Formúla 1
79 80 81 82 83 84 85 86 87 … 151 ›
Formúlu 1 meistaraliðinu fagnað á heimaslóðum Um 60.000 manns fögnuðu Formúlu 1 meistaraliði Red Bull í Milton Keynes í Bretlandi í gær þegar meistari ökumanna, Sebastian Vettel og Mark Webber óku bílum liðsins á götum bæjarins. Red Bull liðið er með aðsetur í bænum. Ökumennirnir tveir og Christian Horner, yfirmaður liðsins tóku á móti verðlaunum á verðlaunahátið FIA, alþjóðabílasambandsins í Nýju Delí í Indlandi á föstudagskvöld. Formúla 1 11.12.2011 14:30
Vettel tók á móti heimsmeistarabikarnum Sebastian Vettel tók á móti heimsmeistarabikar ökumanna í Fornúlu 1 á sérstakri verðlaunahátíð FIA, alþjóðabílasambandsins sem fór fram í Nýju Delí í Indlandi í gærkvöldi. Jean Todt forseti FIA afhenti Vettel bikarinn, en Vettel tryggði sér meistaratitilinn í Formúlu 1 annað árið í röð á þessu keppnistímabili með Red Bull liðinu. Formúla 1 10.12.2011 00:01
Grosjean keppir með Lotus Renault á næsta ári Romain Grosjean sem hefur verið varaökumaður Renault liðsins hefur verið ráðinn sem keppnisökumaður liðsins á næsta ár. Þá mun liðið heita Lotus Renault. Grosjean mun keppa við hlið Kimi Raikkönen, sem var tilkynntur sem ökumaður liðsins á dögunum. Formúla 1 9.12.2011 14:30
FIA staðfesti að 20 Formúlu 1 mót verða á dagskrá 2012 FIA, alþjóðabílasambandið staðfesti í dag að 20 Formúlu 1 mót verða á dagskrá á næsta ári og verður væntanlega nýtt mótssvæði tekið í notkun í Austin í Texas í Bandaríkjunum. Formúla 1 7.12.2011 16:02
Vettel vill verja titilinn á næsta ári Formúlu 1 meistarinn Sebastian Vettel vill verja Formúlu 1 meistaratitilinn á næsta ári með Red Bull liðinu. Vettel sagði þetta á verðlaunaafhendingu í London í gærkvöldi, en fyrr um helgina hafði hann keppt í kappaksturskeppni meistaranna í Þýskalandi. Vettel varð meistari Formúlu 1 ökumanna í ár og Red Bull liðið tryggði sér meistaratitil bílasmiða. Formúla 1 5.12.2011 17:30
Pastor Maldonado áfram hjá Williams Pastor Maldonado verður áfram ökumaður Williams Formúlu 1 liðsins á næsta ári og Valteri Bottas verður varaökumaður liðsins. Maldonado byrjaði að keppa með Williams á þessu ári við hlið Rubens Barrichello. Formúla 1 2.12.2011 13:30
FIA staðfesti 15 af 24 Formúlu 1 ökumönnum fyrir næsta tímabil Sjö Formúlu 1 lið hafa tilkynnt hvaða ökumenn keppa með liðunum á næsta ári til FIA, alþjóðabílasambandsins. Eitt lið hefur tilkynnt annan ökumanninn, en fjögur lið hafa ekki tilkynnt hvaða ökumenn keyra með liðunum samkvæmt lista sem FIA sendi frá sér í gær. Samkvæmt listanum eru því 15 af 24 ökumönnum sem keppa á næsta ári staðfestir, enn sem komið er. Formúla 1 1.12.2011 14:15
Raikkönen: Ég tapaði aldrei ástríðunni fyrir Formúlu 1 Kimi Raikkönen mætir til keppni í Formúlu 1 á næsta ári með Lotus Renault liðinu, eftir að hafa keppt tvö ár í rallakstri. Hann ók síðast með Ferrari árið 2009 í Formúlu 1 og var bæði í viðræðum við forráðamenn Williams og Renault um næsta tímabil, en valdi að ganga til liðs við síðarnefnda liðið, sem mun heita Lotus Renault á næsta keppnistímabili. Formúla 1 30.11.2011 14:00
Sex meistarar keppa saman í fyrsta skipti í sögu Formúlu 1 Sex ökumenn sem hafa orðið heimsmeistarar í Formúlu 1 keppa í íþróttinni á næsta ári. Það hefur ekki komið fyrir áður að jafn margir Formúlu 1 meistarar aki í mótaröðinni á sama keppnistímabili, en keppt hefur verið í Formúlu 1 síðan 1950. Formúla 1 29.11.2011 18:15
Kimi Raikkönen keppir aftur í Formúlu 1 2012 Finninn Kimi Raikkönen, fyrrum heimsmeistari í Formúlu 1, hefur samið við Renault liðið um keppa með því næstu tvö árin. Raikkönen varð heimsmeistari með Ferrari árið 2007, en hætti í Formúlu 1 í lok ársins 2009 og hefur keppt í rallakstri síðan. Formúla 1 29.11.2011 09:42
