Samgöngur
21 22 23 24 25 26 27 28 29 … 101 ›
Ísfirðingar fengu loksins dýpkunarskip Dýpkunarskip Björgunar kom loksins til Ísafjarðar í gær til þess að dýpka Sundahöfn. Dýpkun hafnarinnar átti upphaflega að hefjast í maí síðastliðnum. Hafnarstjórinn kveðst ánægður með að unnt verði að hefjast handa á réttu ári. Innlent 29.12.2022 18:23
Vegagerðin fundar með Samtökum ferðaþjónustunnar Vegagerðin mun strax á nýju ári funda með Samtökum ferðaþjónustunnar til að fara yfir hvaða leiðir séu færar til að auka þjónustu við atvinnugreinina. Innlent 28.12.2022 19:58
Draumaferð þúsunda ferðamanna endar sem Reykjavíkurferð Forstjóri ferðaþjónustufyrirtækis segir tjón vegna vegalokana vera gífurlegt fyrir sig og önnur fyrirtæki í bransanum. Hann segir að skipuleggja þurfi moksturinn betur og kallar eftir frekari mannskap í starfið. Ekki sé hægt að kynna Ísland sem heilsársáfangastað ef loka þarf vegum í marga daga í senn. Innlent 28.12.2022 09:54
Snjóþekja á stofnvegum og fólk hvatt til að fara varlega Þjóðvegurinn frá Hvolsvelli og til Víkur í Mýrdal er lokaður vegna veðurs en spáð var mikilli snjókomu á svæðinu í nótt. Vegurinn á milli Víkur og Kirkjubæjarklausturs var lokaður fyrir almennri umferð í gær en Vegagerðin var þar með fylgdarakstur. Innlent 27.12.2022 06:59
Hnoðaður til lífs um borð í þotu Icelandair Bandarískur karlmaður var hnoðaður til lífs um borð í þotu Icelandair að kvöldi jóladags, sem var þá á leið frá Íslandi til Seattle í Bandaríkjunum. Svo heppilega vildi til að tveir læknar voru með í för, sem aðstoðuðu flugþjón við að koma manninum til bjargar. Innlent 27.12.2022 06:16
Ný lægð færist yfir landið með hvassviðri og snjó Spáð er allhvassri suðaustanátt með snjókomu á Suðausturlandi á morgun. Ný lægð færist yfir landið í nótt. Veður 26.12.2022 21:28
Víða ófært og vegir lokaðir Víða er ófært á landinu og vegir lokaðir. Gular viðvaranir eru í gildi á Suðurlandi, Austfjörðum og Austurlandi að Glettingi. Innlent 25.12.2022 14:45
Myndasyrpa: Víkverjar komu á annað hundrað ferðamönnum til bjargar á aðfangadag Björgunarsveitarmenn í Vík í Mýrdal fengu ekki að borða jólamatinn fyrr en á ellefta tímanum í gærkvöld vegna á annað hundrað erlendra ferðamanna sem sátu fastir í ófærðinni. Áfram er erfið færð víðast hvar á landinu og fólk hvatt til að halda sig heima. Veður 25.12.2022 14:02
Starfsmenn Vegagerðarinnar bjartsýnir Þungfært er á nokkrum leiðum á Suðurlandi vegna snjókomu. Töluverð snjóþekja er á Hellisheiði og í Þrengslum. Starfsmenn Vegagerðarinnar eru hins vegar bjartsýnir á að hægt verði að halda heiðinni opinni í dag, þrátt fyrir mikla umferð. Innlent 24.12.2022 11:52
Skoða gjaldtöku á öllum bílastæðum HÍ Gjaldtaka á bílastæðum Háskóla Íslands er til skoðunar. Nemendur og starfsfólk hafa hingað til fengið að leggja endurgjaldslaust við skólann. Á nýju ári gæti það heyrt sögunni til. Innlent 23.12.2022 18:25
Segir ástandið í miðborginni orðið gott fyrir Þorláksmessuösina Starfsmenn Reykjavíkurborgar hafa unnið hörðum höndum að því að salta og sanda gangstéttir og göngugötur í miðborginni. Yfirmaður vetrarþjónustu borgarinnar segir að kerfið þar ætti nú að vera í lagi þó að einhverjir hálkublettir kunni að leynast einhvers staðar ennþá. Innlent 23.12.2022 15:43
