Akranes
1 2 3 4 5 6 … 14 ›
Engin breyting á hvalveiðileyfi því það sé glænýtt Starfandi matvælaráðherra segir nauðsynlegt að Hvalur hf. hafi fyrirsjáanleika í rekstri og því hafi hann gefið út fimm ára hvalveiðileyfi sem endurnýjast sjálfkrafa á hverju ári. Hann hafi ekki haft tíma til að taka ákvörðun fyrir kosningar. Óþarfi sé að bíða eftir niðurstöðu starfshóps sem rýnir lagaumgjörð hvalveiða áður en slík ákvörðun er tekin. Innlent 20.12.2024 19:02
Stærsti skjálftinn á svæðinu frá upphafi mælinga Skjálfti 3,2 að stærð varð við Grjótarvatn, um 26 kílómetrum norður af Borgarnesi, klukkan 22:50 í gærkvöldi. Innlent 19.12.2024 06:07
„Ég tek bara ekkert mark á því“ Formaður Verkalýðsfélags Akraness gefur lítið fyrir gagnrýni Katrínar Oddsdóttur, lögmanns Náttúruverndarsamtaka Íslands, og Henrys Alexanders Henryssonar, siðfræðings, á ákvörðun Bjarna Benediktssonar starfandi matvælaráðherra um að gefa út fimm ára hvalveiðileyfi til Hvals hf., sem endurnýjast árlega. Hann telur málflutning þeirra einkennast af hræsni. Innlent 18.12.2024 16:22
Féllst á að greiða tugi milljóna vegna áramótaíkveikju á Akranesi Björgvin Ó. Melsteð Ásgeirsson hefur verið dæmdur til tveggja ára skilorðsbundinnar fangelsisvistar fyrir að kveikja í skemmtistaðnum Útgerðinni á Akranesi á gamlárskvöld árið 2023. Þá hefur honum verið gert að greiða tæplega 43 milljónir króna í skaðabætur. Innlent 18.12.2024 08:48
Full ástæða til að ætla að það gæti orðið loðnuvertíð Fiskifræðingur á Hafrannsóknastofnun segir fulla ástæðu til að ætla að loðnuvertíð gæti orðið í vetur. Fyrsta leitarleiðangri vetrarins lauk í morgun. Viðskipti innlent 16.12.2024 22:24
Festa kaup á áttatíu íbúðum fyrir eldra fólk Leigufélag aldraðra og Brák íbúðafélag hafa komist að samkomulagi um að Brák kaupi öll þrjú fjölbýlishús Leigufélags aldraðra sem eru samtals 80 hagkvæmar leiguíbúðir fyrir eldra fólk. Með kaupunum er ætlunin að ná fram aukinni stærðarhagkvæmni og renna styrkari stoðum undir rekstur íbúðanna og áframhaldandi útleigu þeirra til tekju- og eignalægra eldra fólks. Viðskipti innlent 13.12.2024 23:07
Réttað yfir manni sem er ákærður fyrir að brjóta gegn fatlaðri konu og syni hennar Aðalmeðferð yfir karlmanni sem er ákærður fyrir að nauðga andlega fatlaðri konu og áreita unglingsson hennar og vinkonu sem eru einnig andlega fötluð hófst í gær. Réttarhöldin eru lokuð en maðurinn var verslunarstjóri þar sem konan starfaði við afgreiðslu. Innlent 12.12.2024 10:17
Engin ástæða til að bíða eftir því að annar ráðherra veiti leyfi á sama grundvelli Bjarni Benediktsson forsætis- og matvælaráðherra segir ákvörðun um útgáfu hvalveiðileyfa ekkert annað en afgreiðslu í matvælaráðuneytinu. Verið sé að fylgja lögum. Engin ástæða sé til að bíða eftir því að annar ráðherra veiti leyfi á grundvelli sömu laga. Innlent 5.12.2024 17:25
Veitir leyfi til veiða á langreyði og hrefnu Bjarni Benediktsson matvælaráðherra hefur gefið út leyfi til veiða á langreyðum til Hvals hf. auk leyfis til veiða á hrefnu til tog- og hrefnuveiðibátsins Halldórs Sigurðssonar ÍS 14 sem er í eigu Tjaldtanga ehf.. Leyfin eru veitt til fimm ára. Innlent 5.12.2024 15:29
Afkoma Orkuveitunnar 44 prósentum betri en í fyrra Rekstur Orkuveitunnar skilaði 5,1 milljarðs króna afgangi fyrstu níu mánuði ársins. Það er 44 prósenta aukning frá sama tímabili fyrra árs og góð undirstaða fyrirhugaðs vaxtar Orkuveitunnar á næstu árum, að mati Sævars Freys Þráinssonar forstjóra. Viðskipti innlent 26.11.2024 10:35
