Efnahagsmál
1 2 3 4 5 6 … 79 ›
Hlutfall krafna í vanskilum töluvert lægra en fyrir heimsfaraldur Það sem af er árinu hafa vanskil bæði einstaklinga og fyrirtækja lækkað talsvert og hafa núna aldrei mælst lægri, samkvæmt gögnum frá Motus, en eftir miklar sveiflur síðustu misseri virðist vera komið á jafnvægi sem er nokkuð lægra en fyrir heimsfaraldur. Innherjamolar 8.10.2025 16:51
Ekki „stórar áhyggjur“ af verðbólgunni þótt krónan kunni að gefa aðeins eftir Þróunin í raunhagkerfinu er núna öll á þann veg að segjast nánast sömu sögu, hvort sem litið er til vinnu- eða húsnæðismarkaðar, um að hagkerfið sé kólna hraðar en áður, að sögn stjórnenda Seðlabankans, sem segja „planið vera að virka“ þótt það sé taka lengri tíma að ná niður verðbólgunni. Ekki er ástæða til að hafa „stórar áhyggjur“ af því fyrir verðbólguna þótt krónan kunni að gefa eftir á meðan það er slaki í hagkerfinu. Innherjamolar 8.10.2025 12:32
Allt bendir til kólnunar og nefndin mun mildari Peningastefnunefnd Seðlabanka Íslands fann sig knúna til að milda framsýna leiðsögn sína í yfirlýsingu sinni í morgun. Seðlabankastjóri segir öll merki benda til kólnunar í hagkerfinu. Viðskipti innlent 8.10.2025 11:06
Kaupmáttur jókst í fyrra Kaupmáttur ráðstöfunartekja á mann jókst um 2,3 prósent árið 2024 að teknu tilliti til verðlagsþróunar. Vísitala neysluverðs hækkaði um 5,9 prósent. Viðskipti innlent 8.10.2025 09:58
Mildari tónn frá peningastefnunefnd þótt vöxtum sé enn haldið óbreyttum Meginvextir Seðlabankans haldast óbreyttir annan fundinn í röð, sem var í samræmi við væntingar allra greinenda, en peningastefnunefndin sér núna ástæðu til að undirstrika að viðsnúningur sé að verða í þróun efnahagsumsvifa og spennan að minnka. Innherji 8.10.2025 09:23
Bein útsending: Rökstyðja vaxtaákvörðunina Ásgeir Jónsson, seðlabankastjóri og formaður peningastefnunefndar, og Þórarinn G. Pétursson, varaseðlabankastjóri og staðgengill formanns peningastefnunefndar, kynna yfirlýsingu nefndarinnar klukkan 09:30. Beina útsendingu af kynningunni má sjá hér að neðan. Viðskipti innlent 8.10.2025 09:00
Heldur stýrivöxtunum óbreyttum Peningastefnunefnd Seðlabanka Íslands hefur ákveðið að halda stýrivöxtum bankans óbreyttum og verða þeir því áfram 7,5 prósent. Viðskipti innlent 8.10.2025 08:30
Hringekja verðtryggingar og hárra vaxta Allt frá árinu 1979 hefur verið heimilt hér á landi að verðtryggja sparnað og skuldir. Sú breyting þótti nauðsynleg til að bregðast við þeirri óðaverðbólgu og eignarýrnun sem hafði sett mark sitt á árin á undan. En þrátt fyrir ýmsa kosti verðtryggingar getur víðtæk notkun hennar haft verulega ókosti í för með sér eins og hér verður aðeins rakið. Skoðun 7.10.2025 14:02
