Innlent

Kaf­bát­a­leit­ar­æf­ing við Ís­land um­fangs­meir­i en áður

Samúel Karl Ólason skrifar
Frá Dynamic Mongoose árið 2015. Æfingin er haldin árlega og snýst um að áhafnir kafbáta, herskipa, flugvéla og þyrla frá mörgum ríkjum NATO vinna saman í því að elta uppi kafbáta.
Frá Dynamic Mongoose árið 2015. Æfingin er haldin árlega og snýst um að áhafnir kafbáta, herskipa, flugvéla og þyrla frá mörgum ríkjum NATO vinna saman í því að elta uppi kafbáta. EPA/MARIT HOMMEDAL

Árleg kafbátaleitaræfing Atlantshafsbandalagsins mun fara fram í norðanverðu Atlantshafi seinna í þessum mánuði. Æfingin kallast Dynamic Mongoose en þegar hún verður haldin verða fjölmörg herskip og kafbátar við strendur Íslands.

Æfingin fer fram á hverju ári. Annað hvert ár er hún haldin við strendur Íslands og hin árin við Noreg. Dynamic Mongoose er meðal annars ætlað að bæta samvinnu innan NATO.

Að þessu sinni er æfingin þó umfangsmeiri en áður. Hún mun standa yfir frá 26. apríl til 5. maí og að henni kemur fólk frá ellefu ríkjum. Það eru Bandaríkin, Bretland, Danmörk, Frakkland, Holland, Ísland, Noregur, Portúgal, Pólland, Spánn og Þýskaland.

Breski kafbáturinn HMS Triumph er einn þeirra sem leitað verður að við kafbátaleitaræfinguna Dynamic Mongoose 2023.Getty/Barry Batchelor

Æfingin felur í sér að áhafnir kafbáta frá Þýskalandi Bandaríkjunum, Bretlandi, Noregi og Þýskalandi munu skiptast á að reyna að fela sig á meðan áhafnir hinna kafbátanna, skipa og flugvéla leita að þeim. Freyja, skip Landhelgisgæslu Íslands, er eitt þeirra sem notað verður við æfinguna.

Samkvæmt upplýsingum frá Landhelgisgæslunni mun áhöfn Freyju æfa leit og björgun á Dynamic Mongoose.

Áhöfn Freyju mun koma að æfingunni í ár.Landhelgisgæslan

Hér að neðan má sjá stutt myndband um Dynamic Mongoose í fyrra.

Ísland hefur um langt skeið verið mikilvægt NATO varðandi kafbátaleit í norðanverðu Atlantshafi. Mikið er notast við flugvélar til að vakta hafið frá Íslandi en umsvif kafbátaleitar frá Íslandi aukist að undanförnu.

Sjá einnig: Kanadamenn taka þátt í kafbátaleit frá Íslandi

Bandarískur aðmíráll sagði í samtali við fréttastofu í fyrra að ótvírætt væri að kafbátavirkni hefði farið og færi vaxandi. Ísland gegndi mikilvægu hlutverki vegna landfræðilegrar legu landsins. Annar aðmíráll sem heimsótti Ísland í fyrra sagði Ísland þungamiðju NATO á heimskautinu.

Sjá einnig: Ísland gegni enn mikilvægu hlutverki fyrir NATO í Norður-Atlantshafi

Spenna hefur aukist á Atlantshafinu á undanförnu ári, eins og víða annarsstaðar, vegna innrásar Rússa í Úkraínu.

Rússneskir sjóliðar standa nú í sambærilegum kafbátaleitaræfingum í Barentshafi. TASS-fréttaveitan sagði frá því í gær að rússneski flotinn sé að æfa samvinnu við kafbátaleit. Í frétt miðilsins segir þó að ekki sé notast við raunverulegan kafbát við æfingarnar.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×