Stjórnarandstaðan hefði getað fellt búvörusamninginn á þingi
Breytingar á búvörulögum, sem eru forsenda mjög umdeildra búvörusamninga, voru samþykktar á þingi á þriðjudag. Nítján þingmenn sögðu já, sjö þingmenn sögðu nei en sextán þingmenn sem í salnum voru sátu hjá. Tólf þeirra voru þingmenn stjórnarandstöðunnar og atkvæði hefðu fallið jöfn ef sá hópur hefði hafnað samningunum. Fjórir þingmenn Sjálfstæðisflokksins sátu einnig hjá, þau Birgir Ármannsson, Guðlaugur Þór Þórðarson, Hanna Birna Kristjánsdóttir og Ragnheiður Ríkharðsdóttir.
„Aðrir í stjórnarandstöðunni hafa leyft sér að gagnrýna ýmislegt varðandi þessa búvörusamninga en svo kemur í ljós að þeir eru í raun með þeim. Með hjásetu gáfu þeir málinu brautargengi. Það kom mér svo sem ekki á óvart með Vinstri græn því ég heyrði á málflutningi þeirra að þau voru ekkert á móti þessum búvörusamningum. En það kom mér á óvart að ýmsir hjá Samfylkingunni og Pírötum sem töluðu mjög digurbarkalega sitja svo hjá. Ég skil ekki svona afstöðuleysi í jafn stóru máli,“ segir Björt.
Sigríður Á. Andersen, þingmaður Sjálfstæðisflokks, var eini stjórnarþingmaðurinn sem hafnaði samningunum. „Ég tel að þarna sé engin tilraun gerð til að draga úr þessu ríkisstyrkta landbúnaðarkerfi. Það er annars vegar búið að semja um fjórtán milljarða beingreiðslur á ári næstu tíu árin og hins vegar er verið að tryggja, að mínu mati, hátt í þá upphæð í formi tollmúra.“
Kjósendur hafa farið mikinn í reiði sinni á samfélagsmiðlum síðustu tvo daga vegna málsins. Heimildir Fréttablaðsins herma jafnframt að þingmönnum stjórnarandstöðunnar berist ítarleg bréf og fyrirspurnir frá reiðum kjósendum vegna afstöðu þeirra í málinu.
„Við teljum eðlilegt að innlendur landbúnaður sé styrktur eins og alls staðar annars staðar er gert. Við vorum ekki ánægð með þennan samning en töldum breytingarnar sem voru gerðar á honum til bóta. Okkur fannst ekki fýsilegur kostur að núverandi samningur yrði bara framlengdur,“ segir Katrín Jakobsdóttir, formaður Vinstri grænna. Hún segir að núgildandi samningur hefði verið framlengdur um eitt ár ef nýjum búvörusamningum hefði verið hafnað.
Oddný Harðardóttir, formaður Samfylkingar, segir að þingflokkur sinn styðji ekki samningana.
„Það er bara mjög algengt að gera þetta. Ef þú nærð fram einhverju eða það er eitthvað í málinu sem þú vilt ekki segja nei við, þá situr þú hjá. Við fengum í gegnum nefndarvinnuna að það yrði farið strax í endurskoðun.“
Fréttin birtist fyrst í Fréttablaðinu.
Tengdar fréttir
Segir þörf á að skilgreina betur hvers vegna búvörusamningar séu gerðir og hverju þeir eigi að skila
Guðlaugur Þór Þórðarson einn fjögurra þingmanna Sjálfstæðisflokksins sem sat hjá við afgreiðslu búvöruasamninga á þingi í gær segist ekki telja samninginn nægilega vel undirbyggðan.
Vill að þingsköp verði endurskoðuð vegna afgreiðslu búvörusamninga
Ólína Kjerúlf Þorvarðardóttir þingmaður Samfylkingarinnar tók til máls undir liðnum fundarstjórn forseta á Alþingi í dag og gerði að umtalsefni atkvæðagreiðsluna um búvörusamningana á þingi í gær.
„Hvernig geta sumir æst sig svona yfir búvörusamningum?“
Fyrrverandi forsætisráðherra líkti búvörusamningum við kjarasamninga í Facebook færslu sinni í dag.
Skorað á Guðna að vísa búvörusamningi í þjóðaratkvæðagreiðslu
Undirskriftasöfnun á netinu fer af stað með látum.
Sérfræðingarnir sem geta talað um allt safnast oft fyrir sunnan
Sauðfjárbóndi á Austfjörðum sér fram á verulega tekjulækkun með nýjum búvörusamningi. Kúabóndi segist heldur ekki koma vel út.