Stefnir í fyrstu ríkisstöðvunina í sjö ár Samúel Karl Ólason skrifar 30. september 2025 13:04 Russell Vought yfirmaður fjárlagaskrifstofu Hvíta hússins, Mike Johnson forseti fulltrúadeildarinnar, John Thun leiðtogi Repúblikana í öldungadeildinni, og JD Vance varaforseti eftir fund með leiðtogum Demókrata í Hvíta húsinu í gær. AP/Evan Vucci Ekkert virðist geta komið í veg fyrir stöðvun reksturs alríkis Bandaríkjanna í nótt. Repúblikanar og Demókratar, sem deila um fjárútlát til heilbrigðismála, keppast við að kenna hvor öðrum um en þetta verður í fyrsta sinn í sjö ár sem deilur um fjárlög leiða til að stöðvunar.
Fundur milli leiðtoga þingsins og Donalds Trump, forseta, í Hvíta húsinu í gær skilaði engum árangri. Eftir fundinn sagði Chuck Schumer, leiðtogi Demókrata í öldungadeildinni, að málið væri nú í höndum Trumps. Hann gæti komið í veg fyrir stöðvun ríkisreksturs. Eftir fundinn sagði JD Vance, varaforseti, að útlit væri fyrir að rekstur ríkisins yrði stöðvaður og kenndi hann Demókrötum um og sagði þá ekki tilbúna til að „gera hið rétta,“ samkvæmt AP fréttaveitunni. Wall Street Journal hefur eftir Vance að Demókratar séu engu skárri en gíslatökumenn. Stöðvunin mun hefjast á miðnætti vestanhafs, ef öldungadeildin samþykkir ekki fjárlagafrumvarp sem þegar hefur verið samþykkt í fulltrúadeildinni. Rekstur ríkisins var síðast stöðvaður í desember 2018 og stóð lokunin yfir í 35 daga. Rekstur varnarmálaráðuneytisins og nokkurra annarra stofnana var þó ekki stöðvaður. Síðasta allsherjarstöðvunin var 2013 en hún stóð yfir í sextán daga. Komu ekkert að frumvarpinu Ítarlega var farið yfir ástæður deilnanna í síðustu viku en í stuttu máli sagt vilja Demókratar í öldungadeildinni, þar sem Repúblikanar þurfa nokkur atkvæði frá Demókrötum, ekki samþykkja bráðabirgðafjárlagafrumvarp Repúblikana. Er það vegna þess að Repúblikanar ræddu frumvarpið ekkert við Demókrata áður en það var lagt fyrir þingið og samkvæmt því ætla Repúblikanar að láta ívilnanir varðandi heilbrigðistryggingar falla úr gildi. Demókratar vilja einnig að Repúblikanar hætti við niðurskurð til tryggingakerfis sem kallast Medicaid. Þar að auki hafa Demókratar gagnrýnt harðlega að ríkisstjórn Trumps hefur neitað að fara eftir fjárlögum þingsins í þó nokkrum tilfellum, þyki fjárútlátin ekki fylgja áherslum ríkisstjórnarinnar. Repúblikanar hafa ekkert viljað koma til móts við Demókrata og hafa þess í stað reynt að þvinga þá til að samþykkja frumvarpið með því að hóta því að reka þúsundir opinberra starfsmanna. Fara með fleipur um kröfur Demókrata Repúblikanar, sem eru með meirihluta í báðum deildum þingsins og með Donald Trump í Hvíta húsinu, hafa ítrekað haldið því fram að Demókratar beri ábyrgðina á ástandinu og það sé þeim að kenna að stöðva verði rekstur ríkisins. Þeir hafa sagt að Demókratar eigi að samþykkja frumvarpið og nota svo tímann til næstu fjárlaga til frekari viðræðna. Demókratar treysta Repúblikönum ekki og í millitíðinni myndu áðurnefndar ívilnanir renna úr gildi og farið yrði í niðurskurð í Medicaid. Leiðtogar Repúblikanaflokksins, eins og Mike Johnson forseti fulltrúadeildarinnar, Vance og margir aðrir, hafa haldið því fram að kröfur Demókrata snúist um að verja fúlgum fjár til heilbrigðisþjónustu fyrir fólk sem dvelur ólöglega í Bandaríkjunum, eins og sjá má í meðfylgjandi færslu frá opinberum X reikningi Hvíta hússins. Lookin' at you, Democrats… don’t let your love for illegal aliens hurt American citizens. pic.twitter.com/Sa5yzy7fr6— The White House (@WhiteHouse) September 30, 2025 Það er