Forsetakosningar í Bandaríkjunum 2020
1 2 3 4 5 6 7 8 … 69 ›
Óttast viðbrögð kjósenda við aðgerðum gegn rétti til þungunarrofs Repúblikanar hafa áhyggjur af því að afstaða flokksins til hertra reglna um þungunarrof og aðgerðir í þá átt, muni koma niður á flokknum í kosningum næsta árs. Þeir óttast að stefna flokksins í þessum málum höfði mjög til þeirra flokksmeðlima sem ákveða úrslit forvala í flokknum, en sé óvinsæl meðal almennra kjósenda. Erlent 15.4.2023 23:56
Trump malar gull á ákærunum Donald Trump, fyrrverandi forseti Bandaríkjanna, hefur safnað meira en 34 milljónum dala í kosningasjóð sinn á þessu ári. Fjárveitingar til hans jukust mjög eftir að hann var ákærður í New York í síðastan mánuði. Erlent 15.4.2023 18:45
Trump skellir skuldinni á Pence fyrir árásina á þinghúsið Donald Trump, fyrrverandi Bandaríkjaforseti, heldur því fram að Mike Pence, þáverandi varaforseti sinn, hefði getað komið í veg fyrir ofbeldi stuðningsmanna Trumps við þinghúsið fyrir tveimur árum með því að hjálpa honum að snúa við úrslitum forsetakosninganna. Erlent 13.3.2023 23:39
Gæti reynst erfitt að lögsækja Trump Michael Cohen, fyrrverandi einkalögmaður Donalds Trumps um árabil, mun bera vini fyrir sérstökum ákærudómstól í New York í dag. Trump sjálfum hefur einnig verið boðið að bera vitni fyrir þessum sama dómi vegna greiðslu hans til fyrrverandi klámmyndaleikkonu í aðdraganda forsetakosninganna 2016. Erlent 13.3.2023 13:44
Segir fjölmiðlafólk öfundsjúkt út í Tucker Carlson Kevin McCarthy, forseti Fulltrúadeildar Bandaríkjaþings, varði í gær þá ákvörðun sína að veita Tucker Carlson, hinum umdeilda þáttastjórnenda hjá Fox, einum aðgang að myndefni úr öryggismyndavélum þinghússins frá árásinni á þinghúsið þann 6. janúar 2021. Annað fjölmiðlafólk hefur einnig krafist aðgangs að myndefninu en McCarthy segir þau vera „öfundsjúk“. Erlent 1.3.2023 13:01
Murdoch viðurkennir að ýtt hafi verið undir lygar um kosningarnar Rupert Murdoch, ástralski auðjöfurinn sem á og rekur fjölmiðla um heiminn allan, viðurkenndi við vitnaleiðslur að þáttastjórnendur sjónvarpsstöðvarinnar Fox News, þeirrar vinsælustu í Bandaríkjunum, ýttu undir lygar Donalds Trump, fyrrverandi forseta um kosningarnar 2020. Murdoch viðurkenndi einnig að hafa ekki reynt að grípa inn í. Erlent 1.3.2023 07:01
Lögðu til ákærur í máli Trumps í Georgíu: „Þetta er ekki stuttur listi“ Ákærudómstóll í Georgíu sem rannsakað hefur Donald Trump, fyrrverandi forseta Bandaríkjanna, og bandamenn hans vegna afskipta þeirra af framkvæmd kosninga í ríkinu, hefur lagt til að nokkrir sem að málinu koma verði ákærðir. Erlent 22.2.2023 10:24
Stjörnur Fox efuðust bak við tjöldin um ásakanir um kosningasvindl Þáttastjórnendur og forsvarsmenn Fox News töluðu sín á milli um verulegar efasemdir um að umfangsmikið kosningasvindl hefði kostað Donald Trump sigur í forsetakosningunum 2020. Þau sögðust telja að viðmælendur þeirra eins og lögmaðurinn Sidney Powell væru að ljúga að áhorfendum þeirra. Engu að síður fjölluðu þau ítrekað um ásakanirnar og ýttu undir þær. Erlent 17.2.2023 11:02
Telja vitni hafa logið um tilraunir Trumps til að snúa úrslitunum Sérstakur ákærudómstóll sem var kallaður saman til þess að rannsaka tilraunir Donalds Trump, fyrrverandi Bandaríkjaforseta, til þess að snúa við úrslitum forsetakosninganna árið 2020 í Georgíu telur að sum vitni hafi framið meinsæri. Hann mælir með að saksóknari gefi út ákærur. Erlent 16.2.2023 17:51
