Erlent

Tvö börn í lífs­hættu eftir skot­á­rás í leik­skóla í Kalí­forníu

Gunnar Reynir Valþórsson skrifar
Lögreglumenn standa yfir líki árásarmannsins við skólann í Palermo. 
Lögreglumenn standa yfir líki árásarmannsins við skólann í Palermo.  Michael Weber/The Chico Enterprise-Record via AP

Tvö börn á aldrinum fimm til sex ára eru lífshættulega særð eftir að hafa orðið fyrir skotum í skólanum sem þau sækja í Kalíforníu í Bandaríkjunum.

Byssumaðurinn skaut sjálfan sig til bana eftir að atlöguna, að því er AP fréttaveitan greinir frá. Skólinn, sem er í bænum Palermo er rekinn af Sjöunda dags aðventistum og leikur grunur á að af þeim sökum hafi árásarmaðurinn ráðist að skólanum

 Lögregla segist þó ekki telja að ódæðismaðurinn hafi tengst hinum særðu eða einhverjum í skólanum á nokkurn hátt. Svo virðist sem hann hafi mætt í skólann í viðtal til starfsmanns til þess að ræða inngöngu barns í skólann. Viðtalið mun hafa gengið sinn vanagang uns allt í einu hafi hann byrjað að skjóta.

Skólinn sem um ræðir er afar fámennur en þar eru aðeins nokkrir tugir barna og í bænum Palermo búa aðeins um fimm þúsund manns.

Skotárásir í skólum í Bandaríkjunum verða sífellt algengari og segir í umfjöllun AP að árin 2020 og 2021 hafi skotvopn verið helsta dánarorsök barna á aldrinum eins til sautján ára í landinu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×