
Málefni fjölbýlishúsa

Vilja lagabreytingu svo hægt sé að banna reykingar í fjölbýli
Mikið ónæði hlýst af reykingum í og við fjöleignarhús að sögn Húseigendafélagsins. Fjöldi fólks hefur leitað til þess vegna ónæðis af völdum reykjandi nágranna. Lögfræðingur félagsins vill að lögum verði breytt svo hægt sé að banna reykingar í fjölbýlishúsum.

Bann við reykingum í fjöleignarhúsum?
Inn á borð Húseigendafélagsins rata fjölmörg mál vegna ónæðis reykinga íbúa í fjöleignarhúsum. Reykingar eru oft stundaðar á svölum, sérafnotaflötum og/eða lóðum fjöleignarhúsa í algjöru óhófi en til eru dæmi um að íbúar íbúða skiptast á að fara út yfir allan daginn, öll kvöld og jafnvel á næturnar líka.

Kona dæmd til að selja íbúðina vegna umgangs úr undirheimum
Héraðsdómur Reykjaness hefur gert konu að flytja af heimili sínu og taka með sér allt sem henni tilheyrir og selja eignarhluti sína í umræddu húsi.

Stuðlum að stöðugu og góðu viðhaldi eldra húsnæðis
Öll hús eiga skilið að fá gott viðhald, við eigum að virða eignina okkar og þau verðmæti sem felast í vel útlítandi og góðri fasteign. Gamalt hús á að geta þjónað eiganda sínum jafnvel og nýtt hús, ef rétt er að málum staðið.

Byggingarfulltrúinn og skjólveggurinn
Oft snúa sér til Húseigendafélagsins eigendur fasteigna sem kvarta sáran yfir hegðun, háttsemi og ósóma nágranna sinna. Eru slík þrætuefni af ólíkum meiði, en algengt er að þau varði frágang á mörkum lóða. Því miður vill það stundum verða að menn telji sér heimilt að ákveða hvernig slíkum frágangi skuli háttað, og ganga til þess verks án samskipta við nágranna aðliggjandi lóðar.

Formaður húsfélagsins fær nagladekkjabanninu hnekkt
Ákvörðun húsfélags í fjölbýlishúsi um að banna notkun nagladekkja í bílageymslu sinni er ólögmæt, að mati kærunefndar húsamála. Nefndin telur ekki unnt að banna slíkt nema samþykki allra eigenda komi til.

„Fæstir vilja vera óbeinir þátttakendur í kynlífi annarra“
Formaður Húseigendafélagsins segir reglulega kvartað til félagsins vegna kynlífsóhljóða. Eftirminnilegasta mál af því tagi var „Óp- og stunumálið“ í Kópavogi árið 2003. Hávaði vegna kynlífs sé eins og annar hávaði, hann verður að vera innan velsæmismarka.

Kallað eftir grenndarlögum. Aspir um eru ört vaxandi vandamál. Blessun eða bölvun
Til Húseigendafélagsins rata grenndarmál í öllum regnbogans litum og af öllum stærðum og gerðum. Allt frá léttum pirringi upp í háalvarleg mál þar sem miklir hagsmunir, fjárhagslegir og mannlegir, eru í húfi. Öll mannleg athafnasemi og brölt getur þróast í ónæði gagnvart nágrönnum.

Hunda- og kattahald í fjölbýlishúsum
Í lögum um fjöleignahús er kveðið á um að hunda- og kattahald í fjöleignarhúsi sé háð samþykki 2/3 hluta eigenda sem hafa sameiginlegan inngang eða stigagang. Þá segir að þegar hvorki er um sameiginlegan inngang né stigagang að ræða er samþykkis annarra eigenda ekki þörf fyrir hunda- og kattahaldi í húsinu.

Safnaði illa þefjandi sorpi og dæmd til að selja íbúðina
Héraðsdómur hefur dæmt eiganda íbúðar í Reykjavík til að flytja úr íbúðinni og selja hana vegna yfirgengilegrar sorpsöfnunar, sem olli nágrönnum gríðarlegum óþægindum. Lögmaður Húseigendafélagsins segir málið algjört undantekningartilvik - og sérstakt fyrir ýmsar sakir.

Stjórnir húsfélaga og húsfélagaþjónustur – Brýn þörf á löggjöf!
Upp á síðkastið hafa komið til kasta Húseigendafélagsins óvenju mörg alvarleg mál vegna umdeildra framkvæmda í fjöleignarhúsum sem ráðist hefur verið í undir leiðsögn fyrirtækja sem reka þjónustu við húsfélög. Af því tilefni og til glöggvunar á réttarstöðu húsfélaga, stjórnar þeirra og einstakra eigenda er þessi grein rituð.

Stéttaskipting felist í núgildandi reglum um dýrahald
Inga Sæland formaður Flokks fólksins fer fyrir frumvarpi um breytingu á fjöleignahúsalögum sem myndi gera katta- og hundahald ekki háð leyfi annarra íbúa fjöleignarhúsa. Hún segir mikla stéttaskiptingu felast í núgildandi lögum.

