Átök í Ísrael og Palestínu

Siðferðileg heilindi Háskóla Íslands á tímum þjóðarmorðs
Alda stúdentamótmæla hefur brotist út um allan heim og hafa stúdentar slegið upp tjaldbúðum og skipulagt mótmæli til að vekja athygli á þjóðarmorði Ísraelsríkis á palestínsku þjóðinni. Kennarar og stúdentar hafa verið handteknir, m.a. við Colombia háskóla í New York og Science Po í París.

Takmarkar hernaðaraðstoð verði gerð árás á Rafah
Forseti Bandaríkjanna lýsti því yfir í gær að hann muni stöðva vopnasendingar á sprengjum og skotvopum til Ísrael ef forsætisráðherra Ísrael Benjamin Netanyahu fyrirskipar árás inn á Rafah. Það sagði Biden í viðtali við CNN í gær. Hann sagði Bandaríkin enn munu styðja Ísrael með öðrum hætti.

Bandaríkjamenn stöðvuðu vopnasendingu til Ísrael í síðustu viku
Joe Biden Bandaríkjaforseti stöðvaði vopnasendingu til Ísraelsmanna í síðustu viku til að koma í veg fyrir að innihaldið, um 3.500 sprengjur, yrðu notaðar á Rafah.

Bein útsending frá samstöðutónleikum í Háskólabíó í opinni dagskrá
Í kvöld fara fram samstöðutónleikar fyrir Palestínu í Háskólabíó, á sama tíma og Hera Björk stígur á svið í Malmö. Skipuleggjendur tónleikanna segja mikilvægt að sýna samstöðu. Tónleikarnir eru í beinni útsendingu í opinni dagskrá á Stöð 2.

Atburðirnir fyrir botni Miðjarðarhafs því sem næst „óraunverulegir“
Ísraelsher sendi eldsnemma í morgun skriðdreka inn í Rafah-borg og tugir létust í loftárásum þeirra. Alþjóðastjórnmálafræðingur er svartsýn á að vopnahlé sé í nánd þrátt fyrir yfirstandandi viðræður.

Segir Bandaríkjamenn þurfa að þrýsta á Ísraela
Guðmundur Ingi Guðbrandsson, formaður VG og félags- og vinnumarkaðsráðherra, segir að gera þurfi þá kröfu á ráðamenn í Bandaríkjunum að þeir beiti ríkisstjórn Ísraels mun meiri þrýstingi um að leggja niður vopn. Það sé besta leiðin til að koma á friði fyrir botni Miðjarðarhafs.

Tókst ekki að selja í öll auglýsingaplássin á RÚV í kvöld
Ekki tókst að selja í öll auglýsingaplássin sem í boði eru á RÚV á meðan fyrri undankeppni Eurovision fer fram í Malmö í kvöld. Færri auglýsingar hafa selst fyrir keppnina en búist var við.

Prófsteinninn
Íslenska þjóðin stendur með þjóðarmorði og aðskilnaðarstefnu Ísrael, sem er framhald af 19. aldar nýlendustefnu vestrænna ríkja. Það er ákvörðun núverandi ríkisstjórnar. Þessi ríkisstjórn hefur einnig ákveðið fyrir hönd þjóðarinnar að taka sem minnstan þátt í að hjálpa fólki á flótta í heiminum, sem nú í maí er áætlað að nái 110 milljónum, samkvæmt Flóttamannastofnun Sameinuðu þjóðanna.

Innrás á Rafah stríðir gegn allri mannúð
Í meira en hálft ár hefur Ísraelsher staðið fyrir linnulausum árásum á almenna borgara á Gaza. Enginn er óhultur á svæðinu á meðan bæði landhernaður og drónaárásir ógna lífum. Á Gaza stendur nú yfir ein versta mannúðarkrísa síðari ára en Ísraelsher hefur einnig tafið fyrir eða stöðvað birgðasendingar með hjálpargögn inn á svæðið.

Börnin okkar
„Það þarf heilt þorp til að ala upp barn“ er ekki gripið úr lausu lofti. Allir foreldrar þurfa að treysta á að náunginn komi vel fram við börn. Við erum með kennara, þjálfara og allskonar fagaðila sem koma að umönnun barna okkar.

Söngvakeppni og stríðsglæpir
Í dag hefst söngvakeppni evrópskra sjónvarpsstöðva. Keppnin í ár er pólitískur gjörningur þar sem ríki Evrópu, í gegnum ríkissjónvarpsstöðvar sínar, fylkja liði um stjórnvöld í Ísrael og sýna pólitískan stuðning sinn við þau í verki með söng og dansi.

Ísraelsmenn í aðgerðum í Rafah og taka yfir landamærastöðina
Ísraelsher stendur nú í aðgerðum í Rafah og hefur tekið yfir landamærastöðina í borginni, sem aðskilur Egyptaland og Gasa. Landamærin virðast vera lokuð eins og er.

Útrýming mannsins á RÚV
Við Íslendingar teljumst herlaus þjóð, en undanfarin ár hefur óprúttinn nýlenskuher gert aðför að tungumálinu okkar úr ýmsum áttum, staðráðinn í að innleiða hina kynlausu nýlensku í nafni jafnréttisbaráttu.

Tillagan „langt frá“ grundvallarkröfum Ísraela
Ísraelsher hóf loftárásir á Rafah-borg á Gasa stuttu eftir að í ljós kom að Ísraelar kæmu ekki til með að samþykkja þá vopnahléstillögu sem Hamas-samtökin samþykktu fyrr í dag.

