Kaupmáttur dróst saman í fyrsta skipti í ellefu ár Árni Sæberg skrifar 3. október 2023 17:40 Hagstofa Íslands reiknar út kaupmátt. Vísir/Vilhelm Kaupmáttur á mann dróst saman um 0,1 prósent árið 2022 og á öðrum ársfjórðungi þesssa árs dróst hann saman um 5,2 prósent.
Í tilkynningu á vef Hagstofunnar segir að villa hafi verið gerð í útreikningum kaupmáttar ráðstöfunartekna sem birtir voru í gær. Þá var hann sagður hafa aukist um 2,4 prósent á árinu. Rýrnun kaupmáttar á mann á árinu 2022 hafi áhrif á áætlun kaupmáttar ráðstöfunartekna á fyrri helmingi ársins 2023. Þannig sé áætlað að kaupmáttur ráðstöfunartekna á mann á öðrum ársfjórðungi 2023 hafi dregist saman um 5,2 prósent í stað 6,1 prósent í áður birtum tölum. Í grafi á vef Hagstofunnar má sjá að kaupmáttur ráðstöfunartekna einstaklinga hefur ekki lækkað síðan árið 2012, þegar hann dróst saman um 0,3 prósent. Verðbólga meiri en tekjuaukning Í tilkynningu segir að að áætlað sé að ráðstöfunartekjur heimilanna hafi aukist um 7,3 prósent á öðrum ársfjórðungi árið 2023 borið saman við sama ársfjórðung í fyrra. Áætlað sé að ráðstöfunartekjur á mann hafi numið rúmlega 1,3 milljónum króna á ársfjórðungnum og hafi aukist um 3,8 prósent frá sama tímabili í fyrra. Að teknu tilliti til verðlagsþróunar hafi kaupmáttur ráðstöfunartekna á mann hins vegar dregist saman um 5,2 prósent á tímabilinu en vísitala neysluverðs hækkað um 9,4 prósent á sama tímabili.
Efnahagsmál Verðlag Mest lesið Stýrivextir verði 8,25 prósent fyrir árslok Viðskipti innlent Tekur við sem forstjóri S4S Viðskipti innlent Boða lækkanir í Bónus og Hagkaupum með nýju samstarfi Neytendur „Alltaf að líða þannig í vinnunni þinni að þú skiptir máli“ Atvinnulíf Stefna Rannís vegna neitunar um endurgreiðslu Viðskipti innlent Simmi Vill festir kaup á Mosfellingi Viðskipti innlent Þrír bætast í eigendahópinn hjá LEX Viðskipti innlent Innkalla Smash Style hamborgara vegna salmonellu Viðskipti innlent Kvika lækkar hressilega í fyrstu viðskiptum Viðskipti innlent Ársfundur Orkuveitunnar í beinni á Vísi Viðskipti innlent Fleiri fréttir Tekur við sem forstjóri S4S Stýrivextir verði 8,25 prósent fyrir árslok Stefna Rannís vegna neitunar um endurgreiðslu Ársfundur Orkuveitunnar í beinni á Vísi Simmi Vill festir kaup á Mosfellingi Innkalla Smash Style hamborgara vegna salmonellu Eftirlitið útiloki samruna Kviku og stærri banka Bein útsending: Staða orkumála vegna stríðsátaka í Mið-Austurlöndum Þrír bætast í eigendahópinn hjá LEX Spá aukinni verðbólgu í apríl Kvika lækkar hressilega í fyrstu viðskiptum Arion banki og Kvika blása af samrunann Bein útsending: Ísland 2036: Fjártæknieyjan og framtíðin Markaðsstjóri Domino's á Íslandi hættur Jóhann Ingi til Securitas Umsóknum synjað og kurr í greininni Gagnastuldur af Booking sé fullkomið hráefni í markviss netsvik Heimilar ráðherra að ákvarða hámarksverð eldsneytis Vilja að skattahvatar fyrir tækni- og hugverkaiðnað verði festir í sessi Ríflega 7.500 sóttu um 200 sumarstörf Ráðinn framkvæmdastjóri Betri samgangna Eimskip ákært vegna sölu tveggja skipa Yngri en 30 ára neikvæðust í garð annarra samgöngumáta en einkabíls Máttu fella úr gildi skráningu Stripadvisor Spá enn vaxtahækkun í maí Valdís tekur við sem formaður KÍÓ Lækka vask á eldsneyti og sjá til þess að verðlækkanir skili sér strax Nýr forstjóri Deloitte fundinn Fyrirkomulagið beinlínis til að komast fram hjá lögum Kynna aðgerðir gegn verðbólgu á morgun Sjá meira