Erlent

Enn segjast menn von­góðir um vopna­hlé á Gasa

Hólmfríður Gísladóttir skrifar
Nær allir íbúar Gasa eru nú á vergangi, eftir margra mánaða árásir sem hafa valdið gríðarlegu tjóni.
Nær allir íbúar Gasa eru nú á vergangi, eftir margra mánaða árásir sem hafa valdið gríðarlegu tjóni. Getty/Anadolu/Moiz Salhi

Antony Blinken, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, sagðist í gær nokkuð vongóður um að vopnahléssamkomulag myndi nást á milli Ísraelsmanna og Hamas, ef ekki á næstu tveimur vikum þá fljótlega eftir það.

Viðræður hófust á ný í Katar á sunnudag en fregnir hafa borist af því að Hamas hafi látið samningamönnum í té lista yfir 34 gísla sem samtökin gætu hugsað sér að láta lausa í fyrsta fasa fangaskipta.

Samkvæmt forsætisráðuneyti Benjamin Netanyahu er um að ræða sama lista og Hamas lögðu fram síðasta sumar. Hamas liðar segja um að ræða börn, konur, eldra fólk og særða en Ísraelsmenn hafa bent á að ekki hafi verið staðfest að allir á listanum séu í raun á lífi.

Af þeim tæplega hundrað sem enn eru í haldi eftir árásir Hamasliða á byggðir Ísraelsmanna 7. október 2023 áætla yfirvöld í Ísrael að um það bil þriðjungur sé látinn.

Talsmaður Hamas sagði í samtali við AFP að samtökin þyrftu að fá að minnsta kosti viku „frið“ á Gasa til að ná saman upplýsingum um nákvæmlega staðsetningu gíslanna og eiga samskipti við fangara þeirra um ástand þeirra.

Þrátt fyrir að viðræður þyki ganga betur nú en oft áður héldu Ísraelar árásum sínum áfram um helgina og segja yfirvöld á Gasa um hundrað hafa látist um helgina. Ástandið á svæðinu versnar enn vegna kulda og flóða en sjö ungabörn eru sögð hafa látist sökum ofkælingar á síðustu vikum.

Ísraelska dagblaðið Haaretz greini frá því í gær að yfirvöld væru bjartsýn á að samkomulag gæti náðst um vopnahlé á næstu dögum en þess ber að geta að aðilar hafa nokkrum sinnum sagt ljós við enda ganganna án þess að úr rættist.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×