Þegar Skagamenn glöddu lítið hjarta Ég var sex ára þegar snjóflóðið á Flateyri féll þann 26. október 1995. Sex ára barn skynjar kannski ekki tilveruna og þann harm sem er alltumlykjandi dagana og mánuðina þar á eftir, nema einmitt í frekar barnslegum hugmyndum um sorg og gleði. Skoðun 25.11.2024 08:32
SSÍ: Vantar sem fyrst innisundlaugar á Akranesi og Akureyri Sundsamband Íslands hefur sent frá sér niðurstöður úr skýrslu um sundlaugarmannvirki á Íslandi. Margfaldur Ólympíufari stýrði vinnunni. Sport 21.11.2024 18:15
Telur enga frétt í leyniupptökunum um hvalveiðar Verkalýðsleiðtogi af Akranesi segir ekkert fréttnæmt í leynilegum upptökum af syni Jóns Gunnarssonar þar sem hann ræddi um baktjaldamakk um hvalveiðar. Þá segist hann eiga erfitt með að sjá að Alþingi gæti bannað hvalveiðar þótt meirihluti væri fyrir því þar. Viðskipti innlent 14.11.2024 09:15
Nýir eigendur Skagans stefna á að hefja starfsemi í nóvember Hópur fjárfesta hefur náð samkomulagi um kaup á öllum búnaði og lausafé þrotabús Skagans 3X á Akranesi. Auk þess munu þeir taka á leigu mikið af þeim húsakosti sem fyrirtækið bjó yfir í því skyni að hefja þar aftur rekstur. Þetta kemur fram í tilkynningu um kaupin, en það er nýtt félag, KAPP Skaginn ehf., sem er kaupandi. Viðskipti innlent 14.10.2024 10:31
Með húsaflutninga á heilanum Guðlaug Vilbogadóttir fornleifafræðingur segir ótrúlegt hve Íslendingar hafa verið öflugir að flytja hús landshluta á milli fyrir tíma krana- og flutningabíla. Guðlaug er með húsaflutninga á heilanum og skráir samviskusamlega niður sögu hvers hússins á fætur öðru, og gætir þess að eiginkona húseigenda sé tiltekin hverju sinni. Lífið 6.10.2024 10:01
Sýna áhuga á eignum Skagans 3X Blandaður hópur fjárfesta og sérfræðinga hefur sýnt áhuga á að kaupa eignir Skagans 3X á Akranesi úr þrotabúi og hefja aftur starfsemi í bænum. Viðskipti innlent 4.10.2024 07:26
Fótboltastelpan um starfsframann: „Að sækja sér tækifærin sjálfur“ „Það gekk allt út á fótboltann. Og þannig er það enn,“ segir Svava Björk Hölludóttir yfirbókari hjá World Class samsteypunni og brosir. Atvinnulíf 16.9.2024 07:02
Kröfur upp á um 13 milljarða í þrotabú Skagans 3X Gerðar hafa verið kröfur í þrotabú Skagans 3X sem nema um þrettán milljörðum króna. Fyrirtækið var úrskurðað gjaldþrota í júlí. Stærstu kröfurnar í búið eru almennar kröfur sem nema um níu milljörðum. Frá þessu er greint í Morgunblaðinu í dag. Frestur til að lýsa kröfu í búið rann út á mánudag í þessari viku. Viðskipti innlent 14.9.2024 07:29
Hundamatur í uppáhaldi hjá æðarfugli á Akranesi Yndislegt samband hefur skapast á milli unglingsstúlku á Akranesi og fjörutíu og fimm daga æðarfugls, sem stelpan hefur tekið að sér. Fuglinn, sem heitir Dúdú elskar mest af öllu hundamat og mjölorma. Lífið 8.9.2024 20:06
Tilboð berast í eignir þrotabúsins: „Alltaf með símann opinn ef menn hafa áhuga“ Borist hafa nokkur tilboð í ýmsar eignir þrotabús Skagans 3X á Akranesi sem verið er að yfirfara og bera saman. Ekkert nýtt tilboð hefur borist í allar eignir þrotabúsins í heilu lagi síðan ljóst varð að slíkt tilboð sem var til skoðunar næði ekki fram að ganga. Skiptastjóri segir fasteignirnar sem hýst hafi starfsemi fyrirtækisins vera þrotabúinu óviðkomandi þótt þær hafi verið forsenda í tilboðinu sem ekki varð að veruleika. Viðskipti innlent 28.8.2024 21:57
