Erlent

Welby segir af sér í tengslum við kynferðisbrotamál

Hólmfríður Gísladóttir skrifar
Welby við krýningu Karls III.
Welby við krýningu Karls III. Getty/Aaron Chown

Justin Welby hefur greint frá því að hann hyggist segja af sér sem erkibiskup af Kantaraborg en hann hefur sætt harðri gagnrýni fyrir að grípa ekki til aðgerða þegar honum var gert viðvart um stófelld kynferðis- og ofbeldisbrot John Smyth.

Welby, sem er æðsti leiðtogi Ensku biskupakirkjunnar, hefur sætt þrýstingi um að segja af sér, bæði innan kirkjunnar og utan. Hann hefur nú þegar gert Karli III Bretakonungi grein fyrir ákvörðun sinni.

Í yfirlýsingu segist Welby sjá sig tilneyddan til að axla persónulega og stofnanalega ábyrgð á því sinnuleysi sem fórnarlömb Smyth sættu af hálfu kirkjunnar frá 2013, þegar hann sjálfur var upplýstur um brot Smyth.

Þöggun kirkjunnar er rakin í skýrslu sem kom út í síðustu viku, þar sem fjallað er um glæpi sem Smyth er talinn hafa framið gegn um 130 drengjum á Bretlandseyjum á 8. og 9. áratug síðustu aldar og síðar í Zimbabwe og mögulega Suður-Afríku.

Smyth, sem var valdamikill lögmaður og starfaði meðal annars innan kirkjunnar, lést árið 2018 en það var niðurstaða rannsóknarnefndar að sækja hefði mátt hann til saka ef Welby hefði farið með málið til lögreglu um leið og það komst upp.

Welby segist hins vegar hafa staðið í þeirri trú að það hefði þegar verið gert.

Rannsóknarnefndin komst einnig að þeirri niðurstöðu að teljast verði ólíklegt að það sé rétt sem Welby hefur haldið fram, að hann hafi ekki heyrt af hegðun Smyth þegar báðir störfuðu hjá ungmennabúðum á vegum kirkjunnar fyrir mörgum áratugum.

Smyth er sagður hafa beitt tugi drengja grófu andlegu, líkamlegu og kynferðislegu ofbeldi í um hálfa öld. Þegar upp komst um brot hans á Bretlandseyjum hafi honum verið leyft að flytjast til Afríku, þar sem hann hélt áfram uppteknum hætti.

Welby hefur notið mikillar virðingar í embætti og fór meðal annars með stórt hlutverk í útför Elísabetar II Bretadrottningar og krýningu Karls.

Hér má finna umfjöllun Guardian um málið.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×