Fótbolti

Milan gæti grætt vel á Beckham

NordicPhotos/GettyImages

Það gæti gefið ítalska félaginu AC Milan væna summu í kassann að ganga frá lánssamningi við enska landsliðsmanninn David Beckham.

Beckham mun fara til Milan sem lánsmaður frá LA Galaxy í nokkra mánuði og þegar berast fréttir frá Ítalíu um æsta stuðningsmenn sem farnir séu að merkja Milan-treyjur sínar með nafni Englendingsins.

Prófessor við virtan háskóla á Englandi sagði í samtali við breska blaðið Sun að Milan gæti átt von á allt að 10 milljónum punda í tekjur af því að fá Beckham í sínar raðir.

Beckham er gríðarlegt vörumerki á heimsvísu og sagði prófessorinn að heimskreppan hefði ekkert að segja í þessu sambandi.

Harry Redknapp, knattspyrnustjóri Portsmouth, segist hafa mikinn áhuga á að fá Beckham í sínar raðir og benti á að kryddpían Victoria, kona Beckham, gæti alveg eins verslað fínar vörur í búðum í Portsmouth eins og Mílanó.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×