Siggeir Vilhjálmsson hefur tekið við starfi forstöðumanns Viðskiptalausna á Einstaklingssviði Landsbankans og verður hann jafnframt staðgengill framkvæmdastjóra sviðsins.
Samkvæmt fréttatilkynningu frá Landsbankanum mun Siggeir leiða þróun og hagnýtingu stafrænnar tækni í einstaklingsviðskiptum með það að markmiði að efla þjónustu bankans.
Siggeir lauk prófi í kerfisfræði frá Tölvuháskólanum árið 1998, B.Sc.-gráðu í tölvunarfræði með viðskiptafræði sem aukagrein frá Háskólanum í Reykjavík árið 2001 og MBA-gráðu frá Háskóla Íslands árið 2008.
Siggeir hefur verið forstöðumaður á Fyrirtækjasviði Landsbankans frá árinu 2010 og undanfarin ár hefur hann stýrt Viðskiptalausnum fyrirtækja. Hann hóf störf við hugbúnaðargerð hjá Landsbankanum árið 1998 en hefur að mestu unnið við vöruþróun og viðskiptastýringu hjá bankanum frá árinu 2008.
Siggeir Vilhjálmsson ráðinn forstöðumaður Viðskiptalausna hjá Landsbankanum
Sylvía Rut Sigfúsdóttir skrifar

Mest lesið

Þriggja ára fangelsi og tveggja milljarða sekt
Viðskipti innlent

Stofnandinn búinn að eignast Mandi á ný
Viðskipti innlent

Að tilkynna vinnufélaga til lögreglu
Atvinnulíf

Matvælastofnun gerir ekki athugsemdir við kjötvinnslu í Álfabakka
Viðskipti innlent


Kínverjar svara fyrir sig og hækka enn tolla á bandarískar vörur
Viðskipti erlent


Órói á mörkuðum heldur áfram og gullverð aldrei hærra
Viðskipti erlent

Hækkar tolla á Kína aftur í 145 prósent
Viðskipti erlent

Prada kaupir Versace á 183 milljarða króna
Viðskipti erlent