Viðskipti innlent

Lífeyrissjóðir sem eiga í Eimskip skoða stöðuna og vilja skýringar

Tryggvi Páll Tryggvason skrifar
Lífeyrissjóðir eiga stóran hlut í Eimskip
Lífeyrissjóðir eiga stóran hlut í Eimskip Vísir/Vilhelm

Lífeyrissjóðir sem samtals eiga yfir þriðjungshlut í Eimskip skoða nú stöðuna sem upp er komin eftir meint brot félagsins á lögum um meðhöndlun úrgangs í tengslum við sölu og niðurrif tveggja skipa félagsins. Að minnsta kosti einn þeirra hyggst óska eftir útskýringum frá stjórn Eimskips.

Greint var frá því í dag að Umhverfisstofnun hefði kært Eimskip til héraðssaksóknara fyrir brot á lögum um meðhöndlun úrgangs vegna sölu á skipunum Goðafossi og Laxfossi, sem enduðu í niðurrifi við strendur Indlands. Eimskip hafnar ásökum um að hafa brotið lög.

Fjallað var um málið í Kveik á RÚV í gær þar sem því var meðal annars haldið fram af forsvarmanni Shipbreaking Foundation, samtaka sem berjast fyrir því að tryggt sé að skipum sé fargað á öruggan og umhverfisvænan hátt, að Eimskip hafi brotið evrópska úrgangslöggjöf þegar skipin voru seld, til fyrirtækis að nafni GMS.

Lífeyrissjóðirnir skoða stöðuna

Íslenskir lífeyrissjóðir eru á meðal stærstu eigenda Eimskipa og starfa þeir meðal annars eftir fjárfestingarstefnu þar sem horft er til samfélagslegrar- og umhverfislegrar ábyrgðar þeirra fyrirtækja sem fjárfest í.

Harpa Jónsdóttir, framkvæmdastjóri Lífeyrissjóðs starfsmanna ríkisins, sem samtals á um níu prósenta hlut í félaginu, segir í svari við fyrirspurn Vísis vegna málsins að sjóðurinn geri kröfu til þess að félög, sem sjóðurinn fjárfestir í, sýni ábyrgð gagnvart félagslegum þáttum, umhverfislegum þáttum og að starfað sé í samræmi við viðurkenndar leiðbeiningar um stjórnarhætti fyrirtækja.

„Í kjölfar umfjöllunar fréttaskýringarþáttarins Kveiks mun sjóðurinn óska eftir skýringum frá Eimskip vegna þess sem þar kom fram,“ segir í svari frá Hörpu.

LV lítur málið alvarlegum augum

Lífeyrissjóður verslunarmanna er næststærsti eigandi Eimskips með 14,7 prósenta hlut. Í svari við fyrispurn Vísis vegna málsins segir að það sé nú til skoðunar hjá sjóðnum, en að það sé litið alvarlegum augum. Von sé á frekari viðbrögðum eftir helgi. Í fjárfestingarstefnu sjóðsins er meðal annars tekið fram að áhersla sé lögð á að stjórnendur þeirra félaga sem fjárfest er í gæti að reglum og viðmiðum sem gilda fyrir viðkomandi starfsemi varðandi umhverfismál.

Gildi - lífeyrissjóður er þriðji stærsti eigandi Eimskips með 13,43 prósenta hlut. Í svari við fyrirspurn Vísis vegna málsins segir að þau vinnubrögð sem lýst hafi verið í þætti Kveiks rími illa við stefnu sjóðsins um ábyrgar fjárfestingar.

Málið verði tekið til skoðunar og beðið sé eftir viðbrögðum félagsins.

Í yfirlýsingu sem Eimskip gaf út í dag vegna málsins hafnar það ásökunum um að það hafi brotið lög um meðhöndlun úrgangs í tengslum við sölu á skipunum tveimu. Félagið telji sig hafa farið eftir lögum í einu og öllu við söluna.


Tengdar fréttir

Eimskip staðfestir kæru en hafnar ásökunum

Umhverfisstofnun hefur kært Eimskip til embætti Héraðssaksóknara vegna meintra brota á lögum um meðhöndlun úrgangs. Félagið hafnar ásökunum um að hafa brotið lög við sölu á skipunum Goðafossi og Laxfossi.

Sleginn yfir því hvernig skipum er fargað

Guðmundur Ingi Guðbrandsson umhverfisráðherra segist vera sleginn vegna þess sem fram kom í þætti Kveiks í gær þar sem fjallað var um sölu og niðurrif tveggja skipa Eimskips á Indlandi.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×