Forsetakosningar í Bandaríkjunum 2020

Starfsfólk Hvíta hússins hyggst verja Trump með kjafti og klóm
Starfsmannastjóri og fjölmiðlafulltrúi Hvíta hússins halda því báðir fram að fjölmiðlar stundi "ósanngjarnar árásir“ gagnvart Donald Trump en ráðgjafi Trump finnst mikilvægt að starfslið Hvíta hússins komi öðrum "mögulegum staðreyndum“ út í umræðuna.

„Maður verður að vona það besta“
Íslenskur veðurfræðingur og sérfæðingur í loftslagsmálum segir að alþjóðasamfélagið verði að vona það besta og treysta á að alþjóðasamningar hefti stefnu Donalds Trump í að draga úr öllum áætlunum og fjárútlátum í málaflokka tengdum aðgerðaáætlunum í loftslagsmálum. Íslendingar séu í aðstöðu til að láta til sín taka.

Theresa May hittir Trump í næstu viku: Er óhrædd við að bjóða honum byrginn
Theresa May, forsætisráðherra Bretlands mun hitta Donald Trump, forseta Bandaríkjanna í Hvíta húsinu næstkomandi föstudag og segist vera óhrædd við að tjá sig muni Trump segja eða gera eitthvað sem henni þykir vera ótækt.

Ísraelar nýta sér embættistöku Trump og hefja uppbyggingu landnemabyggða
Ísraelar höfðu áður slegið frekari uppbyggingu landnemabyggða á frest vegna þess að ríkisstjórn Barack Obama var uppbyggingunni andsnúin.

Terta Trumps var eftirlíking af tertu Obama
Duff Goldman, bakari tertu Obama, vakti athygli á líkindunum á Twitter.

Mágur Ivönku Trump mætti á mótmælin í Washington
Joshua Kushner er yfirlýstur stuðningsmaður Hillary Clinton

Páfinn varar við að einræðisherrar líkt og Hitler komist aftur til valda
Frans páfi varar við auknu lýðskrumi í heiminum og hættunum sem felast í því að einræðisherrar á borð við Adolf Hitler komist til valda vegna óvissu og óróa í stjórnmálum.

Karl Garðarsson segir ekki gáfulegt að gera fjölmiðla að óvinum sínum
Fyrrverandi þingmaður Framsóknar segir útspil fjölmiðlafulltrúa Hvíta hússins og Donalds Trumps vera athyglisvert.

Æ fleiri konur segja Trump hafa kynferðislega áreitt sig
Lýsingar kvenna sem saka Donald Trump, forseta Bandaríkjanna um að hafa kynferðislega áreitt sig þykja sláandi líkar hans eigin lýsingum á hegðun sinni í garð kvenna í myndbandi frá því í október. Fjöldi kvenna sem sakað hafa Trump um kynferðislegt áreiti hleypur nú á tugum.

Le Pen: "Þjóðernishyggja er stefna framtíðarinnar“
Marine Le Pen, leiðtogi franska þjóðernishyggjuflokksins Front National segir að árið 2017 verði árið þar sem Evrópubúar "muni vakna“ á samkomu leiðtoga þjóðernissinnaðra stjórnmálaflokka í Þýskalandi. Þingkosningar munu fara fram á árinu í Hollandi, Frakklandi og í Þýskalandi og eru leiðtogar þessara flokka vongóðir um góðan árangur í þeim.

Forsíða Fréttablaðsins vakti athygli Time
Stórritið Time birti í dag frétt þar sem búið er að taka saman fjöldamargar forsíður hvaðanæva að sem Trump prýðir en þeirra á meðal er forsíða Fréttablaðsins í morgun.

Margmenni á Austurvelli mótmælti Donald Trump: „Eigum að sýna börnunum okkar að hatur eigi aldrei rétt á sér“
Xárene Eskander skipulagði mótmæli í Reykjavík í dag gegn Donald Trump vegna þess að henni finnst mikilvægt að hatur í garð kvenna og annarra minnihlutahópa sé ekki talið venjulegt fyrir framtíðarkynslóðum. Fjöldi fólks mætti á mótmælin.