„Það þarf að gera meira og hraðar“ Kristrún Frostadóttir, forsætisráðherra, segir að stjórnvöld hyggist bregðast við þeirri íþyngjandi stöðu sem fólk og fyrirtæki búa við meðal annars vegna hárra vaxta. Í farvatninu sé húsnæðis- og efnahagspakki sem muni taka mið af veruleika þeirra hópa sem mest finna fyrir háum stýrivöxtum. Peningastefnunefnd Seðlabanka Íslands kynnir ákvörðun sína í fyrramálið. Greinendur á markaði búast við óbreyttum vöxtum. Innlent 7.10.2025 13:46
Margt gæti réttlætt vaxtalækkun ef ekki væri fyrir Ódysseifska leiðsögn bankans Hagtölur að undanförnu hafa sýnt veikan hagvöxt, minni verðbólgu en búist var við og raunverðslækkun fasteignaverðs og ef ekki væri fyrir Ódysseifska leiðsögn Seðlabankans þá hefði sú þróun „hæglega“ getað réttlætt 25 punkta vaxtalækkun í næstu viku, að mati aðalhagfræðings Kviku. Ekki er útilokað að nefndarmenn í peningastefnunefnd muni nýta færið á komandi fundi til að opna á vaxtalækkanir við fyrsta tækifæri. Innherji 4.10.2025 10:05
Ísland verði leiðandi í þróun varna og viðskipta á Norðurslóðum Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra vill að Ísland sé ekki aðeins þátttakandi heldur gegni leiðandi hlutverki um þróun viðskipta og hvernig varnarmálum verði háttað á Norðurslóðum. Þjóðaröryggisráð kemur saman í dag til að ræða drónaárásir og aðrar fjölþáttaógnir en viðfangsefnið var fyrirferðarmikið á leiðtogafundi sem hún sótti í Danmörku í gær. Kristrún segist þó ekki aðeins hafa mætt til Kaupmannahafnar til að ræða varnarmál. Viðskipti innlent 3.10.2025 06:47
Þjóðarskútan sé „vel í stakk búin til að sigla milli skers og báru í úfnum sjó“ Ný efnahagsspá Arion banka gerir ráð fyrir að þjóðarskútan „haldi til hafs á ný eftir samdrátt síðasta árs.“ Þar segir að innlend eftirspurn, með einkaneyslu í broddi fylkingar, hafi verið atkvæðameiri en áður var reiknað með og muni halda sínu hlutverki sem driffjöður hagvaxtar. Viðskipti innlent 30.9.2025 11:05
Play er gjaldþrota Flugfélagið Play er gjaldþrota og hefur hætt starfsemi. Fjögur hundruð missa vinnuna og ferðaáætlanir þúsunda farþega eru í uppnámi. Hægt er að lesa um nýjustu tíðindi í vaktinni að neðan. Viðskipti innlent 29.9.2025 09:37
Verðbólgan 4,1% og fer upp á milli mánaða Vísitala neysluverðs hækkaði um 0,11% á milli mánaða samkvæmt nýjum tölum Hagstofunnar. Síðastliðna tólf mánuði mælist verðbólga þannig 4,1% en er 3,2% sé húsnæði tekið út fyrir sviga. Viðskipti innlent 25.9.2025 09:28
Neyslan mikil og sjá ekki að stýrivextir fari hratt lækkandi Greiningardeild Íslandsbanka telur líklegt að vaxtalækkunarferli Seðlabanka Íslands ljúki líklega með stýrivöxtum á bilinu 5,5 til 6,0 prósent árið 2027. Íslensk heimili séu neysluglöð í ferðalögum og bílkaupum án þess þó að skuldsetja sig. Kaupmáttur sé mikill og íbúðamarkaður í jafnvægi. Viðskipti innlent 24.9.2025 14:22
Gjaldeyrisforðinn nálægt billjón króna Seðlabankastjóri segir útlit fyrir að fasteignamarkaðurinn sé á leið í nokkuð jafnvægi. Ekki hefur verið slakað á lántökuskilyrðum en það kunni að verða tekið til skoðunar á árinu. Gjaldeyrisforði bankans sé vel í stakk búinn til að bregðast við ytri aðstæðum. Viðskipti innlent 24.9.2025 11:50
