Fótbolti

Moratti: Mourinho er sá besti

Elvar Geir Magnússon skrifar
Jose Mourinho.
Jose Mourinho.

Massimo Moratti hrósar Jose Mourinho í hástert eftir góða byrjun Inter á tímabilinu. Eftir að hafa gert jafntefli við Sampdoria í fyrstu umferð hefur Inter unnið Catania, Torino og Panathinaikos.

„Mourinho hefur náð að búa til sterka liðsheild á ótrúlega skömmum tíma. Liðið er að leika vel og ná réttum úrslitum. Þegar ég fékk hann til félagsins var ég viss um að ég væri að fá þann besta," sagði Moratti.

„Það hefur verið stígandi í leik liðsins og við eigum bara eftir að verða betri."








Fleiri fréttir

Sjá meira


×