Horner segir að sigurinn muni auka sjálfstraust Webber Christian Horner, yfirmaður Red Bull Formúu 1 liðsins telur að sigur Mark Webber í Formúlu 1 mótinu í Brasilíu í gær sé gott veganesti fyrir hann inn í veturinn, en næsta keppnistímabil hefst í mars 2012. Webber vann eitt mót á keppnistímabilinu á meðan liðsfélagi hans, Sebastian Vettel vann ellefu mót og tryggði sér heimsmeistaratiti ökumanna. Formúla 1 28.11.2011 22:00
Charles Pic ekur með Marussia liðinu 2012 Marussia Virgin Formúlu 1 liðið hefur samið við Charles Pic frá Frakklandi um að aka með liðunu 2012 ári, en Timo Glock hefur þegar gert samning um að keppa áfram með liðinu á næsta ári. Marussia Virgin hefur fengið leyfi FIA til að breyta nafni liðsins fyrir næsta tímabil og bílar liðsins munu heita Marussia á næsta ári, í stað Virgin. Liðið er að hluta til í eigu rússneska sportbílaframleiðandans Marussia. Formúla 1 28.11.2011 17:30
Vettel segir tímabilið hafa verið undarvert Sebastian Vettel var ánægður að að Red Bull liðið lauk Formúlu 1 keppnistímabilinu með sigri í Brasilíu í dag, þó hann hefði fallið Mark Webber í skaut. Vettel sagði að Webber hefði átt sigurinn skilið. Vettel vann elleftu mót ár keppnistímabilinu með Red Bull liðinu og varð meistari ökumanna annað árið í röð og lið hans meistari bílasmiða. Formúla 1 27.11.2011 22:54
Webber: Alltaf gaman að vinna Mark Webber hjá Red Bull liðinu vann sinn fyrsta sigur á keppnistímabilinu þegar hann kom fyrstur í endamark í brasilíska Formúlu 1 kappakstrinum í dag. Webber sagði sigurinn mikilvægan fyrir sig, en mótið í Brasilíu var það síðasta á keppnistímabilinu í Formúlu 1. Formúla 1 27.11.2011 22:02
Webber vann í Brasilíu Mark Webber hjá Red Bull varð hlutskarpastur í Brasilíukappakstrinum í Formúlunni í dag. Þetta var lokamót tímabilsins og fyrsti sigur Webber. Formúla 1 27.11.2011 18:06
Vettel ánægður eftir hafa slegið met Sebastian Vettel hjá Red Bull Formúlu 1 liðinu var ánægður með árangurinn í tímatökunni í Brasilíu í dag. Hann náði besta tíma og sló met sem hann átti með Nigel Mansell hvað besta árangur í tímatöku á sama ári varðar. Formúla 1 26.11.2011 21:48
Vettel náði besta tíma í tímatökunni og setti nýtt met Sebastian Vettel á Red Bull náði besta tíma í Formúlu 1 tímatökunni á Jose Carlos Pace brautinni í Brasilíu í dag. Hann varð 0.181 úr sekúndu á undan Mark Webber liðsfélaga sínum hjá Red Bull. Jenson Button náði þriðja besta tíma á McLaren. Formúla 1 26.11.2011 19:29
Vettel fljótastur á lokaæfingunni og getur slegið met í tímatökunni Sebastian Vettel á Red Bull náði besta tíma á lokaæfingu Formúlu 1 liða á Jose Carlos Pace brautinni í Brasilíu í dag. Jenson Button á McLaren varð annar og var 0.087 úr sekúndu á eftir Vettel, en Mark Webber á Red Bull náði þriðja besta tíma. Hann var 0.137 úr sekúndu á eftir Vettel. Formúla 1 26.11.2011 14:21
Hamilton fljótastur á annarri æfingunni í dag Lewis Hamilton á McLaren náði besta tíma á seinni æfingu Formúlu 1 liða á Jose Carlos Pace brautinni í Brasilíu í dag. Hann varð 0.167 úr sekúndu á undan Sebastian Vettel á Red Bull, en Mark Webber á Red Bull varð 0.195 á eftir Hamilton. Webber hafðii áður náð besta tíma á fyrri æfingu dagsins. Formúla 1 25.11.2011 17:41
Webber fljótastur á fyrstu æfingunni fyrir lokamótið í Brasilíu Mark Webber á Red Bull náði besta tíma á fyrstu æfingu Formúlu 1 liða á Jose Carlos Pace brautinni í Brasilíu í dag. Síðasta Formúlu 1 mót ársins fer fram á brautinni á sunnudaginn. Formúla 1 25.11.2011 13:57
Kubica ekki tilbúiinn að keppa í Formúlu 1 í upphafi næsta tímabils Robert Kubica tilkynnti Formúlu 1 liði Renault í dag, að þrátt fyrir að hann sé í öflugri endurhæfingu, þá sé oft snemmt fyrir að hann skuldbinda sig til að keppa í Formúlu 1 í upphafi næsta keppnistímabils. Kubica meiddist í rallkeppni s.l. vetur og gat ekki keppt með Renault á þessu keppnistímabili og liðið hefur beðið eftir fréttum af Kubica vegna næsta árs. Kubica telur sig þurfa lengri tíma til að ná fullri heilsu. Formúla 1 23.11.2011 17:15
