Viðskipti innlent

Tölur sýna samdráttinn í ferðaþjónustunni

Tryggvi Páll Tryggvason skrifar
Kórónuveirufaraldurinn hefur haft mikil áhrif á ferðaþjónustuna hér á landi.
Kórónuveirufaraldurinn hefur haft mikil áhrif á ferðaþjónustuna hér á landi. Vísir/Vilhelm

Mikill samdráttur var í fjölda starfandi hjá fyrirtækjum og stofnunum í greinum ferðaþjónustunnar í júlí 2020 á milli ára. Það sama má segja um heildarlaunagreiðslur í ferðaþjónustu.

Þetta kemur fram á á vef Hagstofunnar sem birtir tölfræði þess efnis sem unnin er upp úr mánaðarlegri tilraunatölfræði um staðgreiðsluskyldar launatekjur og talnaefni um fjölda starfandi samkvæmt staðgreiðsluskrá Skattsins.

Á vef Hagstofunnar segir að árið 2020 hafi verið töluverðar breytingar á heildarlaunagreiðslum í ferðaþjónustu. Þrátt fyrir 10 prósent hækkun á milli júní og júlí voru heildarlaunagreiðslur um 31 prósent lægri í júlí 2020 en í júlí 2019.

Mynd/Hagstofa Íslands

Þá jókst fjöldi starfa í greinum ferðaþjónustunnar um tæp fjögur prósent á milli júní og júlí 2020, en hafði fækkað um tæp 33 prósent á milli ára.

„Við nánari skoðun á einkennandi greinum ferðaþjónustu sést að fjöldi starfandi við ferðaskrifstofur, ferðaskipuleggjendur og aðra bókunarþjónustu dróst saman um 43% og 44% starfandi við rekstur gististaða,“ segir á vef Hagstofunnar.

Þar kemur einnig fram að heildarlaunasumma staðgreiðsluskyldra launa á vinnumarkaðnum haf í heild sinni lækkað lítillega á milli júní og júlí 2020 eða um 0,8 prósent en breytingin á milli júlí 2019 og 2020 sé meiri, eða 3,1 prósent lækkun.

Fjöldi starfandi jókst um eitt prósent á milli mánaða en ef horft er til júlí 2019 fækkaði starfandi um tæplega fjögur prósent. Gera má ráð fyrir því að flestir sem misstu störf sín í mars eða apríl á þessu ári hafi fengið síðustu útborgun vegna uppsagnarfrests í júlí og ágúst. Því má ætla að breytingar á vinnumarkaði séu enn ekki komnar fram að fullu í gögnunum, að því er segir á vef Hagstofunnar.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×