Eldgos og jarðhræringar
73 74 75 76 77 78 79 80 81 … 133 ›
Líkur á gosi aukist með hverjum degi sem virkni helst óbreytt Um þrjú þúsund skjálftar hafa mælst við eldstöðina í Fagradalsfjalli í dag. Það er svipaður fjöldi og hefur mælst dag hvern frá 21. desember. Líkur á eldgosi aukast með hverjum deginum sem líður með óbreyttu ástandi, að sögn náttúruvársérfræðings á Veðurstofu Íslands. Innlent 25.12.2021 20:44
Skjálftahviða á gosstöðvunum Skjálftahviða mældist við Fagradalsfjall klukkan hálf fjögur og stóð yfir í tæpa klukkustund. Að sögn náttúruvársérfræðings er ljóst að hreyfing er á kviku undir yfirborðinu en erfitt er að lesa nánar í aðstæðurnar. Innlent 25.12.2021 16:47
Eldgosinu á La Palma lokið Yfirvöld á spænsku eyjunni La Palma hafa lýst því yfir að eldgosinu sem hófst á eyjunni í september sé lokið, eftir tíu daga án gosvirkni. Erlent 25.12.2021 15:37
Helst útlit fyrir gos við Meradali Næstum því 1.400 skjálftar hafa verið á Reykjanesi frá miðnætti sá stærsti upp á 4,5. Náttúruvársérfræðingur segir kviku hafa færst norður og nú sé helst útlit fyrir að það gjósi við Meradali. Innlent 25.12.2021 14:16
Myndir ársins 2021: Faraldur, fegurð og -hamfarir Ljósmyndarar og myndatökumenn fréttastofu Stöðvar 2, Vísis og Bylgjunnar fönguðu margt dýrmætt augnablikið í ár, eins og þeim einum er lagið. Sigrar og sorgir voru fest á filmu og í mörgum tilvikum sannaðist það fornkveðna; að mynd segir meira en þúsund orð. Innlent 25.12.2021 08:01
Jarðskjálfti 4,2 að stærð: „Það er búið að skjálfa dálítið vel í nótt“ Jarðskjálfti, 4,2 af stærð, mældist suðsuðaustur af Fagradalsfjalli klukkan 7:25 í morgun en jörð hefur skolfið við Fagradalsfjall síðan á þriðjudaginn síðastliðinn. Ekkert lát virðist vera á jarðskjálftavirkninni en þónokkrir jarðskjálftar mældust yfir 4 að stærð í gær. Sá stærsti mældist á miðvikudaginn en hann var 4,9 að stærð. Innlent 25.12.2021 07:26
Jörð skelfur á Reykjanesi Jarðskjálfti af stærðinni 4,8 varð 2,5 kílómetra norðaustan af Grindavík klukkan 21:38 í kvöld. Skjálftinn varð á fimm kílómetra dýpi en hann er sá næststærsti sem hefur orðið í yfirstandandi skjálftahrinu sem hófst á þriðjudaginn. Innlent 24.12.2021 22:46
Jarðskjálfti af stærðinni 4,7 mældist á Reykjanesskaga Snarpur skjálfti fannst á höfuðborgarsvæðinu klukkan 15.03 í dag og samkvæmt mælingum Veðurstofunnar var hann 4,7 að stærð. Skjálftinn er sá stærsti frá upphafi nýlegrar jarðskjálftahrinu í Fagradagsfalli en hún hófst á þriðjudaginn síðastliðinn. Innlent 24.12.2021 15:06
Skjálftavirkni við Fagradalsfjall: Eitt þúsund skjálftar frá miðnætti Skjálftavirkni tók að aukast við Fagradalsfjall á Reykjanesskaga í gærkvöldi eftir fremur rólegan gærdag. Um eitt þúsund skjálftar hafa mælst frá miðnætti en skjálftahrinan hefur staðið yfir síðan á þriðjudaginn. Innlent 24.12.2021 08:16
Tvö þúsund skjálftar frá miðnætti Skjálftavirkni við Fagradalsfjall mælist enn mikil. Frá miðnætti hafa um tvö þúsund skjálftar mælst á svæðinu og flestir þeirra nærri gosstöðvunum. Innlent 23.12.2021 16:50
