Lífið

Chris Brown er reiður yfir gríni Aziz Ansari

Samúel Karl Ólason skrifar
Aziz Ansari og Chris Brown.
Aziz Ansari og Chris Brown. Vísir/Getty

Rapparinn og tónlistarmaðurinn Chris Brown brást reiður við því að grínistinn Aziz Ansari líkti honum við Donald Trump, forseta Bandaríkjanna. Ansari sagði aðdáendur og stuðningsmenn bæði Brown og Trump líta hjá verstu eiginleikum þeirra.

Með viðbrögðum sínum tókst Brown þó að festa samlíkinguna í sessi.

Ansari sagði þetta í uppistandi sínu í Saturday Night Live um helgina. Hægt er að sjá uppistandið hér að neðan en umræddur brandari er sagður eftir um eina og hálfa mínútu.

Chris Brown brást við með því að skella sér á samfélagsmiðla og notast við dass af rasisma til að gagnrýna Ansari. Donald Trump hefur verið mjög duglegur við að skammast yfir SNL á samfélagsmiðlum og hefur hann reglulega sett út á þættina og jafnvel kallað eftir því að framleiðslu þeirra verði hætt.

Chris Brown hefur lengi verið umdeildur og þá sérstaklega fyrir það að hafa gengið í skrokk á þáverandi kærustu sinni Rihönnu árið 2009.

Í færslu á Instagram, þar sem Chris Brown birti myndband af ummælum Ansari um sig og skrifaði (lauslega þýtt) : „Nei fjandinn. Vill einhver segja Alladin að yfirgefa lim minn.“ Færslu Brown má sjá hér að neðan.

FUCK NO!!!!!! Somebody tell ALADDIN HOP OFF MY DICK! .

A video posted by 1 YOU 2 HATE (@chrisbrownofficial) on






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.