Viðskipti innlent

Jólagjafirnar á Landspítalanum talsvert dýrari í ár

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
Ásta Bjarnadóttir er framkvæmdastjóri mannauðsmála hjá Landspítalanum.
Ásta Bjarnadóttir er framkvæmdastjóri mannauðsmála hjá Landspítalanum. Landspítalinn

Ásta Bjarnadóttir, framkvæmdastjóri mannauðsmála hjá Landspítalanum, segir að kostnaður við jólagjafir til starfsmanna spítalans þetta árið hafi verið talsvert meiri en venjulega. Alls hafi spítalinn greitt 36 milljónir króna fyrir sjö þúsund króna gjafabréf í Skechers og Omnom súkkulaði til sinna sex þúsund starfsmanna.

Vísir vakti athygli á því á laugardag að starfsmenn spítalans gerðu sumir hverjir athugasemd við að gjafabréfið í Skechers, sem var upp á sjö þúsund krónur, dugði ekki fyrir einu skópari í búðinni. Ódýrasta parið í Skechers kostar 7038 krónur og virðist vera um barnastærðir að ræða.

Þá kom fram að fjölmargar deildir spítalans íhugi að safna gjafabréfum saman og gefa til góðs málefnis. Að minnsta kosti einn aðili hefur, í framhaldi af umfjöllun Vísis, boðið starfsfólki Landspítalans að nýta gjafabréfið sitt hjá sér en um er að ræða krána Session bar.

„Jólagjafir starfsfólks Landspítala eru alltaf mjög hóflegar, enda yrði það mögulega litið hornauga af jafnt starfsfólki sem almenningi ef þessi upphæð væri há. Skiljanlega eru alltaf skiptar skoðanir um hvaða birgjar verða fyrir valinu hverju sinni, en valið byggist á tilboðaleit sem hefur verið unnin af sama starfsmanni Landspítala í mörg ár,“ segir Ásta.

„Við leggjum áherslu á að boðið sé upp á vandaðar vörur hjá viðkomandi birgjum en einnig vegur þungt hversu mikinn afslátt þeir eru tilbúnir að gefa okkur, þannig að upphæð gjafabréfsins sé sem hæst. Einnig er mikilvægt að gjafakortið renni ekki út innan of skamms tíma.“

Þannig er um fjögurra ára gjafabréf að ræða hjá Skechers. Gjafabréfið rennur út árið 2024. Landspítalinn samdi við búsáhaldaverslunina Kokku í fyrra og fengu starfsmenn Landspítala þá gjafabréf andvirði 8500 króna. Samið var við 66°N árið 2018.

„Það er skiljanlegt að sumt starfsfólk sé ósátt við að þrátt fyrir þungt starfsár þá hafi vinnustaðurinn ekki efni á að gefa því dýrar jólagjafir.

Heildarupphæðin í ár var reyndar talsvert hærri en venjulega, eða um 36 m.kr. alls til þessara tveggja birgja.“

Ásta segir það ekki hafa farið fram hjá sér að starfseiningar spítalans séu sumar að sameinast um að gefa sín gjafabréf áfram til góðgerðarmálefna, og eins hafi einhverjir vinnustaðir í atvinnulífinu ákveðið að taka á móti gjafabréfunum sem greiðslu fyrir þeirra vörur.

„Þetta er allt saman vel til fundið og gaman að jólagjafir okkar skuli örva hugmyndaflug fólks og efla hlýhug í samfélaginu, nú þegar margir eiga um sárt að binda.“

Vísir fjallar um jólagjafir stofnana og fyrirtækja til starfsmanna sinna. Hvað fékkst þú í jólagjöf? Endilega sendu okkur ábendingu á ritstjorn@visir.is. Fullum trúnaði heitið.


Tengdar fréttir






Fleiri fréttir

Sjá meira


×