Gjaldþrot frekar en „óhjákvæmileg skuldasöfnun“ Sunna Kristín Hilmarsdóttir skrifar 28. maí 2020 18:49 Halldór Þorkelsson, framkvæmdastjóri Capacent á Íslandi.
Stjórn ráðgjafafyrirtækisins Capacent óskaði í dag eftir gjaldþrotaskiptum „frekar en að freista þess að halda áfram rekstri með óhjákvæmilegri skuldasöfnun,“ eins og segir í tilkynningu frá Halldóri Þorkelssyni, framkvæmdastjóra Capacent, sem send var fjölmiðlum á sjötta tímanum í dag. Vísir greindi frá því í gærkvöldi að Capacent væri gjaldþrota. Þá náðist ekki í Halldór þrátt fyrir ítrekaðar tilraunir og hefur fréttastofa heldur ekki náð tali af honum í dag. Í tilkynningunni sem hann sendi segir að árið hafi farið vel af stað hjá félaginu en að þær aðstæður sem mynduðust í atvinnulífinu vegna kórónuveirufaraldursins hafi fljótt farið að segja til sín í rekstrinum þar sem tekjur féllu verulega. „Eftir þrotlausa vinnu síðustu vikur við að bjarga félaginu þar sem starfsmenn lögðust á eitt er staðan því miður sú að rekstrargrundvöllur félagsins er erfiður og erfitt að segja til um hversu hratt verulegur bati verður þar á. Stjórn félagsins hefur af þessum sökum í dag óskað eftir gjaldþrotaskiptum frekar en að freista þess að halda áfram rekstri með óhjákvæmilegri skuldasöfnun,“ segir í tilkynningu Capacent. Um fimmtíu manns störfuðu hjá fyrirtækinu sem sinnti meðal annars ráðgjöf varðandi ráðningar og stefnumótun hjá íslenskum fyrirtækjum.
Gjaldþrot Mest lesið Boða lækkanir í Bónus og Hagkaupum með nýju samstarfi Neytendur Simmi Vill festir kaup á Mosfellingi Viðskipti innlent Eftirlitið útiloki samruna Kviku og stærri banka Viðskipti innlent Kvika lækkar hressilega í fyrstu viðskiptum Viðskipti innlent Stundum þarf einfaldlega að segja: „Afsakaðu þetta“ Atvinnulíf Spá aukinni verðbólgu í apríl Viðskipti innlent Þrír bætast í eigendahópinn hjá LEX Viðskipti innlent Innkalla Smash Style hamborgara vegna salmonellu Viðskipti innlent Ársfundur Orkuveitunnar í beinni á Vísi Viðskipti innlent Markaðsstjóri Domino's á Íslandi hættur Viðskipti innlent Fleiri fréttir Stefna Rannís vegna neitunar um endurgreiðslu Ársfundur Orkuveitunnar í beinni á Vísi Simmi Vill festir kaup á Mosfellingi Innkalla Smash Style hamborgara vegna salmonellu Eftirlitið útiloki samruna Kviku og stærri banka Bein útsending: Staða orkumála vegna stríðsátaka í Mið-Austurlöndum Þrír bætast í eigendahópinn hjá LEX Spá aukinni verðbólgu í apríl Kvika lækkar hressilega í fyrstu viðskiptum Arion banki og Kvika blása af samrunann Bein útsending: Ísland 2036: Fjártæknieyjan og framtíðin Markaðsstjóri Domino's á Íslandi hættur Jóhann Ingi til Securitas Umsóknum synjað og kurr í greininni Gagnastuldur af Booking sé fullkomið hráefni í markviss netsvik Heimilar ráðherra að ákvarða hámarksverð eldsneytis Vilja að skattahvatar fyrir tækni- og hugverkaiðnað verði festir í sessi Ríflega 7.500 sóttu um 200 sumarstörf Ráðinn framkvæmdastjóri Betri samgangna Eimskip ákært vegna sölu tveggja skipa Yngri en 30 ára neikvæðust í garð annarra samgöngumáta en einkabíls Máttu fella úr gildi skráningu Stripadvisor Spá enn vaxtahækkun í maí Valdís tekur við sem formaður KÍÓ Lækka vask á eldsneyti og sjá til þess að verðlækkanir skili sér strax Nýr forstjóri Deloitte fundinn Fyrirkomulagið beinlínis til að komast fram hjá lögum Kynna aðgerðir gegn verðbólgu á morgun Origo kaupir Maven Áfrýja og segja dóminn ekki skýra viðvarandi óvissu Sjá meira