Uppgjörið: Valur - Kauno Zalgiris 1-2 | Valsmenn úr leik Sesselja Ósk Gunnarsdóttir skrifar 31. júlí 2025 17:46 Ósvikinn fögnuður. Vísir/Diego
Valsmenn eru úr leik í Evrópu eftir 1-2 tap gegn Kauno Zalgiris frá Litáen í forkeppni Sambandsdeildar Evrópu. Zalgiris vinnur einvígið því 3-2 og er komið áfram í næstu umferð. Fyrri leikur liðanna í Litháen endaði með 1-1 jafntefli og var leikurinn í kvöld því galopinn. Gestirnir frá Litháen voru töluvert betri aðilinn í fyrri hálfleik. Úr leik kvöldsins.Vísir/Diego Einkenndist hann af hættulegum sóknum og dauðafærum. Frederik Schram stóð eins og veggur í marki heimamanna en skot Temur Chogadze, leikmanns Kauno Zalgiris reyndist brjóta þann vegg á 38. mínútu leiksins. Valsarar létu deigan ekki síga og skoraði Orri Sigurður Ómarsson með skallamarki úr hornspyrnu á 3. mínútu í uppbótatíma. 1-1 jafntefli og þannig stóðu leikar í hálfleik. Orri Sigurður skoraði mark Vals í kvöld.Vísir/Diego Valsmenn fengu á sig annað mark á 51. mínútu þvert á móti gang leiksins en Amine Benchalb tók skot sem átti viðkomu í Bjarna Mark og svo í netið. Þegar leið á seinni hálfleikinn tóku heimamenn í Val völdin á vellinum og þrýstu gestunum aftur og náðu að skapa sér nokkur góð færi. Þeir voru óheppnir að skora ekki annað mark til þess að jafna leikinn. Niðurstaða kvöldsins, 1-2 sigur gestanna í Kauno Zalgiris og Valur úr leik. Gestirnir fagna.Vísir/Diego Atvik leiksins Atvik leiksins átti sér stað utan vallar, eða nánar tiltekið í stúkunni. Stuðningsmaður Kauno Zalgiris hljóp hér fyrir framan stuðningsmenn Valsara með ýmsum látum. Heimamenn ekki ánægðir með uppátækið og fékk stuðningsmaðurinn bjórglas í andlitið að launum. Stjörnur og skúrkarFrederik Schram hélt Valsmönnum inni í þessum leik og átti hann nokkrar frábærar vörslur. Maður leiksins að mínu mati og mikilvægur hlekkur í liði heimamanna. Schram vígalegur.Vísir/Diego Tryggvi Hrafn Haraldsson var flottur, átti 1-2 góð skot og sá um föst leikatriði með prýði. Adam Ægir Pálsson kom inn á sem varamaður á 69. mínútu leiksins og átti fína innkomu, fékk meðal annars dauðafæri en sá bolti endaði framhjá. Tryggvi Hrafn ógnaði með hraða sínum og krafti.Vísir/Diego Stemning og umgjörð Fín stemning á Hlíðarenda, ágætlega mætt í stúkuna. Mjög fín mæting hjá Litháum sem létu vel í sér heyra. Ágætlega mætt.Vísir/Diego DómararFínasta dómgæsla, veit að gestirnir voru ekki sáttir með hversu lengi leikurinn fékk að ganga í uppbótatíma fyrri hálfleiks. Orri Sigurður Ómarsson skoraði einmitt flautumark og voru leikmenn Kauno Zalgiris brjálaðir og fékk markvörður gestanna að líta gula spjaldið. Dómari leiksins.Vísir/Diego
Valur Sambandsdeild Evrópu Íslenski boltinn Fótbolti Tengdar fréttir Orri Sigurður: Ekki eins og heimurinn sé að farast „Við vorum ekki hræddir, þetta var gott lið og við náðum að loka vel á það sem við ætluðum að gera, en á sama tíma vorum við ekki nógu góðir.“ sagði markaskorarinn Orri Sigurður Ómarsson eftir súrt tap Vals fyrir Kauno Žalgiris í forkeppni Sambandsdeildar Evrópu. 31. júlí 2025 21:21
Orri Sigurður: Ekki eins og heimurinn sé að farast „Við vorum ekki hræddir, þetta var gott lið og við náðum að loka vel á það sem við ætluðum að gera, en á sama tíma vorum við ekki nógu góðir.“ sagði markaskorarinn Orri Sigurður Ómarsson eftir súrt tap Vals fyrir Kauno Žalgiris í forkeppni Sambandsdeildar Evrópu. 31. júlí 2025 21:21