Barrichello vill ekki hætta í Formúlu 1 Rubens Barrichello verður á heimavelli í Formúlu 1 mótinu í Brasilíu um næstu helgi með Williams liðinu, en liðið hefur ekki framlengt samning hans til næsta árs enn sem komið er svo vitað sé. Hefur liðið m.a. rætt við Kimi Raikkönen um möguleikann á því að aka með liðinu á næsta ári. Formúla 1 22.11.2011 17:15
Pedro de la Rosa keppir með HRT liðinu næstu tvö árin Spánverjinn Pedro de la Rosa hefur skrifað undir tveggja ára samning við HRT Formúlu 1 liðið sem keppnisökumaður og ekur með liðinu 2012 og 2013. Hann hefur starfað með McLaren liðinu frá 2003 sem vara- og þróunarökumaður og keppti í nokkrum mótum með liðinu, auk þess að aka með Sauber um tíma sem keppnisökumaður. Formúla 1 21.11.2011 17:45
Vergne fljótastur þriðja daginn í röð og ánægður með frammistöðu sína Jean Eric Vergne frá Frakklandi reyndist fljótastur í dag á æfingu Formúlu 1 liða á Yas Marina brautinni í Abú Dabí. Hann náði líka besta tíma á mánudag og þriðjudag, en æfingadagurinn í dag var sá síðasti á dagskrá. Æfingarnar notuðu liðin m.a. til að gefa ungum ökumönnum tækifæri um borð bílum sínum. Vergne var með besta tíma í dag á undan Bretanum Sam Bird á Mercedes, en Frakkinn Jules Bianchi náði þriðja besta tíma á Ferrari. Formúla 1 17.11.2011 17:24
Bottas vonast til að hafa sannað sig fyrir Williams Valtteri Bottas frá Finnlandi ók Williams Formúlu 1 bíl á æfingum í Abú Dabí i gær og fyrradag, en Williams liðið er enn að skoða hvaða ökumaður verður hjá liðinu á næsta ári við hlið Pastor Maldonado. Bottas er einn af mörgum ungum ökumönnum sem hefur fengið að spreyta sig á æfingum Formúlu 1 liða í Abú Dabí. Formúla 1 17.11.2011 13:21
Bianchi í mikilvægri vinnu með Ferrari Formúlu 1 lið héldu áfram að prófa unga ökumenn um borð í bílum sínum á Abú Dabí brautinni í dag eins og í gær. Frakkinn Jean Eric Vergne a Red Bull náði aftur besta tíma á Yas Marina brautinni. Landi hans Jules Bianchi sem er varaökumaður Ferrari náði næstbesta tíma. Ökmenn eru m.a. að prófa Pirelli dekk fyrir næsta ár á æfingunum í Abú Dabí. Formúla 1 16.11.2011 20:30
Williams staðfestir viðræður við Raikkönen Frank Williams hefur staðfest ári í viðtali við MTV3 sjónvarpsstöðina í Finnlandi að lið hans sé í viðræðum við Finnann Kimi Raikkönen um að aka með liðinu í Formúlu 1 á næsta ári. Oscar Saari, sem er Formúlu 1 sérfræðingur stöðvarinnar ræddi við Williams um áhuga hans á Raikkönen og hann sagði að það væri ekkert leyndarmál að liðið hefði mikinn áhuga á Raikkönen Formúla 1 16.11.2011 11:45
Formúlu 1 lið að meta hæfileika ungra ökumanna Formúlu 1 lið gáfu ungum ökumönnum tækifæri á Formúlu 1 tveimur æfingum í Abú Dabí í dag og verða æfingar næstu tvo daga til viðbótar. Liðin nota æfingarnar til að meta hæfileika ungra ökumanna með framtíðina í huga eða til að prófa ýmislegt í búnaði bíla sinna. Formúla 1 15.11.2011 17:48
Enn óljóst með endurkomu Kubica Eric Boullier framkvæmdarstjóri Renault Formúlu 1 liðsins segir að liðið sé enn að bíða og sjá hvort Robert Kubica keppi með liðinu i Formúlu 1 á næsta ári. Kubica slasaðist í rallkeppni s.l. vetur og gat ekki keppt með liðinu í ár og hefur verið í endurhæfingu eftir óhappið. Formúla 1 15.11.2011 10:15
Möguleiki Vettel á að jafna met Schumacher úr sögunni í ár Christian Horner, yfirmaður meistaraliðs Red Bull sagði Sebastian Vettel hafa verið vonsvikinn eftir keppnina í Abu Dabí í gær eins og allt liðið. Vettel féll úr leik í fyrsta hring eftir að afturdekk hvellsprakk og engin skýring hefur enn fundist á því hvað var þess valdandi. Vettel var í fyrsta sæti þegar dekkið sprakk. Formúla 1 14.11.2011 15:22