rangt. Fólk sem er ekki með dvalarleyfi í Bandaríkjunum getur ekki fengið aðgang að heilbrigðistryggingum og öðru sem fjármagnað er af alríkinu, eins og fram kemur í grein New York Times. Innflytjendur sem eru í Bandaríkjunum ólöglega geta ekki keypt tryggingar sem niðurgreiddar eru af ríkinu og hafa heldur ekki aðgang að Medicaid eða öðrum sambærilegum verkefnum ríkisins. Fjölmiðlar ytra segja að innan Repúblikanaflokksins sé nánast enginn vilji til að framlengja ívilnanirnar eða taka niðurskurð til baka. Það væri ómögulegt að fá næg atkvæði innan flokksins ef leiðtogar flokksins hefðu yfir höfuð áhuga á því. Ítrekað basl með fjárlög Repúblikanar hafa frá því þeir töku völd í þinghúsinu verið í stöðugu basli með fjárlög. Innan flokksins er fámennur en þó áhrifamikill hópur þingmanna sem hefur lengi barist fyrir umfangsmiklum niðurskurði og endurbótum þegar kemur að fjárútlátum ríkisins. Það hefur tiltölulega oft gerst að bráðabirgðafjárlög eru samþykkt skömmu fyrir stöðvun ríkisreksturs og gerðist það síðast í mars. Þá náðu Repúblikanar í fulltrúadeildinni höndum saman um bráðabirgðafrumvarp en þátt átti sér litla von í öldungadeildinni. Það er að segja þar til Schumer, leiðtogi Demókrata þar, lýsti því yfir að hann ætlaði að greiða atkvæði með frumvarpinu. Hann sagði það skárri kostinn af tveimur slæmum. Sjá einnig: Lúffar af ótta við enn meira niðurrif Trumps Þetta reiddi fjölmarga stuðningsmenn Demókrata, og aðra þingmenn, til reiði. Innan flokksins og meðal grasrótarinnar er mikill vilji til að standa í hárinu á Repúblikönum og Trump. Punchbowl News segir að Schumer hafi nú reitt fólk aftur til reiði með því að stinga upp á bráðabirgðafjárlögum til einungis viku á fundinum með Trump í gær. Þær ætlanir láku til fjölmiðla fyrir fundinn og þótti mörgum Demókrötum tillagan benda til þess að Schumer ætlaði aftur að feta eigin slóð. Svo virðist þó sem að Schumer og Hakeem Jeffries, leiðtogi Demókrata í fulltrúadeildinni, hafi ekki lagt fram þessa tillögu og þykir það benda til þess að Schumer hafi gefið hugmyndina upp á bátinn. Demókratar eru sagðir telja að Trump vilji semja en að Johnson og John Thune, leiðtogi Repúblikana í öldungadeildinni, hafi stöðvað hann. Þeir telja sig með góð spil á hendi til að koma höggi á Demókrata. Schumer og Jeffries sögðust þó á fundinum vilja semja við Trump en ekki Thune og Johnson og sögðu, samkvæmt heimildum Punchbowl, að það væri vegna þess að Trump væri besti samningamaðurinn, sem Trump samþykkti. Þykir það til marks um að Demókratar sjái tækifæri í því að reyna að reka fleyg milli Trumps annars vegar og Johnsons og Thunes hins vegar. Hvort þær vonir muni raungerast verður að koma í ljós. Hvað felur stöðvun í sér? Við hefðbundnar kringumstæður þarf tólf frumvörp til að samþykkja hefðbundin fjárlög í Bandaríkjunum. Það hefur gengið sífellt erfiðara og erfiðara á undanförnum árum. Hið hefðbundna ferli getur tekið töluverðan tíma og mikla vinnu og því hefur sífellt oftar verið gripið til þess að semja og samþykkja bráðabirgðafjárlög til skamms tíma. Slík frumvörp kallast „continuing resolution“ eða CR. Takist hvorki að samþykkja CR eða frumvörp til lengri tíma, stöðvast rekstur ríkisins. Það felur í sér að opinberar stofnanir þurfa að senda alla starfsmenn sem teljast ekki nauðsynlegir heim og opinberir starfsmenn fá ekki laun þar til áðurnefnd frumvörp hafa komist í gegnum þingið. Þetta myndi eiga við um tvær milljónir starfsmanna herafla Bandaríkjanna og rúmlega tvær milljónir annarra opinberra starfsmanna víðsvegar um Bandaríkin.