Ákveða á næstu vikum hvort Trump verði ákærður Ákærudómstóll í Georgíu sem rannsakað hefur Donald Trump, fyrrverandi forseta Bandaríkjanna, vegna afskipta hans af framkvæmd kosninga í ríkinu, hefur lokið störfum. Ekki er ljóst hvort Trump verði ákærður en ákveða á seinna í mánuðinum hvort opinbera eigi skýrslu ákærudómstólsins eða ekki. Erlent 9.1.2023 19:49
Trump sagður hafa kveikt uppreisnarbálið Ábyrgðin á árás stuðningsmanna Donalds Trump á bandaríska þinghúsið í fyrra er á herðum eins manns: Trumps sjálfs. Þetta er niðurstaða þingnefndar sem rannsakaði árásina. Hún mælir með því að Trump verði bannað að gegna opinberu embætti aftur. Erlent 23.12.2022 09:10
Erfið vika í vændum hjá Trump Donald Trump, fyrrverandi forseti Bandaríkjanna, stendur frammi fyrir erfiðri viku. Þingnefnd mun mögulega leggja til að hann verði ákærður vegna árásarinnar á þinghúsið þann 6. janúar í fyrra og skattaskýrslur hans verða mögulega opinberaðar. Erlent 19.12.2022 15:48
Uppljóstrun Musks reyndist rýr í roðinu Elon Musk og blaðamaðurinn Matt Taibbi tístu um helgina um gögn frá Twitter sem fjölluðu um þá ákvörðun þáverandi forsvarsmanna fyrirtækisins um að banna frétt um Hunter Biden, son Joe Biden, núverandi forseta Bandaríkjanna. Erlent 5.12.2022 12:51
Setja ofan í við Trump sem vill víkja stjórnarskránni til hliðar Hvíta húsið gefur lítið fyrir yfirlýsingar Donalds Trump, fyrrverandi forseta og forsetaframbjóðenda, um að fella ætti stjórnarskrá Bandaríkjanna úr gildi og setja hann sjálfan aftur í embætti. Erlent 4.12.2022 10:25
Dómarar veita Trump enn eitt höggið Áfrýjunardómstóll hefur úrskurðað gegn Donald Trump, fyrrverandi forseta Bandaríkjanna, í dómsmálinu gegn honum vegna leynilegu skjalanna í Mar-a-Lago. Þrír alríkisdómarar sem skipa áfrýjunardómstólinn gagnrýndu einnig dómara sem úrskurðaði áður Trump í vil en sá dómari var skipaður í embætti af Trump. Erlent 2.12.2022 11:24
Vilja taka skýrslu af varaforseta Trump Bandaríska dómsmálaráðuneytið vill taka vitnaskýrslu af Mike Pence, fyrrverandi varaforseta, í tengslum við sakamálarannsókn á tilraunum Donalds Trump til þess að halda í völdin eftir að hann tapaði forsetakosningunum fyrir tveimur árum. Pence er sagður opinn fyrir því að gefa skýrslu. Erlent 24.11.2022 08:33
Hafa áhyggjur af lýðræðinu en setja það ekki í forgang Mikill meirihluti bandarískra kjósenda segir lýðræðinu vera ógnað þar í landi. Það að verja lýðræðið er þó ekki í forgangi hjá þeim og hafa kjósendur meiri áhyggjur af efnahagsmálum vestanhafs. Erlent 19.10.2022 22:32
Sagður hafa okrað á ríkinu fyrir lífvörslu Fyrirtæki Donalds Trumps, fyrrverandi forseta Bandaríkjanna, rukkaði lífverði forsetans meira fyrir herbergi í eignum fyrirtækisins en opinberum starfsmönnum er heimilt að greiða. Þetta gerðist minnst fjörutíu sinnum, samkvæmt niðurstöðum rannsóknarnefndar, en tvisvar sinnum voru lífverðirnir rukkaðir fyrir meira en ellefu hundruð dali fyrir nóttina. Erlent 17.10.2022 22:00
„Við verðum að klára athöfnina, annars vinna þau“ Á meðan Donald Trump, fyrrverandi forseti Bandaríkjanna, fylgdist með árásinni á þinghúsið í Washington DC þann 6. janúar í fyrra, í sjónvarpinu og neitaði að gefa út yfirlýsingu um að stuðningsmenn hans ættu að láta af árásinni, voru leiðtogar þingsins að vinna að því að reyna að stöðva árásina. Erlent 14.10.2022 14:16
Bein útsending: Segja Trump enn ógna lýðræðinu í Bandaríkjunum Þingnefnd fulltrúadeildar Bandaríkjaþings sem rannsakar árásina á þinghúsið þann 6. janúar í fyrra heldur opin fund í kvöld þar sem til stendur að skoða hugarástand Donalds Trumps, fyrrverandi forseta, þegar árásin átti sér stað. Einnig ætla meðlimir nefndarinnar að ítreka það að lýðræði Bandaríkjanna stafi enn ógn af Trump og fylgjendum hans. Erlent 13.10.2022 16:00
