Geimurinn

Geimurinn

Fréttir af geimvísindum og geimferðum.

Fréttamynd

Hvað ef það verður skýjað þegar almyrkvinn verður?

Margir hafa látið hugfallast af tilhugsuninni um að almyrkvi skelli á sólu á þessu landi þar sem sólin virðist oft ótíður gestur. Þjóðin þarf þó ekkert að örvænta að mati Stjörnu-Sævars enda þótt illa viðri munum við upplifa skyndilegt svartnætti um hábjartan dag.

Innlent

Fréttir í tímaröð

Fréttamynd

Fjögurra tonna eldflaugabútur skall á tunglið á ógnar­hraða

Bútur úr SpaceX-eldflaug sem er á stærð við fimm hæða hús og vegur í það minnsta fjögur tonn rakst á tunglið á sjöunda tímanum. Áreksturinn er ekki talinn hættulegur lífi á jörðinni og var hann ekki sýnilegur frá jörðu með berum augum. Búturinn er úr Falcon 9-eldflaug sem var skotið á loft frá Flórída með tvö tunglendingaför út í geim í janúar í fyrra.

Erlent
Fréttamynd

Telja gestinn úr öðru sól­kerfi mun eldri en sólin okkar

Sterkar vísbendingar eru um að halastjarna sem kom inn í sólkerfið okkar í fyrra hafi myndast í mun eldra sólkerfi en okkar. Þetta er í fyrsta skipti sem stjörnufræðingum hefur tekist að gera svo ítarlegar mælingar á utanaðkomandi fyrirbæri í sólkerfinu okkar.

Erlent
Fréttamynd

Lenda þremur geim­förum á tunglinu á þessu ári

Senda á þrjú ómönnuð geimför til tunglsins á þessu ári og á að nota þau til að leggja grunninn að mönnuðum ferðum þangað og byggingu nýrra bækistöðva á yfirborðinu. Vonast er til þess að þrjú mismunandi lendingarför verði send til tunglsins á árinu og eiga þau að bera tungljeppa og ýmiskonar vísindabúnað þangað.

Erlent
Fréttamynd

Þegar yfir­völd gengust við fljúgandi furðu­hlutum

Yfirvöld á Vesturlöndum hafa á undanförnum árum gjörbreytt nálgun sinni á fljúgandi furðuhluti. Lengi vel þótti umræðan fóðra langsóttar samsæriskenningar um að yfirvöld leyndu tilvist geimfara frá fjarlægum hnöttum. Ýmsar aðgerðir stjórnvalda til þess að gera lítið úr slíkum grunsemdum, oft með því að gera þær að beinu athlægi, gerðu hins vegar illt verra og mögnuðu upp slíkar kenningar.

Lífið
Fréttamynd

Fljúgandi furðu­hlutir, leyndarhyggja yfir­valda og sam­særis­kenningar

Saga mannkyns er vörðuð frásögnum af torkennilegum fyrirbærum á himnum. Allt frá því að rómverski sagnaritarinn Titus Livius lýsti „glitrandi skjöldum“ yfir Róm árið 217 fyrir Krist, hafa menn reynt að rýna í dularfull ljós og form í háloftunum. En það var ekki fyrr en eftir síðari heimsstyrjöldina, í andrúmslofti taugatitrings og nýrrar tækni, sem þessi fyrirbæri fóru að snúast um ríkisleynd og meint samráð yfirvalda.

Lífið
Fréttamynd

Full­komin lending eftir sögu­lega ferð

Geimfarar Artemis II eru komnir heilir á húfi aftur til jarðar eftir „fullkomna lendingu“ og hafa þar með lokið sinni sögulegu 10 daga geimferð. Reid Wiseman, Victor Glover, Christina Koch og Jermey Hansen lögðu af stað þann 1. apríl út í geim og er þetta í fyrsta skipti frá árinu 1972 sem menn eru sendir til tunglsins.

Erlent
Fréttamynd

Artemis II er á heim­leið

Geimfararnir um borð í Orion geimfarinu eru nú á leið til jarðar að nýju eftir að hafa farið lengra út í geim en nokkrir aðrir geimfararar.