Magnaðar myndir RAX af gosstöðvunum í dag Allt er með kyrrum kjörum við Geldingadali, það er að segja ef litið er á þá úr flugvél. Þar er þó jarðskjálftahrina enn í fullum gangi og gæti eldgos hafist á ný fyrirvaralaust. Ragnar Axelsson, RAX, flaug yfir Geldingadali í dag. Innlent 23.12.2021 14:33
Ekki útilokað að landsmenn fái eldgos í jólagjöf Enn er mikil skjálftavirkni í Geldingadölum en skjálftarnir koma nú í lotum. Gert er ráð fyrir að kvika sé á hreyfingu á svæðinu. Náttúruvársérfræðingur segir ekkert hægt að útiloka með tilliti til eldgoss og gæti sú atburðarrás verið hröð. Innlent 23.12.2021 12:06
Gengur upp og niður með um klukkutíma löngum þyrpingum Jarðskjálftavirknin í og við Fagradalsfjall hefur gengið upp og niður með um klukkutíma löngum þyrpingum á nokkurra klukkustunda fresti. Vísindamenn eru sammála um að ekki sé hægt að útiloka að kvika gæti komist upp á yfirborð með skömmum fyrirvara. Innlent 23.12.2021 10:16
Þrjár myndarlegar hviður af skjálftum í nótt „Virknin hefur gengið svolítið upp og niður,“ segir Elísabet Pálmadóttir, náttúruvársérfræðingur hjá Veðurstofu Íslands, um skjálftavirkni á Reykjanesskaga í nótt. „Það hafa komið svona þrjár myndarlegar hviður af jarðskjálftum í nótt en inn á milli róast.“ Innlent 23.12.2021 06:55
Atburðarásinni svipar til aðdraganda gossins Jarðskjálftahrinan á Reykjanesi er enn í fullum gangi þó stórum skjálftum hafi farið fækkandi með deginum. Skjálftavirknin á Reykjanesi er að færast til suðvesturs og er núna á nákvæmlega sama stað og kvikugangurinn sem myndaðist í vor áður en gos hófst í Geldingadölum. Innlent 22.12.2021 20:09
Skjálftarnir líkjast undanfara eldgoss Jarðskjálftahrinan á Reykjanesi er mjög svipuð undanfara eldgossins sem hófst í Geldingadölum í vor. Prófessor í jarðeðlisfræði telur líklegt að kvika sé að brjóta sér leið upp að jarðskorpunni en segir alls ekki víst að hún muni skila sér á yfirborðið í eldgosi. Innlent 22.12.2021 11:51
Óþægilegt að fá skjálftahrinu rétt fyrir jól Grindvíkingar taka skjálftahrinunni sem nú gengur yfir á Reykjanesinu með ró og reyna að halda sinni rútínu fyrir hátíðirnar. Hún vekur þó upp óþægilegar minningar frá stóru hrinunni í byrjun árs og vöknuðu margir upp við vondan draum í nótt að sögn bæjarstjórans. Innlent 22.12.2021 10:25
Óvissustig vegna skjálftanna við Fagradalsfjall Ríkislögreglustjóri í samráði við lögreglustjórann á Suðurnesjum lýsir yfir óvissustigi almannavarna vegna jarðskjálftahrinu við Fagradalsfjall. Hrinan hófst í gær og stendur enn yfir. Innlent 22.12.2021 10:08
Snarpir skjálftar við Fagradalsfjall og sá stærsti 4,9 stig Þrír snarpir jarðskjálftar fundust vel á höfuðborgarsvæðinu upp úr klukkan 9 í morgun. Sá stærsti varð klukkan 9.23 og mældist 4,9 að stærð. Óvissustigi almannavarna hefur verið lýst yfir vegna skjálftanna. Innlent 22.12.2021 09:16