Bein útsending: Víglínan
Hefst klukkan 12:20.

Trump lætur til sín taka á fyrstu dögum í embætti
Donald Trump hefur tekið sín fyrstu skref sem forseti Bandaríkjanna með því að undirrita tilskipun sem miðar að því að endurskilgreina og endurgera heilbrigðsstefnu Bandaríkjanna sem einnig gengur undir nafninu Obamacare.

Konur um allan heim mótmæla Donald Trump
Konur halda mótmælagöngur víða um heim í dag gegn Donald Trump, 45. forseta Bandaríkjanna. Búist er við því að yfir hálf milljón kvenna komi saman í Washington DC, höfuðborg Bandaríkjanna þar sem Trump sór embættiseið að bandarísku stjórnarskránni er hann tók við embætti í gær.

Forsetinn setur Bandaríkin í fyrsta sæti
Donald John Trump varð 45. forseti Bandaríkjanna í gær. Í innsetningarræðu sinni hvatti hann til sameiningar undir bandaríska fánanum. Forsetinn sagði að Bandaríkin og bandaríska þjóðin ættu alltaf að vera í fyrsta sæti. Dagar innantó

Donald Trump bað viðstadda að klappa fyrir Clinton
Donald Trump sór embættiseið sinn fyrr í dag.

Melania Trump færði Michelle Obama gjöf
Netverjum þykir svipur Michelle ekki bera vott um gleði.

Mótmælendur brutu rúður og tókust á við lögreglu
Búist er við því að stærstu mótmælin verði haldin á morgun þar sem gert er ráð fyrir að um 200 þúsund manns muni mæta.

Innsetningarræða Trumps: „Frá þessum degi verða Bandaríkin sett í forgang“
Fyrsta ræða Donalds Trump í embætti forseta einkenndist af framsýni.

Donald Trump orðinn forseti Bandaríkjanna
Donald John Trump hefur tekið við embætti forseta Bandaríkjanna.

Melania Trump í ljósbláu í setningarathöfn eiginmannsins
Fataval tilvonandi forsetafrúarinnar þykir svipa til því sem Jaqueline Kennedy klæddist við setningarathöfnina 1961.

Ellen heiðraði Barack og Michelle Obama með stórkostlegu myndbandi
Donald Trump sver í dag embættiseið sem forseti Bandaríkjanna á tröppum þinghússins í höfuðborginni Washington.

Í beinni: Donald tekur við embætti forseta Bandaríkjanna
Donald Trump sver í dag embættiseið sem forseti Bandaríkjanna á tröppum þinghússins í höfuðborginni Washington.

Síðasti dagur Baracks Obama í embætti
Donald Trump, forseti Bandaríkjanna, sver embættiseið klukkan fimm að íslenskum tíma í dag

Geir H. Haarde verður viðstaddur innsetningarathöfn Trumps
Öllum sendiherrum erlendra ríkja í Washington-borg er boðið til embættistökunnar og er það bandaríska utanríkisráðuneytið sem heldur utan um skipulag þess

Misvísandi yfirlýsingar frá Trump
Guðlaugur Þór Þórðarson utanríkisráðherra segir að þrátt fyrir misvísandi yfirlýsingar Donalds Trump verðandi forseta Bandaríkjanna eigi hann ekki von á miklum stefnubreytingum af hálfu Bandaríkjamanna þegar kemur að varnarsamstarfi vestrænna ríkja.

Kvöldfréttir Stöðvar 2 í beinni
Fallað verður ítarlega um rannsókn lögreglu á hvarfi Birnu Brjánsdóttur en mennirnir sem grunaðir eru um að eiga aðild að hvarfi hennar neita sök.

Ralph Lauren sagður klæða Melaniu Trump fyrir forsetavígsluna
Margir hönnuðir hafa neitað að klæða nýju forsetafrúnna.

Þessi koma fram í tengslum við embættistöku Trump
Fjöldi tónlistarmanna mun koma fram á tónleikum í dag og á innsetningarathöfn Donald Trump sem fram fer á morgun.