Fótbolti

Trezeguet hættur með landsliðinu

Elvar Geir Magnússon skrifar
Trezeguet er ekki sáttur við að Domenech verði áfram þjálfari franska landsliðsins.
Trezeguet er ekki sáttur við að Domenech verði áfram þjálfari franska landsliðsins.

Sóknarmaðurinn David Trezeguet hefur ákveðið að hætta að leika með landsliði Frakklands. Ástæðan er sú ákvörðun franska knattspyrnusambandsins að halda trausti við Raymond Domenech, þjálfara liðsins.

Trezeguet var ekki valinn í landsliðshóp Domenech fyrir Evrópumótið en þar olli franska liðið miklum vonbrigðum. Hann ætlar nú að einbeita sér að því að spila fyrir félagslið sitt, Juventus á Ítalíu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×