Framlengja samning um siglingar í Hrísey vegna tafa á útboði Vegagerðin hefur framlengt samning við Andey ehf. um að halda uppi siglingum milli Hríseyjar og Árskógasands næstu þrjá mánuði, eða til 31. mars 2023. Innlent 23.12.2022 10:47
Erfið akstursskilyrði á Hellisheiði og í Þrengslum á aðfangadag Útlit fyrir snjókomu á Hellisheiði, Þrengslum og Suðurlandi austur að Eyjafjöllum í fyrramálið og fram á annað kvöld. Innlent 23.12.2022 10:33
Reyndu allt til að halda veginum opnum við fordæmalausar aðstæður Vegamálastjóri telur að ekki hafi verið hægt að koma í veg fyrir lokun Reykjanesbrautar þegar óveðrið gekk yfir í vikunni en mögulega hefði verið hægt að opna fyrr. Vegagerðin skoðar nú hvort og þá hvað hefði mátt fara betur en um hafi verið að ræða fordæmalausar aðstæður. Innlent 22.12.2022 21:00
Mikilvægt að farþegar leiti réttar síns Raskanirnar á flugferðum í vikunni höfðu áhrif á tugi þúsunda farþega og er enn verið að vinna í því að koma hlutunum í eðlilegt horf. Samgöngustofa og Neytendasamtökin hafa fengið fjölmargar fyrirspurnir frá farþegum vegna bóta. Farþegar eigi alltaf rétt á ákveðinni þjónustu og jafnvel skaðabótum, þó það sé meira álitsefni. Innlent 22.12.2022 15:08
Samgönguinnviðir hafi ekki verið byggðir upp á sama hraða og flugstöðin Formaður umhverfis- og samgöngunefndar Alþingis telur mögulegt að samgöngur að Keflavíkurflugvelli hafi ekki verið byggðar upp á sama hraða og flugstöðin sjálf. Auka þurfi eftirlit og koma á fót skýrum verkferlum. Mikilvægt sé að staðan sem kom upp vegna lokun Reykjanesbrautar fyrr í vikunni komi aldrei upp aftur. Innlent 22.12.2022 13:15
Vill hafa Reykjavíkurflugvöll til taks fyrir millilandaflug Umhverfis- og samgöngunefnd Alþingis kemur saman til sérstaks aukafundar í fyrramálið, að ósk Njáls Trausta Friðbertssonar, til að ræða það öngþveiti sem skapaðist vegna lokunar Reykjanesbrautar. Innviðaráðherra, sem kemur á fund þingnefndarinnar, segir ástandið hafa verið óásættanlegt og Njáll Trausti vill skoða beint millilandaflug frá Reykjavík. Innlent 21.12.2022 21:12
Sekt fyrir að lenda þyrlum án leyfis á Hornströndum stendur Hæstiréttur hefur staðfest dóm Landsréttar yfir þyrlufyrirtæki, framkvæmdastjóra og tveimur flugmönnum þess, sem lentu þyrlu í tvígang án leyfis í friðlandinu á Hornströndum árið 2020. Einn dómari Hæstaréttar skilaði sératkvæði og vildi sýkna viðkomandi. Innlent 21.12.2022 15:55
Dregur sérfræðinga að borðinu því löng lokun sé óásættanleg Sigurður Ingi Jóhannsson innviðaráðherra segir nauðsynlegt að tryggja að álíka ástand og myndaðist á Reykjanesbraut síðustu sólarhringa með tilheyrandi raski á flugumferð myndist ekki aftur. Að loknum ríkisstjórnarfundi í morgun sagði Sigurður næstu skref felast í að fara yfir mögulegar lausnir með hópi sérfræðinga. Innlent 21.12.2022 15:01
Björgunarsveitir fluttu líffæri, krabbameinssjúkling, ófríska konu og lyf fyrir langveikt barn Mikið hefur mætt á björgunarsveitum landsins síðustu daga vegna óveðurs og ófærðar. Í tilkynningu frá Landsbjörg kemur fram að frá 17. desember hafi verið skráðar 83 aðgerðir sem 633 félagar björgunarsveita tóku þátt í, frá 63 björgunarsveitum. Meðal verkefna voru líffæraflutningur, flutningur krabbameinssjúklings til læknis og flutningur á lyfjum fyrir langveikt barn. Innlent 21.12.2022 13:52
