Erlent

Til­nefning Hegseths sam­þykkt úr nefnd

Samúel Karl Ólason skrifar
Pete Hegseth, starfandi varnarmálaráðherra Bandaríkjanna.
Pete Hegseth, starfandi varnarmálaráðherra Bandaríkjanna. AP/Alex Brandon

Tilnefning sjónvarpsmannsins Petes Hegseth til embættis varnarmálaráðherra var samþykkt úr nefnd í öldungadeild Bandaríkjaþings í gærkvöldi. Atkvæðagreiðslan fylgdi flokkslínum, 14-13, og er búist við miklum deilum þegar tilnefningin fer fyrir öldungadeildina í heild.

Demókratar hafa þegar mótmælt tilnefningu Hegseth vegna ásakana um kynferðisbrots og drykkju hans. Þeir hafa einnig sagt að Hegseth búi ekki yfir nægilegri reynslu til að stýra varnarmálaráðuneytinu.

Hegseth er nú starfandi varnarmálaráðherra. Ekki liggur fyrir hvenær tilnefning hans verður tekin fyrir en líklegt er að hún verði samþykkt af Repúblikönum, sem eru í meirihluta í öldungadeildinni.

Hegseth hefur undanfarin ár starfað hjá Fox og verið einn af þáttastjórnendum Fox and Friends um helgar. Trump hefur verið tíður gestur í Fox and Friends á undanförnum árum og myndað vinabönd við Hegseth.

Hegseth er uppgjafahermaður en er að öðru leyti talinn frekar reynslulaus fyrir embætti varnarmálaráðherra.

Varnarmálaráðuneytið fær meira en átta hundruð milljarða dali á ári og undir ráðuneytinu starfa um 1,3 milljónir hermanna og 1,4 milljónir í þjóðvarðliði, varaliði og óbreyttir borgarar um heiminn allan.

Vika er síðan tilnefning hans var tekin fyrir í varnarmálanefnd öldungadeildarinnar en þá var hann meðal annars spurður út í áfengisdrykkju sína og ummæli sem hann hefur látið falla um konur í hernaði.

Sjónvarpsmaðurinn hefur áður sagt að hann sé verulega mótfallinn því sem hann og aðrir kalla „woke“ verkefni innan hersins, þar sem ýtt er undir jafnrétti og jafna þátttöku, og að reka eigi alla herforingja sem komið hafa að slíkum verkefnum.

Hann hefur einnig gefið til kynna að hann sé mótfallinn því að konur fái að taka þátt í bardögum.

Meðal annars hefur Hegseth sagt að fjölbreytileiki í hernum sé styrkleiki, í því samhengi að hvítir menn og menn úr minnihlutahópum geti staðið sig svipað vel í átökum, þá eigi það sama ekki við konur.

Hegseth hefur einnig hvatt til þess að náða hermenn sem sakfelldir hafa verið fyrir stríðsglæpi. Það gerði Trump árið 2019, þegar hann náðaði þrjá menn sem höfðu verið sakaði og dæmdir fyrir stríðsglæpi.

Sjá einnig: Stefnir í hreinsanir innan Pentagon

Fyrsta uppsögnin innan varnarmálaráðuneytisins var opinberuð í dag en aðmírállinn Linda Fagan hefur verið rekin sem yfirmaður Strandgæslu Bandaríkjanna. Hún var fyrsta konan sem tók við stjórn einnar af greinum herafla Bandaríkjanna.

Atkvæðagreiðsla möguleg um helgina

Enn sem komið er hefur eingöngu Marco Rubio hlotið náð þingmanna öldungadeildarinnar í háttsett embætti en hann mun stýra utanríkisráðuneytinu. Leiðtogar Repúblikanaflokksins vonast til þess að John Ratcliffe nái í gegnum þingið seinna í dag en hann á að taka við stjórn Leyniþjónustu Bandaríkjanna (CIA).

Blaðamenn Punchbowl News segja að til standi að reyna að koma Hegseth eða Kristy Noem, sem tilnefnd er til embættis heimavarnarráðherra, í kjölfar Ratcliffe. Ólíklegt er að tilnefning Noem muni mæta mikilli andspyrnu meðal Demókrata en það sama má ekki segja um tilnefningu Hegseth.

Séu Repúblikanar sammála um að samþykkja tilnefningu hans er þó lítið annað sem Demókratar geta gert en að nýta allan sinn tíma til að spyrja hann spurninga á þingfundi og reisa alla þá tálma sem þeir geta í leiðinni. Þeir eru þó allir tímabundnir en John Thune, leiðtogi Repúblikana í öldungadeildinni, segir að keyrt verði í gegnum þessa tálma.

Atkvæðagreiðslan um tilnefningu hans gæti þá mögulega átt sér stað um helgina.


Tengdar fréttir

Vill sýna þinginu hver ræður

Donald Trump, verðandi forseti Bandaríkjanna, hefur á dögunum opinberað hverja hann ætlar að tilnefna í nokkur mikilvæg embætti í ríkisstjórn sinni. Þrjár af þessum tilnefningum eru umdeildari en aðrar og er Trump sagður mana þingmenn Repúblikanaflokksins í öldungadeildinni til að standa í vegi sér.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×