Enn enginn grunaður um innbrotið Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu rannsakar enn innbrot í Dalsbú í Mosfellsdal í lok júlí, sem varð til þess að mikill fjöldi minka gekk laus um Mosfellsdal og nágrenni. Enginn er grunaður en vonir standa til að málið verði leyst fljótlega. Innlent 26.10.2026 10:28
Tvö umferðarslys og þrír fluttir á sjúkrahús Lögreglunni á varðsvæði 2, sem sinnir verkefnum í Hafnarfirði, Garðabæ og á Álftanesi, var tilkynnt um umferðarslys á tíunda tímanum í dag en tveir voru fluttir á slysadeild í kjölfarið. Þá barst lögreglunni á stöð 4 tilkynning um umferðarslys um klukkan tólf en umdæmi hennar nær yfir Grafarvog, Mosfellsbæ og Árbæ. Einn var fluttur af vettvangi með sjúkrabíl. Innlent 22.10.2026 18:35
Misfarir í Mosfellsbæ Síðastliðin misseri hefur átt sér stað þörf opinber umræða um stöðu ræstingafólks. Skoðun 21.10.2026 10:17
Tuttugu lögðu ólöglega Lögreglan þurfti að sinna fjölda ökumanna í nótt sem voru í órétti. Að undanskildu einu innbroti er dagbók lögreglu í dag undirlögð umferðarlagabrotum. Innlent 20. september 2026 08:27
Eftirlýstur og með vopn á sér Eftirlýstur einstaklingur var handtekinn og vistaður í fangaklefa Lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu í nótt eftir að lögregla hafði af honum afskipti og fann á honum vopn. Innlent 19. september 2026 07:13
Játar innbrot í búin Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu hefur upplýst innbrot og eignaspjöll í húsnæði Stjörnugríss á Kjalarnesi og Reykjabúið í Mosfellsbæ ásamt fleiri innbrotum í önnur bú á Suðurlandi og Kjalarnesi. Innlent 18. september 2026 11:53
Geti fundið Tækniskólanum góðan stað á Akureyri Berglind Ósk Guðmundsdóttir segir Akureyrarbæ til í að ræða það að nýr Tækniskóli verði byggður á Akureyri. Samkomulag Hafnarfjarðarbæjar og Tækniskólans um uppbyggingu í Hafnarfirði fór um þúfur og er óvissa um það hvar skólinn verður í framtíðinni. Innlent 17. september 2026 07:36
Sunnlendingar buðu best í breikkun á Kjalarnesi Verktakarnir Suðurverk og Fossvélar áttu lægsta boð í breikkun Vesturlandsvegar á Kjalarnesi milli Grundarhverfis og Hvalfjarðarganga. Sameiginlegt tilboð þeirra hljóðar upp á nærri 4,7 milljarða króna. Það er hálfum milljarði króna undir kostnaðaráætlun, eða 90,4 prósent af áætluðum verkakakostnaði, sem er tæplega 5,2 milljarðar króna. Innlent 16. september 2026 17:44
Dýraverndunarsinni handtekinn í tengslum við minka- og svínabúsmálið Árni Stefán Árnason, dýraverndarlögfræðingur sem hefur lengi staðið í deilum við Matvælastofnun (MAST), var handtekinn í síðustu viku í tengslum við rannsókn lögreglu á innbrotum í svínabú, hænsnabú og minkabú á þessu ári. Innlent 14. september 2026 14:19
Opnum Skálafell Það er barátta í gangi við að opna á ný skíðasvæðið í Skálafelli þrátt fyrir samkomulag sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu um þá uppbyggingu. Reynslan af Bláfjöllum undanfarin ár hefur sannað að stórbætt aðstaða og nýjar lyftur skila aukinni aðsókn. Það mælir allt með því að byggja einnig upp skíðasvæðið í Skálafelli. Skoðun 9. september 2026 07:01
Rafmagnslaust var í Reykjavík og Mosfellsbæ Rafmagnslaust var í Mosfellsbæ og Grafarvogi, Grafarholti, Úlfarsárdal og á Kjalarnesi í Reykjavík í kvöld eftir að bilun kom upp í aðveitustöð við Korpu. Rafmagn er nú alls staðar komið aftur á, að sögn Veitna. Innlent 4. september 2026 20:24