„Við hefðum ekki getað farið að hleypa mörg hundruð manns á Reykjanesbrautina“ Vegagerðin telur það hafa verið rétta ákvörðun að loka Reykjanesbrautinni í rúman sólarhring út af óveðrinu líkt og gert var. Sérstakur samráðshópur hefur verið stofnaður til að fara yfir lokunina. Innlent 21.12.2022 13:27
„Það er allt hægt og bítandi að komast í eðlilegt horf á vellinum“ Flugumferð um Keflavíkurflugvöll er að komast aftur í rétt horf eftir umtalsverðar raskanir síðustu daga. Forstjóri Icelandair segir stefnt að því að koma öllum á áfangastað fyrir jól en félagið hefur meðal annars tekið tvær breiðþotur á leigu til þess að það gangi upp. Innlent 21.12.2022 12:26
Tíu milljarða vantar í fjárlög upp í loforðin í vegagerð Tíu milljarða króna gat er í nýsamþykktum fjárlögum næsta árs til að unnt verði að standa við þau fyrirheit sem gefin voru í samgönguáætlun fyrir síðustu kosningar. Breikkun Suðurlandsvegar í útjaðri Reykjavíkur er meðal þeirra verkefna sem skorin verða niður. Innlent 21.12.2022 10:20
Farið að reyna á þolinmæðina á fjórða degi ófærðar Íbúi í efri byggðum Reykjavíkur er mjög gagnrýninn á snjómokstur borgarinnar. Farið sé að reyna á þolinmæðina á fjórða degi ófærðar í hverfinu sem hann býr í. Telur hann ólíklegra að sjá snjóruðningstæki en geirfugl á lykilgötu hverfisins. Innlent 21.12.2022 10:03
Flugsamgöngur að komast í samt horf Flugsamgöngur til og frá landinu virðast vera að komast í samt lag á ný eftir óveður síðustu daga. Innlent 21.12.2022 06:35
Fimm flugferðum síðar enn ekki nálægt áfangastaðnum Íslandi Daniel Viray er kennari frá Texas sem ætlaði sér að nýta tveggja vikna jólafrí í að heimsækja Ísland. Upphaflega átti hann að mæta til landsins í gær, mánudaginn 19. desember, eftir millilendingar í Chicago og London. Vegna óveðursins er hann hins vegar staddur í Helsinki eftir misheppnaða flugferð þaðan til Íslands í dag og á morgun fer hann til Berlínar áður en ferðinni er loks heitið til Íslands. Innlent 20.12.2022 21:45
„Ég mun tryggja að svona gerist ekki aftur“ Sigurður Ingi Jóhannsson innviðaráðherra ætlar að tryggja að álíka ástand og verið hefur á Reykjanesbraut síðustu sólarhringa, með tilheyrandi raski á flugumferð, myndist ekki aftur. Hann segir flókið að taka ákvörðun um lokun brautarinnar og segir að ástandið ætti að opna augu fólks fyrir öryggishlutverki Reykjavíkurflugvallar. Innlent 20.12.2022 18:29
„Við viljum ekki að svona komi fyrir aftur“ Búið er að opna Reykjanesbrautina í báðar áttir og brátt mun eðlileg flugumferð um Keflavíkurflugvöll hefjast á ný. Forstjóri Icelandair tók á móti farþegum tveggja þota sem flogið var frá Keflavík til Reykjavíkur í dag. Innlent 20.12.2022 15:32
Undirbúa að hefja áætlanaflug til útlanda á ný Erfið færð er á vegum víða um landið og gular viðvaranir áfram í gildi fram á kvöld og þar til á morgun. Reykjanesbraut er lokuð í aðra áttina og var öllu áætlanaflugi aflýst í morgun. Verið er að ferja flugáhafnir til Keflavíkur og farþega til Reykjavíkur. Gert er ráð fyrir að áætlanaflug hjá Icelandair hefjist aftur síðdegis. Innlent 20.12.2022 12:31
Skoða að setja upp loftbrú milli Keflavíkur og Reykjavíkur Upplýsingafulltrúi Icelandair segir að verið sé að skoða að setja upp loftbrú milli Keflavíkur og Reykjavíkur. Þannig yrðu farþegar sem sitja fastir á Keflavíkurflugvelli fluttir til Reykjavíkur og starfsfólk flugfélagsins flutt til Keflavíkur. Um fimm hundruð manns lentu á Keflavíkurflugvelli í morgun með fjórum flugvélum. Innlent 20.12.2022 11:04