Bæjarstjórn hefur ekki gefið upp von um endurreisn Skagans 3X Bæjarstjórn Akraneskaupstaðar lýsir yfir miklum harmi yfir þeirri stöðu sem upp er komin í máli Skagans 3X en hún hefur þó ekki gefið upp alla von um endurreista starfsemi fyrirtækisins á Akranesi. Innlent 19.8.2024 18:18
Enginn byggi upp fyrirtæki til að standa í veg fyrir endurreisn þess Grenjar ehf., sem er eigandi fasteigna á Akranesi sem félagið Skaginn 3X leigði fyrir starfsemi sína, hafna því að endurreisn síðarnefnda félagsins hafi ekki náð fram að ganga vegna þess að ekki náðist samkomulag við félagið. Sárt sé að sitja undir „uppspuna og óhróðri“ um slíkt. Viðskipti innlent 17.8.2024 13:29
„Þetta var bara okkar líf og nú er það farið“ Starfsfólk Skagans 3X er í áfalli þar sem tilraunir til að selja fyrirtækið í heilu lagi hafa ekki gengið eftir. Útlit er fyrir að starfsemin verði seld í bútum. Innlent 16.8.2024 19:01
Ósáttur við að fyrrum eigandi Skagans 3X standi í vegi endurreisnar Formaður Verkalýðsfélags Akraness segir fyrrum eigendur fyrirtækisins Skagans 3X skulda Skagamönnum skýringar á því hvað hafi komið í veg fyrir að hægt væri að semja um sölu á eignum til aðila sem voru áhugasamir um að halda starfseminni áfram. Viðskipti innlent 16.8.2024 14:36
Setti hraðamet í heiðurssundi fyrir syni Eddu Bjarkar Sigurgeir Svanbergsson synti í gær frá Flateyri til Holtsstrandar og sló hraðamet í sundinu sem hann vill kalla Drengjasund. Sigurgeir stundar sjósund til að berskjalda sig fyrir því sem honum þykir óþægilegt. Hann segir hafi geta verið hættulegt og skelfilegt en það jafnist ekkert á við tilfinninguna að skríða upp hinum megin. Innlent 14.8.2024 16:00
Heillandi einbýli fyrir 93 milljónir Við Brekkubraut á Akranesi er að finna heillandi 160 fermetra einbýlishús á þremur hæðum sem var byggt árið 1953. Ásett verð fyrir eignina er 92,9 milljónir. Lífið 14.8.2024 15:01
Tölum saman um skólastarf Að vinna í grunnskóla er skemmtilegasta starf sem ég get hugsað mér en á sama tíma er það mjög vandasamt. Starfsfólk í skólum hefur mikil áhrif á líf barna og fjölskyldna þeirra og við munum öll eftir þeim kennurum sem hjálpuðu okkur að vaxa og við munum líka eftir þeim sem gerðu það ekki. Skoðun 13.8.2024 18:30
„Eðlilegt að blaðamenn og fjölmiðlar verðleggi vinnu sína“ Skessuhorn ákvað að taka áskorun Facebook og selja áskriftir á fréttavef sinn í fyrra. Ritstjóri héraðsfréttamiðilsins segir eðlilegt að blaðamenn og fjölmiðlar fái greitt fyrir vinnu eins og aðrir sem selji þjónustu. Lesendur hafi tekið áskriftarsölunni vel. Innlent 6.8.2024 19:30
Árekstur jepplings og fólksbíls á Vesturlandsvegi Einn var fluttur til skoðunar á sjúkrahúsinu á Akranesi eftir árekstur fólksbíls og jepplings á þjóðvegi 1 við Melasveit fyrir hádegi. Þjóðvegurinn var lokaður um tíma en unnið er að því að opna hann að fullu aftur. Innlent 31.7.2024 11:59
Feðgar með 90 ára reynslu á elstu og minnstu rakarastofu landsins Ein elsta og minnsta rakarastofa landsins er á Akranesi en sjálft húsið verður hundrað ára á þessu ári. Þar starfa samrýmdir feðgar með samtals níutíu ára starfsreynslu. Þeir eru hvergi nærri hættir að klippa og raka en sá yngri ætlar að minnsta kosti að starfa áfram í húsinu í þrjátíu ár í við viðbót. Innlent 30.7.2024 19:00