Erlent
Fréttamynd

Fjær að heiman en nokkur maður frá upp­hafi

Í nótt fara geimfararnir um borð í Artemis II aftur fyrir tunglið og í um fjörutíu mínútur rofnar allt samband við þá. Sjálft tunglið er fyrir. Í leiðinni verða þeir lengra að heiman en nokkur manneskja frá upphafi.

Erlent
Fréttamynd

Ó­happ um borð sem á sér engin for­dæmi

Artemis-II er liður í Artemis-áætlun Geimferðastofnunarinnar NASA en tunglskotið er sögulegt að mörgu leyti. Geimfarið Orion fór nýlega af braut sinni í kringum jörðina og í átt að tunglinu en óvænt óhapp, sem þykir þó tiltölulega minniháttar, skeði um borð í gær.

Erlent
Fréttamynd

Fyrstu geimfaranir í rúma hálfa öld sendir til tunglsins

Fjórum geimförum verður á miðvikudaginn skotið af stað til tunglsins. Þar eiga þeir að fara á braut um tunglið og snúa aftur til jarðar á tíu daga tímabili. Þetta verður í fyrsta sinn í marga áratugi, frá tímum Appollo-áætlunarinnar, sem menn verða sendir til tunglsins.

Erlent
Fréttamynd

„Mark­miðið er ekki að komast til tunglsins, heldur búa þar“

Forsvarsmenn Geimvísindastofnunar Bandaríkjanna (NASA) tilkynntu í dag að setja ætti meira púður í það að koma upp bækistöð á yfirborði tunglsins. Það ætti að gerast áður en Donald Trump, forseti, yfirgefur Hvíta húsið. Einnig stendur til að skjóta kjarnorkuknúnu geimfari af stað til Mars árið 2028.

Erlent
Fréttamynd

Reyna að rjúfa hljóðmúrinn án láta

Starfsmenn Geimvísindastofnunar Bandaríkjanna (NASA) undirbúa aðra flugferð tilraunaflugvélarinnar X-59. Vonast er til þess að flugvél þessi eigi að geta rofið hljóðmúrinn án þess að því fylgi hinar hefðbundnu drunur og læti.

Erlent
Fréttamynd

Rann­sakar geim­veður fyrir Bandaríkja­her

Íslenskur geimvísindamaður er hluti af teymi sem fékk tæpan milljarð króna í styrk vegna verkefnis sem Bandaríkjaher hefur mikinn áhuga á. Markmiðið er að geta spáð fyrir um truflanir í gervihnöttum þegar óveður gengur yfir. 

Innlent
Fréttamynd

Bæta við einu geimskoti og stefna á tunglið 2028

Forsvarsmenn Geimvísindastofnunar Bandaríkjanna (NASA) hafa gert nokkrar breytingar á Artemis-áætluninni svokölluðu. Búið er að bæta við einu geimskoti í áætlunina og stendur ekki lengur til að lenda geimförum á tunglinu í þriðja geimskotinu.

Erlent
Fréttamynd

Á­hrif stóraukins geimrusls á loft­hjúpinn ó­þekkt

Leifar af eldflaugum og gervihnöttum sem brenna upp í lofthjúpnum gætu raskað ósónlaginu og jafnvel hversu mikil sólgeislun berst til yfirborðs jarðar. Vísindamenn sem rannsökuðu endurkomu eldflaugar SpaceX hafa áhyggjur af því að þekkingu skorti á áhrifum geimrusls.

Erlent
Fréttamynd

Falsmyndir af sól­myrkva vella fram: „Gervigreindin er plága“

Stjörnu-Sævar segir gervigreindina plágu sem kaffæri réttum upplýsingum með bulli og ljótleika. Máli sínu til stuðnings deilir hann aragrúa skjáskota af fölsuðum myndum af sólmyrkva á Suðurskautslandinu. Óttast hann að Íslendingar muni verða fyrir barðinu á svipuðu falsi vegna almyrkva á Íslandi í ágúst.

Lífið
Fréttamynd

Reyna aftur á morgun

Starfsmenn Geimvísindastofnunar Bandaríkjanna (NASA) munu gera aðra tilraun til að dæla eldsneyti á eldflaugina Space Launch System (SLS), sem á að nota til að senda geimfara til tunglsins á næstunni. Fyrst var það reynt í byrjun mánaðarins en þá fundust eldsneytislekar á eldflauginni og var Artemis 2 geimskotinu frestað.

Erlent