Vara við áhrifum verðleiðréttingar á erlenda fjármögnun íslenskra félaga Alþjóðlegir eignamarkaðir eru hátt verðlagðir um þessar mundir og því gæti „snörp verðleiðrétting“ haft neikvæð áhrif á bæði aðgengi og kjör íslenskra fyrirtækja þegar kemur að erlendri fjármögnun, að sögn fjármálastöðugleikanefndar Seðlabankans. Nefndin leggur sérstaka áherslu á mikilvægi þess að vera með sterka erlenda stöðu og öflugan gjaldeyrisforða nú þegar „umtalsverð“ óvissa er í alþjóðamálum. Innherji 24.9.2025 09:13
Bein útsending: Kynna yfirlýsingu fjármálastöðugleikanefndar Fulltrúar fjármálastöðugleikanefndar Seðlabankans munu sitja fyrir svörum á blaðamannafundi sem hefst klukkan 9:30 og ræða yfirlýsingu nefndarinnar sem birt var í morgun. Viðskipti innlent 24.9.2025 09:03
Óvissa á alþjóðavettvangi undirstrikar mikilvægi ríflegs gjaldeyrisforða Fjármálakerfið hér á landi stendur traustum fótum og er eiginfjár- og lausafjárstaða kerfislega mikilvægra banka sterk og aðgengi að markaðsfjármögnun greitt. Umtalsverð óvissa er þó í alþjóðamálum og langtímavextir hafa víða hækkað vegna vaxandi efasemda um sjálfbærni opinberra fjármála. Óvissa á alþjóðavettvangi undirstrikar mikilvægi ríflegs gjaldeyrisforða. Viðskipti innlent 24.9.2025 08:32
Raungengi krónunnar lítillega yfirverðlagt að mati AGS og Seðlabankans Þótt raungengi krónunnar sé búið að rísa hratt að undanförnu, sem hefur þrengt nokkuð að samkeppnishæfni margra útflutningsfyrirtækja, þá er það aðeins nokkrum prósentum hærra en nemur nýlegi mati Seðlabankans og Alþjóðagjaldeyrissjóðsins á jafnvægisraungenginu. Með hliðsjón af því er ekki endilega líklegt að mikil leiðrétting verði á genginu á næstunni. Innherji 23.9.2025 12:33
Erlend staða íslenska þjóðarbúsins ein sú besta meðal ríkja í Evrópu Aðeins fáein Evrópuríki geta státað sig af því að vera með sterkari erlenda stöðu í samanburði við Ísland en hrein eignastaða þjóðarbúsins í hlutfalli við landsframleiðslu hefur núna haldist yfir 40 prósent frá ársbyrjun 2024. Áratugur er liðin síðan Ísland náði þeim áfanga að vera hreinn útflytjandi fjármagns og hefur það meðal annars átt ríkan þátt í meiri stöðugleika íslensku krónunnar. Innherji 22.9.2025 14:29
Eldgosin við Grindavík höfðu mikil áhrif á neikvæða afkomu hins opinbera Útgjöld hins opinbera voru um 170 milljörðum króna meiri en tekjurnar í fyrra. Bein útgjöld vegna eldgosanna við Grindavík vógu þungt en þau námu yfir 87 milljörðum króna. Afkoma hins opinbera var áfram neikvæð á öðrum ársfjórðungi þessa árs. Viðskipti innlent 18.9.2025 10:59
Spyr hvort tilefni sé til ánægju með sölu á Íslandsbanka Fyrrverandi ríkisendurskoðandi segir að munur á útboðsgengi hlutabréfa Íslandsbanka og núverandi markaðsvirði sé álíka mikill og gert sé ráð fyrir að fáist í ríkiskassann vegna veiðgjalda fyrir árið 2024. Hann spyr því hvort tilefni sé til þeirrar miklu ánægju sem mælst hefur með söluna. Viðskipti innlent 15.9.2025 13:42
