Innlent

SA á leið í árs­há­tíðar­ferð á meðan klukkan tifar í kjara­deilu

Agnar Már Másson skrifar
Bjarni Benediktsson, framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins, verður þó eftir á Íslandi eins lengi og nauðsyn krefst, að sögn talsmanns SA.
Bjarni Benediktsson, framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins, verður þó eftir á Íslandi eins lengi og nauðsyn krefst, að sögn talsmanns SA. Vísir/Anton Brink

Hluti starfsmanna Samtaka atvinnulífsins heldur á morgun í árshátíðarferð til eyjunnar Hvar við strendur Króatíu, sama dag og frestur til þess að slíta kjarasamningum rennur út.

Sigtryggur Magnason, forstöðumaður miðlunarsviðs SA, staðfestir við Vísi að árshátíðarferðin á Hvar hefjist á morgun og standi yfir til mánudags en mbl.is greindi fyrst frá.

Hann telur þó að þetta muni ekki hafa áhrif á kjaraviðræður sem standa yfir.

„Nei, nei, það verður allt fullmannað í þeim,“ svarar Sigtryggur. Hann segir að þeir sem komi að kjaraviðræðum, þar á meðal framkvæmdastjórinn Bjarni Benediktsson, muni vera hér á Íslandi eins lengi og þörf verði á.

Af starfsmannasíðu SA má ráða að tæplega þrjátíu manns vinni hjá samtökunum.

Klukkan tifar í kjaradeilu milli SA annars vegar og VR, LÍV og fagfélaganna hins vegar, þar sem á morgun rennur út frestur til þess að slíta kjarasamningunum sem samið var um vorið 2024.

Engar viðræður eiga sér nú stað á milli aðila og segir Halla Gunnarsdóttir, formaður VR, sagði við Vísi í dag að staðan í viðræðum væri grafalvarlega og litu út fyrir að vera á leið inn í blindgötu. Framkvæmdastjóri SA sagði stál í stál eins og sakir standa.

SA hafa gefið út að samtökin vilji að núgildandi samningar haldi þrátt fyrir að þeir séu krefjandi fyrir atvinnulífið þar sem vextir séu háir og verðbólga hafi ekki hjaðnað í samræmi við vonir.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×