Innlent

Laun bæjar­stjóra van­virðing við í­búa

Bjarki Sigurðsson skrifar
Svona eru laun bæjarstjóranna í tíu stærstu sveitarfélögum landsins.
Svona eru laun bæjarstjóranna í tíu stærstu sveitarfélögum landsins. Vísir/Hjalti

Þónokkrir bæjarstjórar á Íslandi eru með yfir þrjár milljónir króna á mánuði. Verkalýðsleiðtogi segir þessi háu laun óforsvaranleg og vanvirðingu við skattgreiðendur.

Af tíu fjölmennustu sveitarfélögum landsins er bæjarstjóri Hafnarfjarðar með hæstu launin. Hann er með tvær milljónir og 850 þúsund á mánuði, litlu meira en bæjarstjóri Garðabæjar. Skammt á eftir koma svo bæjarstjóri Reykjanesbæjar, bæjarstjóri Akureyrar og borgarstjóri. Aðrir sem rjúfa tveggja milljón króna múrinn eru bæjarstjórar Kópavogs, Mosfellsbæjar, Akraness og Fjarðabyggðar. Lestina rekur svo bæjarstjóri Árborgar.

Ofan á þetta fá einhverjir þeirra greiðslur fyrir stjórnarsetu, til að mynda sitja allir bæjarstjórar höfuðborgarsvæðisins í stjórn Slökkviliðsins. Því eru heildarmánaðarlaun nokkurra yfir þrjár milljónir króna, þrefalt meira en meðallaun í landinu.

Engin hófsemd

Formaður Eflingar segir há laun bæjarstjóra á Íslandi óforsvaranleg.

„Sveitarfélögin geta ekki haldið úti almennilegri grunnþjónustu. Leikskólarnir eru í stórkostlegum vandræðum, skólakerfið okkar er í stórkostlegum vandræðum, fólkið sem starfar við grundvallarstörf, ómissandi starfsfólk og láglaunafólk, það berst í bökkum. Svo þurfum við enn eina ferðina að fá fréttir af því að fólk sem getur sjálft skammtað sér launin sín geri það og sýni enga hófsemd,“ segir Sólveig. 

Sólveig Anna Jónsdóttir er formaður Eflingar.Vísir/Lýður Valberg

Hún segir launin vanvirðing við alla sem greiða útsvar til sveitarfélaganna.

„Ég held að ég geti sagt hér fyrir hönd allra Eflingarfélaga, að við fordæmum þetta. Við fordæmum framferði hinnar opinberu yfirstéttar og við teljum að það hljóti vera kominn tími á það að það myndist hér pólitísk samstaða í þessu samfélagi að setja þessu fólki einfaldlega stólinn fyrir dyrnar,“ segir Sólveig. 

Spilling á Íslandi

Ýmsir bæjarstjórar fá launahækkun samkvæmt launavísitölu tvisvar á ári, sem þekkist almennt ekki á almennum markaði að sögn Sólveigar.

„Ástæðan fyrir því að þetta fólk kemst upp með þetta er að því miður erum við að því miður erum við að takast á við mikla spillingu í þessu landi. Hún lýsir sér ekki bara með þessum hætti en þetta er kannski ljósasta og að sumu leyti ömurlegasta birtingarmyndin,“ segir Sólveig. 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×