Erlent

Bandaríkja­for­seti vill þiggja lúxusþotu frá Katar að „gjöf“

Kjartan Kjartansson skrifar
Boeing-þota sem Bandaríkjaforseti prófaði á Flórída í febrúar. Katarar vilja gefa honum persónulega lúxusþotu.
Boeing-þota sem Bandaríkjaforseti prófaði á Flórída í febrúar. Katarar vilja gefa honum persónulega lúxusþotu. AP/Ben Burtis

Ríkisstjórn repúblikana í Bandaríkjunum hafa undirbúið lögfræðiálit um að forseti þeirra megi þiggja lúxusþotu sem er metin á milljarða króna að gjöf frá emírnum í Katar þrátt fyrir að stjórnarskrá banni að forseti taki við gjöfum eða mútum frá erlendum ríkjum. Forsetinn sjálfur er áfjáður í að þiggja þotuna.

ABC-sjónvarpsstöðin greindi frá því um helgina að tilkynnt yrði um gjöf Katara til Bandaríkjaforseta í opinberri heimsókn hans þangað í vikunni. Lúxusþotan af gerðinni Boeing 747-8 yrði notuð sem opinber forsetaflugvél til loka kjörtímabils forsetans en eftir það hefði forsetinn hana til persónulegra afnota.

Slík gjöf virðist augljóslega stríða gegn fyrstu grein stjórnarskrár Bandaríkjanna sem bannar forseta að þiggja gjafir, laun eða titla frá erlendum ríkjum án leyfis Bandaríkjaþings. 

Dómsmálaráðherra Bandaríkjanna telur að forsetinn geti komist í kringum það bann með því að láta ríkið gefa sjóði sem er ætlað að reisa opinbert forsetabókasafn sitjandi forseta flugvélina. Venja er í Bandaríkujunum að stofnuð séu bókasöfn fyrrverandi forseta eftir að þeir láta af embætti sem halda meðal annars um gögn úr embættistíð þeirra.

Fréttirnar af gjöfinni vöktu töluverða hneykslan hjá stjórnarandstæðingum og sérfræðingum í siðareglum opinberra embættismanna. Einn þeirra sem AP-fréttastofan ræddi við sakaði sitjandi forsetann meðal annars um að einbeita sér að því að notfæra sér völd sín til þess að maka krókinn persónulega. Jafnvel sumir bandamenn forsetans hafa lýst áhyggjum af því að það gæti verið öryggisógn ef forsetinn notaði flugvél frá erlendu ríki.

Ósáttur við gagnrýni stjórnarandstöðunnar

Í skugga gagnrýninnar hafa katörsk stjórnvöld sagt að varnarmálaráðuneytið landanna tveggja séu að skoða mögulegt framlag á forsetaflugvél. Engin ákvörðun hafi þó enn verið tekin.

Bandaríski forsetinn sjálfur gagnrýndi stjórnarandstöðuna fyrir að vilja ekki þiggja flugvélina að gjöf.

Forsetinn sætti málsókn á fyrra kjörtímabili fyrir meint brot á stjórnarskrárákvæðinu um gjafir frá erlendum ríkjum. Hæstiréttur felldi málið niður árið 2021 á þeim forsendum að hann væri óútkljáanlegt þar sem hann væri ekki lengur forseti.

Viðskiptaveldi forsetans hefur umtalsverðra hagsmuna að gæta í Miðausturlöndum, þar á meðal í Katar. Það skrifaði nýlega undir samkomulag um lúxusgolfferðamannastað við fasteignafélag sem þjóðarsjóður Katar stendur að baki.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×