Staðfestir dauða Baghdadi: Króaður af og sprengdi sig og þrjú börn í loft upp Tryggvi Páll Tryggvason skrifar 27. október 2019 13:22
Donald Trump, forseti Bandaríkjanna, staðfesti nú rétt í þessu að Abu Bakr al-Baghdadi, leiðtogi ISIS, hafi látist í aðgerð sérsveita Bandaríkjahers í norðurhluta Sýrlands í nótt. Bandarískir fjölmiðlar greindu frá því í morgun að að Baghdadi hafi látist í aðgerðunum en opinber staðfesting hafði ekki borist, þangað til nú. Trump hafði boðað til blaðamannafundar klukkan eitt í dag að íslenskum tíma þar sem koma átti á framfæri „meiriháttar“ tilkynningu í utanríkismálum. Var fastlega gert ráð fyrir því að efni fundarins myndi snúast um Baghdadi, reyndist raunin. „Abu Bakr al-Baghdadi er látinn,“ sagði Trump á blaðamannafundi sem horfa má á hér fyrir neðan. Trump sagði Baghdadi hafa sprengt sjálfan sig í loft upp eftir að hafa verið króaður af. Sagði Trump að Baghdadi hafi sprengt sjálfan sig í loft upp ásamt þremur börnum. Baghdadi hafði verið lengi í felum en hann hafði stýrt ISIS og forverum þess frá árinu 2010, líkt og ítarlega var fjallað um hér.Eftir sigra ISIS sumarið 2014 steig Baghdadi í pontu í Nour al-Din moskunni í Mosul og lýsti yfir stofnun kalífadæmis Íslamska ríkisins í Írak og Sýrlandi.
Andlát Bandaríkin Donald Trump Sýrland Tengdar fréttir Leiðtogi ISIS sagður hafa sprengt sig í loft upp í miðri aðgerð sérsveita Bandaríkjahers Fjölmiðlar í Bandaríkjunum hafa greint frá því í morgun að Abu Bakr al-Baghdadi, leiðtogi ISIS, hafi látist í sérstakri aðgerð sérsveita Bandaríkjahers í Idlib-héraði í norðurhluta Sýrlands. Búist er við tilkynningu frá Bandaríkjaforseta klukkan eitt í dag að íslenskum tíma. 27. október 2019 07:27 Mest lesið Fólk að skila sér heim eftir rassskellingu Innlent „Stefnum að því að koma meira en tvíefld til baka“ Innlent Gluggar þaktir klósettpappír og túrblóð í lakinu: „Aldrei séð annað eins“ Innlent Alltaf jafn óþægilegt að heyra af nálægri árás Innlent Nýja brúin átti að bæta flæðið: Mislæga lausnin vék fyrir ljósum Innlent Þungt högg í magann með tvíburastelpur á vökudeild Innlent Kvöldfréttir Sýnar í beinni Innlent Tjaldsvæðisgestir vöknuðu við að þyrla lenti á vellinum Innlent „Mér finnst þau komin í ansi mikla meðvirkni með þessu félagi“ Innlent Ferðamaðurinn fundinn heill á húfi á Suðurlandi Innlent Fleiri fréttir Sádar verði að viðurkenna tilvist Ísrael Slapp naumlega frá hlébarða í vínbúð Hótar Hútum vegna árása á flutningaskip Hútar réðust á olíuflutningaskip frá Sádi Arabíu Réttarhöld yfir Maduro hefjast í júní á næsta ári Bandaríkin og Sádi-Arabía undirrita kjarnorkusaming „Dr. Jihad“ sem talinn var dáinn vill aftur til Ástralíu Gervigreindarlíkan framkvæmdi netárás óumbeðið Rústa brú eða orkuveri fyrir hverja árás á Hormússundi Fyrirsætuveiðari Epsteins fannst látinn Vill að Infantino stýri Sameinuðu þjóðunum Rýnt í deilurnar: Hver er nýr yfirherforingi Úkraínu? Vill billjónir vegna stríðsins og reifst við þingmenn Frakkar lögleiða samfélagsmiðlabann barna Eigandi Michelin-staðar ákærður fyrir notkun maura í mat Undirrita samkomulag sem opnar á úranauðgun Sáda Utanríkisráðherrann lýsir árásunum sem urðu Khamenei að bana Yfirhershöfðingja Úkraínuhers vikið úr embætti Minnst tólf létust í árásum Ísraelshers Handtakan þyrfti að byggja á alþjóðalögum Widdecombe slegin með hamri tuttugu og einu sinni Hútar hóta Sádum og ráðist á Íran tíundu nóttina í röð Fundar með fjölda herforingja í skugga mótmæla Ortega segir engar frekari kosningar verða haldnar í Níkaragva Varnarmálaráðherrann verður fjármálaráðherra og Miliband utanríkisráðherra Ákærður fyrir morðið á Widdecombe Tíu látnir eftir árásir Rússa á flutningaskip Skoða að auka umfang árása enn frekar Vill færa Bretum von á nýjan leik Auka þrýstinginn á Taívan verulega Sjá meira
Leiðtogi ISIS sagður hafa sprengt sig í loft upp í miðri aðgerð sérsveita Bandaríkjahers Fjölmiðlar í Bandaríkjunum hafa greint frá því í morgun að Abu Bakr al-Baghdadi, leiðtogi ISIS, hafi látist í sérstakri aðgerð sérsveita Bandaríkjahers í Idlib-héraði í norðurhluta Sýrlands. Búist er við tilkynningu frá Bandaríkjaforseta klukkan eitt í dag að íslenskum tíma. 27. október 2019 07:27