Sammála um aukna verðbólgu í september Bæði Landsbankinn og Íslandsbanki spá því að verðbólga fari á ný yfir efri vikmörk verðbólgumarkmiðs Seðlabankans í næstu mælingu. Landsbankinn spáir 4,1 prósents verðbólgu en Íslandsbanki 4,2 prósenta. Viðskipti innlent 12.9.2025 11:02
Fjárlögin litlaus líkt og hann sjálfur Þingmenn Sjálfstæðisflokksins hvetja ríkisstjórnina til þess að ná niður halla á fjárlögum með sölu á Landsbankanum. Umræða um fjárlagafrumvarpið hófst á Alþingi í morgun og segir fjármálaráðherra þau aðhaldssöm og jafnvel litlaus - líkt og hann sjálfur. Innlent 11.9.2025 11:53
Samdráttur hafinn í byggingariðnaði sem skapi efnahagslegan vítahring Samdráttur er hafinn í byggingariðnaði eftir fjögurra ára samfellt vaxtarskeið og við blasir mögulegur efnahagslegur vítahringur vegna sveiflna í greininni. Þetta er meðal þess sem fram kemur í nýrri greiningu Samtaka iðnaðarins á stöðu í byggingariðnaði sem byggir meðal annars á gögnum frá Húsnæðis- og mannvirkjastofnun, HMS. Samtökin vænta þess að um sautján prósent samdráttur verði í fjölda íbúða í byggingu á næstu tólf mánuðum. Viðskipti innlent 11.9.2025 08:11
Miklar launahækkanir hafa haldið innlendum hluta verðbólgunnar „lifandi“ Að undanförnu hefur munurinn á milli innlendrar og innfluttrar vöruverðbólgu farið töluvert vaxandi en þar eru greinileg áhrif mikilla launahækkana sem hafa haldið innlendum hluta verðbólgunnar „lifandi“ og unnið þannig gegn hjöðnun hennar, að sögn varaseðlaseðlabankastjóra peningastefnu. Löskuð kjölfesta verðbólguvæntinga hefur kallað á harðari viðbrögð Seðlabankans en í flestum öðrum iðnríkjum og áhrifin af beitingu peningastefnunnar á verðbólgu taki lengri tíma að koma fram. Innherji 10.9.2025 11:29
Hallar á karla í fjárlagafrumvarpi Í greinargerð með fjárlagafrumvarpi fyrir árið 2026 segir að áhrif breytinga á skattlagningu á notkun bifreiða muni hafa meiri áhrif á karla en konur. Þá segir að við álagningu opinberra gjalda í ár hafi konur fengið 19 prósent af ávinningi af samnýtingu skattþrepa en karlar 81 prósent. Til stendur að afnema heimild til samsköttunar hjóna og sambúðarfólks milli skattþrepa. Innlent 8.9.2025 14:11
Ósáttur við skattana og hefði viljað loka fjárlagagatinu Þingmaður Sjálfstæðisflokksins í fjárlaganefnd Alþingis varð fyrir djúpum vonbrigðum með framkomið fjárlagafrumvarp. Þrátt fyrir fyrirheit ríkisstjórnarinnar um að skattar verði ekki hækkaðir þá hafi hann komið auga á skattahækkanir upp á 28 milljarða eftir grúsk í frumvarpinu. Þá hefði hann viljað sjá ríkisstjórnina loka fjárlagagatinu. Innlent 8.9.2025 12:28
„Allir vilja alltaf meira“ Fjármála- og efnahagsráðherra segist aðeins geta þakkað samráðherrum sínum fyrir gott samráð við gerð fjárlaga, sem kynnt voru í morgun. „Allir vilja alltaf meira en skilja líka að við þurfum að forgangsraða.“ Innlent 8.9.2025 10:18