Uppfært: Vegna vandræða með fyrsta stig Starship-kerfisins hefur verið hætt við geimskotið í dag. Þrátt fyrir það verður niðurtalningunni haldið áfram svo starfsmenn geti æft skotferlið.
Ekki liggur fyrir hvenær verður reynt aftur. Það mun þó taka minnst tvo sólarhringa að gera Starship aftur klára fyrir geimskot.
Starship-kerfið samanstendur af gríðarstórri eldflaug og af um fimmtíu metra löngu geimfari sem ber nafnið Starship. Bæði stig kerfisins eru hönnuð til að geta verið notuð mjög hratt aftur, eins og SpaceX hefur gert með Falcon-eldflaugarnar.
Stæðan er um 120 metra há. Super Heavy eldflaugin er búin 33 Raptor hreyflum sem brenna metan og fljótandi súrefni.
Skotglugginn, eins og sá tímarammi sem hægt er að skjóta geimfarinu út í geim er kallaður, opnast klukkan eitt að íslenskum tíma, eftir að honum var frestað um klukkustund í nótt. Verði ekki hægt að skjóta geimfarinu á loft þá, vegna veðurs, bilunar eða af öðrum ástæðum, er glugginn opinn í tvo og hálfan tíma.
Uppfært: Nú stendur til að skjóta geimfarinu á loft klukkan 13:20.
Útsending SpaceX frá geimskotinu á að hefjast klukkan 12:15 en horfa má á hana í spilaranum hér að neðan.
Ætla ekki að lenda geimfarinu að þessu sinni
Starship á að vera grunnurinn að framtíð SpaceX. Með því að þróa fullkomlega endurnýtanlega eldflaug og geimfar gæti fyrirtækið dregið enn frekar úr kostnaði við geimskot og framkvæmt þau mun oftar en samkeppnisaðilar. Nota á Starship og Super Heavy til að flytja menn og birgðir til tunglsins og jafnvel lengra út í geim.
Eins og áður segir er Super Heavy stærri og kröftugri en gömlu Saturn V eldflaugarnar sem notaðar voru til að senda geimfara til tunglsins á árum áður. Eldflaugin er einnig stærri en N1 eldflaug Sovétríkjanna, sem fór þó aldrei á loft þrátt fyrir fjórar tilraunir.
Starfsmenn SpaceX hafa skotið Starship margsinnis á loft en aldrei út í geim. Með þessum tilraunskotum hefur verið sýnt fram á að geimfarið þolir þá krafta sem reyna á það við geimskot og lendingu. Þá hafa tilraunaskotin sýnt að geimfarið getur rétt sig af og lent aftur á jörðinni.
Að þessu sinni stendur þó hvorki til að reyna að lenda Starship í heilu lagi né eldflauginni.
Eldflaugin á að snúa aftur til jarðar og stendur til að reyna að lenda henni, ef svo má segja, um þrjátíu kílómetra frá ströndum Texas-ríkis. Starship geimfarið mun hins vegar fara hring um jörðina í allt að 235 kílómetra hæð og á að falla í hafið norður af Havaí um níutíu mínútum eftir geimskotið.
Líklegra að geimskotið misheppnist
Markmið starfsmanna SpaceX er að læra eins mikið og mögulegt er af tilraunaskotinu, hvort sem það heppnast eða ekki. Í frétt SpaceFlightNow segir að SpaceX þurfi að rýma svæði í rúmlega sex kílómetra fjarlægð frá skotstaðnum. Þá sé eldflaugin búin sérstökum öryggisbúnaði svo hún springi í loft upp fari hún af leið og ógni byggðum bólum.
Elon Musk, eigandi SpaceX, sagði í gær að meiri líkur væri á því að geimskotið myndi misheppnast, þar sem starfsmenn SpaceX séu að reyna eitthvað sem sé mjög erfitt. Þá gæti þurft að fresta geimskotin vegna vinds.
Sjá má tilkynningar frá SpaceX um skotið í glugganum hér að neðan.