Bandaríkin Donald Trump Þingkosningar í Bandaríkjunum Mest lesið Konan sem ekið var á er látin Innlent Sæðisgjafamálið: „Við fjölskyldan vöknuðum upp við vondan draum“ Innlent Skora á Rúv að endurskoða þessa „misráðnu ákvörðun“ Innlent Opna fyrir umferð um „fyrstu hraðbraut á Íslandi“ Innlent Hellidemba í kortunum og líkur á þrumum Veður Leigubílstjóri og vinur í þriggja ára fangelsi fyrir nauðgun Innlent Strætó ekið á hjólreiðamann í Laugardal Innlent Björn Dagbjartsson er látinn Innlent Gerðu engin mistök með nafngreiningu vændiskaupanda Innlent Trampólín á flugi og vagn á hliðinni Innlent Fleiri fréttir Sagður tilbúinn að yfirgefa Venesúela með friðhelgi Hóta að koma fram við Belga eins og Ungverja „Arkitektar gervigreindar“ manneskja ársins hjá Time Fallhlífin flæktist í stélið 900 sviptir ökuleyfinu fyrir að hjóla undir áhrifum áfengis Geta fengið sex milljónir í bætur frá danska ríkinu Rýnt í stöðuna í Úkraínu: Óvinafögnuður Trumps og Pútíns Missti af afhendingunni en er komin heil á húfi til Osló Þingið ítrekar stuðning Bandaríkjanna við Evrópu Bandaríkjamenn leggja hald á olíuflutningaskip undan ströndum Venesúela Heimila nú birtingu gagna úr rannsókn á Epstein Telur það landráð að skrifa um heilsu sína Sætir líflátshótunum og nær ekki að veita friðarverðlaununum viðtöku Vilja skoða samfélagsmiðla íslenskra ferðamanna Fyrirskipa notkun Times New Roman í stað Calibri Selenskí segist reiðubúinn til að boða til kosninga Samfélagsmiðlabannið hefur tekið gildi í Ástralíu Forsetafrúin kallaði mótmælendur heimskar tíkur Blaðamannafundi aflýst og óvíst hvort Nóbelsverðlaunahafinn mæti Heimilar birtingu gagna úr rannsókn á Maxwell Hylmdu yfir með „Steikarhnífnum“ í Írska lýðveldishernum Sökuð um að drepa barnið sitt með basísku mataræði Hraunar yfir „hnignandi“ heimsálfu Efnahagsráðherra Kúbu í lífstíðarfangelsi fyrir óljósar sakir Litháar lýsa yfir neyðarástandi vegna belgja frá Belarús Þingmenn hyggjast þvinga Hegseth til upplýsingagjafar Átökin magnast á landamærum Kambódíu og Taílands Bílstjórinn meðvitundarlaus þegar rútan lenti á biðskýlinu Fjórir látnir á Tenerife eftir að alda sópaði þeim úr saltvatnslaug Afdráttarlaus stuðningur við Úkraínu og aukinn þrýstingur á Rússa Sjá meira