Tíu skjálftar yfir 3 að stærð og flugkóða breytt í appelsínugulan Veðurstofa hefur breytt fluglitakóða í appelsínugulan sökum skjálftavirkni um tveimur til fjórum kílómetrum norðaustur af Geldingadölum sem jókst til muna um klukkan 18 í gærkvöldi. Innlent 22.12.2021 06:15
Skjálfti að stærð 3,3 fannst á höfuðborgarsvæðinu og í Reykjanesbæ Jarðskjálfti að stærð 3,3 varð 3,1 kílómetra suðsuðvestur af Keili klukkan 23:21 í kvöld, samkvæmt upplýsingum frá Veðurstofu Íslands. Innlent 21.12.2021 23:38
Hrina lítilla skjálfta mælst við Fagradalsfjall en ekki merki um gosóróa Um klukkan fimm í dag hófst hrina smáskjálfta norðaustur af Geldingadölum og voru skjálftarnir orðnir um 340 talsins klukkan 22:30. Um er að ræða frekar litla skjálfta á um það bil sjö til átta kílómetra dýpi en sá stærsti mældist 1,8 að stærð klukkan 20:28. Innlent 21.12.2021 22:33
Þrír skjálftar yfir 3 að stærð í Vatnafjöllum á sjö mínútna tímabili Þrír skjálftar yfir 3 að stærð mældust í Vatnafjöllum á fimmta tímanum nú síðdegis. Sá stærsti var 3,5 að stærð. Innlent 13.12.2021 17:19
Skjálfti 3,1 að stærð við Grindavík Jarðskjálfti 3,1 að stærð varð norðaustur af Grindavík klukkan 10:44 í dag. Innlent 8.12.2021 11:16
Minnkandi líkur á gosi í Grímsvötnum Veðurstofan hefur fært fluglitakóða fyrir Grímsvötn niður á gult. Í kjölfar aukinnar skjálftavirkni í gærmorgun, þar sem meðal annars mældist skjálfti af stærð 3,6 sem er óvenjustór fyrir Grímsvötn, var fluglitakóðinn settur á appelsínugult í gær. Innlent 7.12.2021 11:20
Búa sig undir að flugumferð raskist ef gýs í Grímsvötnum Flugmálayfirvöld búa sig undir að eldgos í Grímsvötnum geti valdið verulegum truflunum á flugumferð, bæði hérlendis og víðar í Evrópu. Eldstöðin er komin á appelsínugula viðvörun gagnvart alþjóðaflugi, sem táknar vaxandi líkur á gosi. Innlent 6.12.2021 20:40
Ekkert hægt að útiloka varðandi Grímsvötn næstu mánuðina Viðvörunarstig vegna Grímsvatna hefur verið fært yfir í appelsínugulan lit fyrir alþjóðaflug vegna skjálftavirkni sem hófst á svæðinu í morgun. Náttúruvársérfræðingur hjá Veðurstofunni segir engan gosóróa mælast á svæðinu að svo stöddu en ekki sé hægt að útiloka neitt þegar kemur að Grímsvötnum. Innlent 6.12.2021 12:16
Eldstöðin Grímsvötn sett á appelsínugula viðvörun Veðurstofa Íslands hefur hækkað viðvörunarstig vegna Grímsvatna úr gulum lit í appelsíngulan lit fyrir alþjóðflug, sem táknar vaxandi líkur á eldgosi. Þetta var gert klukkan níu í morgun eftir jarðskjálftahrinu í eldstöðinni fyrr um morguninn. Innlent 6.12.2021 10:33
Skjálfti 3,6 að stærð í Grímsvötnum Skjálfti 3,6 að stærð varð í Grímsvötnum klukkan 6:16 í morgun. Nokkrir eftirskjálftar hafa fylgt í kjölfarið, sá stærsti 2,3 að stærð. Ekki hefur mælist gosórói á svæðinu. Innlent 6.12.2021 07:28
Hlaupið náð hámarki og á hraðri niðurleið: Sjáðu myndir RAX frá Grímsvötnum Íshellan í Grímsvötnum hefur sigið um 75 metra og hlaupið þar náði að öllum líkindum hámarki liðna nótt. Ragnar Axelsson ljósmyndari, þekktur undir nafninu RAX, flaug yfir svæðið í gær og myndaði sprungur ofan í Grímsvötnum, undir klettabeltum við skálana á Grímsfjalli. Innlent 5.12.2021 21:15