Viðskipti innlent

Guðjón nýr upplýsingafulltrúi ISAVIA

Atli Ísleifsson skrifar
Guðjón Helgason hefur starfað sem samskiptastjóri Öryrkjabandalags Íslands frá 2016.
Guðjón Helgason hefur starfað sem samskiptastjóri Öryrkjabandalags Íslands frá 2016. Öryrkjabandalagið
Guðjón Helgason hefur verið ráðinn upplýsingafulltrúi Isavia. Guðjón tekur við starfinu af Guðna Sigurðssyni sem gengt hefur starfinu frá því í maí 2015, en hann hefur ákveðið að hefja nám í háskóla erlendis á næstunni.

Í tilkynningu frá ISAVIA segir að Guðjón hafi starfað sem samskiptastjóri Öryrkjabandalags Íslands frá 2016 en hann var áður fréttamaður um langt skeið.

„Hann hóf störf á Fréttastofu Ríkisútvarpsins sumarið 2002 og starfaði þar með hléum til ársloka 2004. Þá tók hann við starfi kynningar- og alþjóðafulltrúa hjá Kennaraháskóla Íslands. Í byrjun árs 2006 tók hann til starfa sem fréttamaður hjá 365 miðlum og vann þá á Stöð 2, Bylgjunni og Vísi.is. Í september 2009 hóf hann störf sem fréttamaður í erlendum fréttum á sameinaðri fréttastofu RÚV. Guðjón starfaði einnig um skeið sem fréttaritari á Íslandi fyrir alþjóðlegu fréttaveituna Associated Press. Guðjón lauk BA námi í stjórnmálafræði frá Háskóla Íslands 2002 og meistaranámi í alþjóðasamskiptum frá Háskólanum í Essex á Englandi 2005,“ segir í tilkynningunni.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×