Skoða að endurheimta votlendi til að stöðva loftslagsbreytingar og Rússa Kjartan Kjartansson skrifar 29. ágúst 2025 13:49 Eistneskar mómýrar gætu bæði gagnast til þess að verjast innrásarher úr austri og loftslagsbreytingum af völdum manna. Vísir/Getty Yfirvöld í Eistlandi kanna nú möguleikann á að endurheimta framræstar mómýrar og slá með því tvær flugur í einu höggi. Annars vegar til þess að draga úr losun gróðurhúsalofttegunda og hins vegar til þess að efla varnir landsins gegn mögulegri innrás Rússa.
Eistland er ríkt af mólendi en stór hluti þess hefur verið ræstur fram í þágu landbúnaðar. Þegar mómýrarnar þorna byrjar mórinn að rotna og gefa frá sér mikið magn kolefnis út í andrúmsloftið. Erfiðlega hefur gengið fyrir eistnesk stjórnvöld að ráðast í endurheimt mómýranna vegna andstöðu margra heimamanna í sveitum landsins. Nokkrum endurheimtarverkefnum hefur þegar verið frestað af þessum sökum. Nú segir blaðið Politico að loftslags- og varnarmálaráðuneyti Eistlands ræði nú um hvort að endurheimt mómýra gæti nýst til þess að verjast mögulegri innrás Rússa í framtíðinni. Mýrarnir geti bæði bundið kolefni og teppt för rússneskra skriðdreka. Hugmyndin er enn sögð á frumstigi. Bæði finnsk og pólsk stjórnvöld hafa áður sagst skoða endurheimt votlendis við austurjaðar Atlantshafsbandalagsins sem bæði loftslags- og varnaraðgerð. Eystrasaltsríkin þrjú hafa einnig rætt um að nýta núverandi votlendissvæði sem hluti af sameiginlegri varnarlínu sinni. Fram að þessu hefur þó ekki komið til tals að endurheimta votlendi gagngert í þeim tilgangi.
Eistland Loftslagsmál Rússland Innrás Rússa í Úkraínu Hernaður Mest lesið Biður Jón afsökunar Innlent Lést eftir alvarlegt slys á Gæsavatnaleið Innlent „Vitum ekki hvaða skrímsli er verið að skapa“ Innlent Landtökumenn réðust á evrópska erindreka Erlent Barn og fullorðinn létu lífið þegar bíl var ekið inn á knattspyrnuvöll Erlent Vara við „perragleraugum“ Innlent Leggi línuna að samþykki veiti rétt til að stórskaða fólk Innlent Ari nýr formaður Ungra vinstri grænna Innlent Bakar til góðs næsta sólarhringinn Innlent Komi til greina að nýta gervigreind í námsgagnagerð Innlent Fleiri fréttir Barn og fullorðinn létu lífið þegar bíl var ekið inn á knattspyrnuvöll Landtökumenn réðust á evrópska erindreka Lögreglan skarst í leikinn á mótmælum í Kaupmannahöfn Setti málningu í matinn og eitraði fyrir hundruðum barna Mótmælendur réðust inn í ráðhúsið í Marseille Alvarlega slösuð eftir skotárás í íþróttahúsi Frestar gildistöku refsiaðgerða gegn Rússlandi Faðir tveggja nemenda í skólanum sá sem skaut árásarmanninn Varaði við nýju Rússlandi Pútíns Ástvinir þeirra sem létust í flugslysinu bíða enn Talsmaður Trumps rekinn eftir brösuglega byrjun Deilt um sönnunargögn og mögulegan vitorðsmann Norðmaður í tuttugu ára fangelsi í Bretlandi vegna leigumorðs Landtökumenn börðu og rændu ljósmyndara Washington Post „Atkvæði gegn Kanada er hættuleg blekking“ Rýnt í stöðuna í Úkraínu: Trump hleypir öllu í bál og brand, aftur Árásarmaðurinn sextán ára Skipun um að hægja á Starshield hafi komið úr Hvíta húsinu Minnst fjórir féllu í skotáras í Oregon Lést í stormi í Færeyjum Hættir við að skjóta Hasan í beinni Biðja viðskiptavini að vera á varðbergi Andersson hafnað í sænska þinginu Hófu aftur árásir á olíuvinnslur í Rússlandi Eldur í ráðuneyti og banka í óeirðum í Tirana Tuttugu og sjö nemendur látnir eftir að þak skóla hrundi „Þessi ákvörðun mun kosta mörg mannslíf“ Bækur Rooney teknar úr sölu í Bretlandi Umsátur opinberar skuggastríð málaliða Gefur í skyn að bandarísk stjórnvöld hafi sett takmarkanir á Úkraínumenn Sjá meira