, ef ekki öll, svokölluðum „skuggaflota“ Rússa. Hann nota ríki eins og Rússland, Íran og Venesúela til að komast hjá refsiaðgerðum og viðskiptaþvingunum. Skuggaflotinn svokallaði er skipaður hundruðum skipa sem eru í flestum tilfellum gömul og í slæmu ástandi. Þeim er reglulega siglt án þess að þau sendi út staðsetningarupplýsingar eða sendar eru út falskar upplýsingar um staðsetningu þeirra. Sérfræðingar hafa áætlað að skuggaflotinn hafi í fyrra flutt um 3,7 milljarða tunna af olíu, sem samsvarar um sex til sjö prósentum af heildarmarkaði ársins. Uppfært: Maria Corina Machado, leiðtogi stjórnarandstöðunnar í Venesúela en ekki nýr forseti Venesúela, eins og stóð upprunalega í greininni.
Bandaríkin Venesúela Íhlutun Bandaríkjanna í Venesúela Skipaflutningar Tengdar fréttir Þingmenn sem Trump sagði heimska lúffuðu Repúblikanar í öldungadeild Bandaríkjaþings felldu í gær frumvarp sem hefði dregið úr völdum Donalds Trump, forseta, til að gera frekari árásir á Venesúela. Það er eftir að tveir þingmenn flokksins sem höfðu stutt frumvarpið lúffuðu undan þrýstingi frá Hvíta húsinu. 15. janúar 2026 09:59 Búa sig undir áhlaup um borð í skuggaskip Yfirvöld í Bretlandi eru sögð undirbúa það að senda sérsveitir um borð í olíuflutningaskip og önnur skip sem tilheyra svokölluðum „skuggaflota“ Rússa. Ráðamenn munu hafa fundið lög sem hægt sé að nota til að leggja hald á skipin, sem ríki eins og Rússland, Íran og Venesúela hafa notað til að komast hjá viðskiptaþvingunum. 13. janúar 2026 13:31 Machado heimsækir Hvíta húsið á fimmtudag Donald Trump Bandaríkjaforseti mun taka á móti venesúelska stjórnarandstöðuleiðtoganum Maríu Corinu Machado í Hvíta húsinu á fimmtudaginn. 13. janúar 2026 07:19 Trump ósáttur við orð olíuforstjórans og vill útiloka hann Donald Trump Bandaríkjaforseti „hallast að því“ að útiloka bandaríska olíufyrirtækið ExxonMobil frá starfsemi í Venesúela. Hann greindi frá þessu í gær eftir að forstjóri fyrirtækisins lýsti yfir efasemdum um arðvænleika fjárfestinga í landinu eftir að Nicolás Maduro forseta var steypt af stóli. 12. janúar 2026 16:44 Mest lesið Lést í slysi á Hálsasveitarvegi Innlent „Þetta er kannski dýrasta tækið sem barnið á“ Innlent Handtökur í vændisrannsókn lögreglu Innlent Áhöfnin hlúði að Hólmsteini á siglingunni til Hvalfjarðar Innlent Hættu skyndilega við viðræðurnar í Sviss Erlent „Virðist vera einhverskonar gamaldags sjómennskuhefndaraðgerð“ Innlent Lögreglustjóri braut meðalhófsreglu Innlent „Það verða engir konungar“ Erlent Einn vildi sýkna þegar dómur fyrir sérlega sársaukafulla nauðgun var staðfestur Innlent Ólafur Þ. Harðarson sakaður um fánaslugs Innlent Fleiri fréttir Ráðherrar krefja Starmer um afsögn Ísrael semur um vopnahlé við Hezbollah Konungur Norðursins sækir að Starmer Hættu skyndilega við viðræðurnar í Sviss Íranir segjast ætla að taka gjald af siglingum um sundið „Það verða engir konungar“ Telja dráp á rússneskum teiknara „pólitískt launmorð“ Ein stærsta drónaárásin á Rússland frá upphafi stríðsins Leghálskrabbameini nánast útrýmt í Bretlandi eftir bólusetningarátak Þetta er í samkomulagi Trumps við Írani Fuglaflensan stráfelldi kópa á suðurskautinu Trump undirritaði samkomulag við Írani Spá allt að fjörutíu stiga hita Rex Heuermann fær lífstíðardóm Eins árs gamalt barn skotið til bana af lögreglumanni Rex Heuermann leiddur fyrir dómara í dag Mette-Marit krónprinsessa fékk ný lungu í vel heppnaðri aðgerð Skopmyndateiknari skotinn til bana Rússnesk freigáta skaut varúðarskotum að skútu í Ermarsundi Rússar skipulögðu íkveikjur gegn forsætisráðherra Bretlands Segjast hafa sprengt olíuhreinsistöð nærri Moskvu Stefna á að hafa ný aðildarríki í styttri ól Öll áhöfnin talin af Samkomulag um samkomulag undirritað og klárt Erfiðir tímar fyrir norsku konungsfjölskylduna Sonur krónprinsessunnar áfrýjar dómi Hrapaði til bana eftir að kennari gleymdi að festa reipi Það sem er vitað um samkomulagið við Írani Kallaði Michelle Obama karlmann á afmælishátíð Trump Bretar banna samfélagsmiðlanotkun upp að 16 ára aldri Sjá meira
Þingmenn sem Trump sagði heimska lúffuðu Repúblikanar í öldungadeild Bandaríkjaþings felldu í gær frumvarp sem hefði dregið úr völdum Donalds Trump, forseta, til að gera frekari árásir á Venesúela. Það er eftir að tveir þingmenn flokksins sem höfðu stutt frumvarpið lúffuðu undan þrýstingi frá Hvíta húsinu. 15. janúar 2026 09:59
Búa sig undir áhlaup um borð í skuggaskip Yfirvöld í Bretlandi eru sögð undirbúa það að senda sérsveitir um borð í olíuflutningaskip og önnur skip sem tilheyra svokölluðum „skuggaflota“ Rússa. Ráðamenn munu hafa fundið lög sem hægt sé að nota til að leggja hald á skipin, sem ríki eins og Rússland, Íran og Venesúela hafa notað til að komast hjá viðskiptaþvingunum. 13. janúar 2026 13:31
Machado heimsækir Hvíta húsið á fimmtudag Donald Trump Bandaríkjaforseti mun taka á móti venesúelska stjórnarandstöðuleiðtoganum Maríu Corinu Machado í Hvíta húsinu á fimmtudaginn. 13. janúar 2026 07:19
Trump ósáttur við orð olíuforstjórans og vill útiloka hann Donald Trump Bandaríkjaforseti „hallast að því“ að útiloka bandaríska olíufyrirtækið ExxonMobil frá starfsemi í Venesúela. Hann greindi frá þessu í gær eftir að forstjóri fyrirtækisins lýsti yfir efasemdum um arðvænleika fjárfestinga í landinu eftir að Nicolás Maduro forseta var steypt af stóli. 12. janúar 2026 16:44