Kalla eftir ákvörðun um milljarðaáform í Skálafelli Framtíð skíðasvæðisins í Skálafelli er á ný komin á borð sveitarfélaganna á höfuðborgarsvæðinu. Stjórn Samtaka sveitarfélaga á höfuðborgarsvæðinu verður beðin um að taka afstöðu til þess hvort endurskoða eigi samkomulag um uppbyggingu svæðisins frá árinu 2018. Innlent 3. september 2026 16:21
Malbiksmeistari stýrir Malbikstöðinni Bergþóra Kristinsdóttir, verkfræðingur, er nýr framkvæmdastjóri Malbikstöðvarinnar í Mosfellsbæ. Hún skrifaði meistararitgerð sína í verkfræði um malbik. Viðskipti innlent 3. september 2026 11:49
Kerfisbilun skömmu fyrir hækkun en enginn ofgreiddi Allir sem tóku eldsneyti fyrir miðnætti í gær borguðu lægra verð en þeir sem biðu með að dæla þar til í dag eftir að tímabundin lækkun virðisaukaskatts á eldsneyti féll úr gildi. Um tíma leit út eins og Olís hefði þjófstartað í hækkununum í Mosfellsbæ en um var að ræða bilun í kerfi og allir greiddu rétt verð. Framkvæmdastjórinn gagnrýnir hve stuttan tíma olíufélögin fá til að bregðast við meiriháttar breytingum stjórnvalda. Neytendur 1. september 2026 11:20
Ofurölva ungmenni hlupu öll á brott nema eitt Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu hafði afskipti af ungmennum sem voru orðin ofurölvi í Kópavogi. Þegar lögreglan var á leiðinni hlupu þau öll á brott nema eitt. Innlent 30. ágúst 2026 08:08
Jakob Smári útnefndur bæjarlistamaður Mosfellsbæjar Jakob Smári Magnússon bassaleikari hefur verið útnefndur bæjarlistamaður Mosfellsbæjar 2026. Hann hefur spilað með mörgum helstu tónlistarmönnum þjóðarinnar í yfir fjörutíu ár. Lífið 27. ágúst 2026 19:31
Stungan leiddi til skurðar Ungur drengur stakk sér til sunds í Mosfellsbæ og rak höfuðið í með þeim afleiðingum að hann hlaut skurð á höfðinu. Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu brást við tilkynningu um slysið. Innlent 27. ágúst 2026 17:39
Húsið að Mosfelli tekið í gegn og biskup flytur inn Biskup Íslands mun flytja að Mosfelli í Mosfellsdal þegar framkvæmdum á íbúðarhúsnæði á staðnum lýkur. Þetta kemur fram í fundargerð stjórnar Þjóðkirkjunnar frá því fyrr í ágúst. Innlent 26. ágúst 2026 06:58
Handtökur í tengslum við innbrot í minkabúið Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu hefur framkvæmt handtökur í tengslum við innbrotið í minkabúið í Mosfellsdal. Ekki hefur þó verið farið fram á gæsluvarðhald yfir neinum. Bóndinn segir mikið uppbyggingarstarf fram undan en mikilvægt sé að fá ný dýr til landsins. Innlent 25. ágúst 2026 12:18
Aðstoðuðu við að ná svifvæng úr tré við Hafravatn Björgunarsveitir á höfuðborgarsvæðinu og slökkvilið höfuðborgarsvæðisins aðstoðuðu í gærkvöldi við að ná svifvæng niður úr tré við Hafravatn. Vinsælt er að svífa á svifvæng á svæðinu. Innlent 21. ágúst 2026 09:52
Eiga eftir að taka umsækjendur í viðtöl Enn hafa engin viðtöl verið tekin vegna skipunar nýs lögreglustjóra á höfuðborgarsvæðinu en vegna sumarleyfa lá ráðningarferlið niðri. Óljóst er hvenær nýr lögreglustjóri verður skipaður. Innlent 19. ágúst 2026 06:45
„Ein miðaldra kona að tala um að hún hefði viljað mæta“ Sumarball fyrir menntaskólanema gekk eins í sögu segja skipuleggjendur. Sex hundruð ungmenni skemmtu sér undir berum himni án allra vímuefna. Lífið 17. ágúst 2026 14:25
Rafmagnslaust í Mosfellsdal Rafmagnslaust í hluta Mosfellsdals en grafið var í háspennustreng á svæðinu í morgun. Búið er að staðsetja bilunina og unnið er að viðgerð. Innlent 14. ágúst 2026 11:21
Rafmagnslaust í Mosfellsbæ og Grafarvogi Rafmagnslaust er í hluta Mosfellsbæ og Grafarvogs vegna bilunar en unnið er að viðgerð. Innlent 13. ágúst 2026 20:19