Hamas samþykkir vopnahléstillögu
Leiðtogar Hamas-samtakanna hafa samþykkt vopnahléstillögu erindreka frá Egyptalandi og Katar. Í yfirlýsingu frá samtökunum segir að Ismail Haniyeh, leiðtogi Hamas, hafi hringt í forsætisráðherra Katar og upplýsingaráðherra Egyptlands í dag og tilkynnt þeim að tillagan hefði verið samþykkt.

Um 100.000 sagt að rýma svæði á Rafah vegna „afmarkaðra aðgerða“
Ísraelsher segist þurfa að flytja 100.000 manns frá Rafah inn á nærliggjandi svæði, al Mawasi, sem Ísraelsmenn hafa skilgreint sem „mannúðarsvæði“. Þetta hefur Associated Press eftir talsmanni hersins.

Búnaður Al Jazeera gerður upptækur og miðillinn í bann
Hluti útsendingarbúnaðar katarska miðilsins Al Jazeera var gerður upptækur þegar lögregla réðst inn á hótelherbergi útsendara í Jerúsalem í dag. Miðlinum hefur verið bannað að starfa í landinu í að minnsta kosti 45 daga.

Ísrael samþykkir ekki vopnahlé
Benjamín Netanjahú, forsætisráðherra Ísraels, segir að, þó Ísraelsmenn séu tilbúnir til þess að gera hlé á átökunum til að Hamasliðar afhendi þá gísla sem enn eru í þeirra haldi, komi það ekki til greina að binda endanlegri enda á átökin.

Ísraelsmenn vísa fréttamönnum á dyr
Ríkisstjórn Ísraels ákvað í dag að reka katörsku sjónvarpsstöðina Al Jazeera úr landi. Forsætisráðherra Ísraels segir fréttamenn hennar stríðsæsingamenn.

Segja frumvarp um gyðingaandúð í andstöðu við Biblíuna
Öfgahópur innan Repúblikanaflokksins hefur mótmælt þverpólitísku frumvarpi sem var samþykkt í fulltrúadeildinni á miðvikudag og miðar að því að útrýma hatursáróðri gegn gyðingum.

Tyrkir stöðva öll viðskipti við Ísrael
Tyrkir hafa ákveðið að hætta öllum viðskiptum við Ísrael vegna innrásar þeirra á Gasa svæðið.

Segir fólk eiga rétt til mótmæla en ekki til óreiðu
Joe Biden, forseti Bandaríkjanna, fordæmdi í dag ofbeldi sem hefði átt sér stað á mótmælum í háskólum víðsvegar um Bandaríkin. Hann sagði alla eiga rétt á friðsömum mótmælum en fólk hefði ekki rétt á því að valda óreiðu eða skemmdum.

Engir palestínskir fánar í Eurovision-höllinni
Skipuleggjendur Eurovision hafa ákveðið að banna palestíska fánann og skilti með pólitískan boðskap inni í Malmö Arena þar sem keppnin fer fram dagana 7. til 11. maí.

Viðbrögð Hamas við vopnahléstillögunum „neikvæð“
Háttsettur embættismaður innan Hamas sagði í samtali við AFP í nótt að viðbrögð samtakanna við þeim vopnahléstillögum sem nú lægju fyrir væru „neikvæð“ en viðræður stæðu enn yfir.

Hundruð lögreglumanna í viðbragðsstöðu vegna mótmæla í UCLA
Hundruð lögreglumanna í óeirðarbúnaði eru nú í viðbragðsstöðu á lóð UCLA í Kaliforníu í Bandaríkjunum en til stendur að loka tjaldbúðum sem komið hefur verið upp við háskólann og reka mótmælendur á brott.

Háskólanemar halda lautarferð og stofna hreyfingu fyrir Palestínu
Hópur stúdenta tók þátt í samstöðulautarferð fyrir Palestínu á túninu fyrir framan Háskóla Íslands seinni partinn í dag. Skipuleggjandi segir mikilvægt að hreyfingin fái leyfi fyrir viðburði af þessu tagi svo hægt sé að krefja skólann aðgerða sem snúa að samstöðu með Palestínu.

Þrjú hundruð handtekin í Columbia-háskóla
Um þrjú hundruð manns voru handtekin í Columbia-háskóla í New York-borg. Eric Adams borgarstjóri segir utanaðkomandi æsingamenn hafa náð ítökum meðal mótmælenda og að gyðingahatur og andóf gegn Ísrael væru útbreidd.

Mótmælendur og gagnmótmælendur tókust á
Bandarískir stúdentar hafa mótmælt stríðsrekstri Ísraelsmanna á Gasa af miklum móði undanfarnar vikur og hafa tjaldbúðir risið við háskóla um landið allt. Snemma morguns í dag sauð upp úr í einum slíkum tjaldbúðum sem reistar hafa verið við UCLA-háskóla í Kaliforníu þegar gagnmótmælendur gerðu tilraun til að rífa búðirnar niður.

Halda samstöðutónleika á sama tíma og Ísland keppir í Eurovision
Hópur tónlistarmanna kemur fram á samstöðutónleikum með Gasa í Háskólabíó þann 7. maí klukkan 19.30. Á sama tíma keppir Ísland í fyrri undankeppni Eurovision í Malmö í Svíþjóð. Söngkonan Elísabet Eyþórsdóttir, Beta, er ein þeirra sem kemur að skipulagningu tónleikanna.

Hvetur Hamas til að ganga að rausnarlegum tillögum Ísrael
Antony Blinken, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, segir Hamas það eina sem stendur á milli íbúa Gasa og vopnahlés. Hann hvetur samtökin til að ganga að „ótrúlega rausnarlegum“ tillögum Ísraelsmanna.