Meirihluti frambjóðenda repúblikana afneitar kosningaúrslitunum Tæplega þrjú hundruð frambjóðendur Repúblikanaflokksins til kosninga til Bandaríkjaþings og ríkisembætta, meirihluti frambjóðenda flokksins, viðurkenna ekki úrslit forsetakosninganna árið 2020 eða efast um þau. Afar líklegt er að minnsta kosti rúmur helmingur þeirra nái kjöri. Erlent 6.10.2022 22:05
Gætu breytt bandarísku samfélagi næstu áratugina Hæstiréttur Bandaríkjanna kemur saman á morgun í fyrsta sinn frá því í júní en dómararnir munu taka fyrir mörg stór og umdeild mál á næstu mánuðum. Búast má við því að dómarar sem skipaðir voru af forsetum úr Repúblikanaflokknum, sem eru í miklum meirihluta (6-3), muni halda áfram að færa bandarískt samfélag til hægri. Erlent 2.10.2022 15:03
Trump hótaði McConnell lífláti undir rós Donald Trump, fyrrverandi forseti Bandaríkjanna, hótaði Mitch McConnell, leiðtoga Repúblikanaflokksins í öldungadeild Bandaríkjaþings, lífláti undir rós í gærkvöldi. Samhliða því fór hann rasískum orðum um Elaine Chow, eiginkonu McConnells. Erlent 1.10.2022 10:11
Skaut fast á Repúblikana fyrir fylgispekt þeirra við Trump Dómari fór hörðum orðum um Donald Trump, fyrrverandi forseta Bandaríkjanna, og leiðtoga Repúblikanaflokksins fyrir ítrekaðar lygar þeirra um kosningasvik í Bandaríkjunum. Hún sagði Trump hafa gert háttsetta Repúblikana lafandi hrædda við að missa völd sín svo þeir þorðu ekki að fara gegn honum. Erlent 28.9.2022 11:11
„Ég ætla bara ekkert að fara“ Donald Trump, fyrrverandi forseti Bandaríkjanna, sagði starfsmönnum sínum og bandamönnum að hann ætlaði ekki að yfirgefa Hvíta húsið, þrátt fyrir að hafa skömmu áður tapað kosningum gegn Joe Biden. „Við förum aldrei. Hvernig getur þú farið þegar þú hefur unnið kosningar.“ Erlent 12.9.2022 14:38
Enn bætist á vandræði Trumps Dómsmálaráðuneyti Bandaríkjanna hefur kosningasjóð Donalds Trumps, fyrrverandi forseta, til rannsóknar. Sérstaklega er verið að skoða hvernig peningum hefur verið safnað í „Save America“ sjóðinn og hvernig þeim hefur verið varið. Erlent 9.9.2022 22:31
Krafa Trumps samþykkt af dómara sem hann tilnefndi Dómari opinberaði í gær þá niðurstöðu sína að utanaðkomandi aðili myndi fara yfir gögnin sem starfsmenn Alríkislögreglu Bandaríkjanna (FBI) lögðu hald á í Mar-a-Lago, sveitarklúbbi og heimili Donalds Trumps í Flórída. Dómarinn hefur líka meinað dómsmálaráðuneytinu tímabundið að nota gögnin sem haldlögð voru við mögulega rannsókn sem beinist að Trump. Erlent 6.9.2022 14:31
Segir MAGA-Repúblikana ógna Bandaríkjunum Joe Biden, forseti Bandaríkjanna, fór hörðum orðum um Donald Trump, forvera sinn og stuðningsmenn hans, í ræðu sem hann hélt í gærkvöldi. Biden sagði að svo lengi sem Trump stjórnaði Repúblikanaflokknum ógnaði flokkurinn lýðræði í Bandaríkjunum. Erlent 2.9.2022 10:53
Lögmenn Trumps í vandræðum vegna ósanninda Nýtt dómskjal sem opinberað var í tengslum við rannsókn Dómsmálaráðuneytis Bandaríkjanna á vörslu Donalds Trump, fyrrverandi forseta Bandaríkjanna, á opinberum og leynilegum gögnum í Flórída sýna að Evan Corcoran og Christina Bobb, tveir af lögmönnum Trumps, gætu staðið frammi fyrir ansi alvarlegum lagalegum vandræðum. Þau sýna einnig að Trump sjálfur gæti verið í hættu. Erlent 1.9.2022 14:50
Giuliani með stöðu grunaðs manns Rudolph W. Giuliani, fyrrverandi lögmaður Donalds Trump og fyrrverandi borgarstjóri New York, hefur verið tilkynnt að hann hafi stöðu grunaðs manns í rannsókn yfirvalda í Georgíu á afskiptum Trumps og bandamanna hans af forsetakosningunum árið 2020. Erlent 16.8.2022 14:59