Hunda- og kattafólk snýr bökum saman fyrir frumvarp
Hunda og kattaeigendur hafa sameinast um undirskriftalista til stuðnings frumvarpi um breytingu á lögum um fjöleignarhús. Samkvæmt frumvarpinu yrði katta og hundahald í fjölbýlishúsum ekki háð leyfi annarra íbúa.

Kynjahljóð
Annað veifið koma til kasta Húseigendafélagsins klögumál vegna kynlífsóhljóða í fjölbýlishúsum. Fólk spyr hver sé réttur þess þegar um þverbak keyrir.

Eru húsdraugar leyndir gallar og dauðans alvara
Það ber við að til Húseigandafélagsins leiti fólk, sem telur sig hafa keypt gallaða fasteign vegna reimleika í henni. Væntingar kaupenda fasteigna eru margar og misjafnar. Draugagangur er venjulega þess eðlis að hann fer í bága við bæði væntingar kaupanda.

Línudans í fjölbýli – allt í himnalagi eða fjandinn laus
Í fjölbýli er lífið málamiðlun og línudans. Til að þessi línudans lukkist verður að hanna hús með það í huga að þar búi fólk með kostum og kenjum. Það verður að sjá fyrir þörfum fólks eins vel og unnt er.

Notaði debetkort húsfélagsins í eigin þágu
Karlmaður á fertugsaldri var á dögunum dæmdur til mánaðar fangelsisvistar fyrir fjárdrátt úr húsfélagi á Akureyri. Fresta skal fullnustu refsingarinnar og hún falla niður að linum tveimur árum.

Mikill meirihluti íbúa vildi 300 milljóna framkvæmdina
Mjög mikill meirihluti íbúa í Asparfelli 2 til 12 greiddi atkvæði með því á húsfundi í gær að 300 milljóna króna framkvæmdir við húsið verði kláraðar. Sonur íbúðareiganda hélt því fram í viðtali í Bítinu á Bylgjunni í gær að mikil óánægja væri vegna framkvæmdanna og að ráðist hafi verið í þær eftir ólöglegan húsfund.

Vísa ásökunum um græsku vegna 300 milljóna verks á bug
Framkvæmdastjóri ráðgjafafyrirtækisins Verksýnar vísar ásökunum um græsku, vegna 300 milljóna króna framkvæmda í Asparfelli, á bug. Framkvæmdastjóri Eignaumsjónar tekur undir þetta og segir úrskurð kærunefndar húsamála í deilunni stangast á við nýlegan dóm Landsréttar.

Ráðist í 300 milljóna verk eftir ólöglegan fund
Mikil óánægja er meðal íbúa í Asparfelli 2 til 12 í Breiðholti vegna 300 milljóna króna framkvæmda sem var ráðist í eftir húsfund sem kærunefnd húsamála hefur dæmt ólöglegan. Íbúar eru margir hverjir með lágar tekjur en vegna framkvæmdanna þarf hver og ein íbúð að greiða 60 þúsund krónur aukalega á mánuði næstu tvö árin.

Að vera eða ekki vera í fjöleignarhúsum hæfur
Að undanförnu hefur mikið verið rætt og ritað um nágrannaerjur í fjöleignarhúsum, sbr. nýlega grein mína á þessum vettvangi um um „Fjölbýli í blíðu og stríðu“ og umfjöllun á Stöð 2 sl. sunnudag. Hefur í umræðunni gætt misskilnings um meint rétt- og úrræðaleysi íbúðareiganda í fjöleignarhúsa vegna ónæðisvaldandi granna og réttarstöðu aðila í þýðingarmiklum atriðum.

Fjölbýli í blíðu og stríðu
Húseigendafélagið hefur langa og mikla reynslu í málum fjölbýlishúsa og samskiptum eigenda og íbúa þeirra.

Nágrannaerjur verði einna verstar í tví- og þríbýli
Nágrannaerjur geta verið mjög fljótar að vinda upp á sig og verða oft einna verstar í tví- og þríbýli. Þetta segir lögfræðingur sem aðstoðað hefur nágranna við að ná sáttum í deilum sem oft enda í algjöran hnút.

Varúð í viðskiptum. Skrúðklæði. Jónsbók.
Húseigendur hafa gjarnan mörg járn í eldinum og þurfa óhjákvæmilega að semja við ýmsa um ótalmargt. Má nefna kaupsamninga um hús og lóðir, húsaleigusamninga, verksamninga um byggingu, endurbætur, viðhald, viðgerðir og rekstur húsa, tryggingarsamninga, þjónustusamninga af ýmsum toga, sölusamninga við fasteignasala, samninga um sérfræðiaðsoð og ráðgjöf.

„Þetta er húseigandans að passa upp á“
Grýlukerti og klakabunkar sem víða sjást á húsþökum þessa dagana geta verið stórhættuleg þegar þau falla. Forvarnafulltrúi segir að húseigendur geti borið ábyrgð á tjóni sem af hlýst vegna klaka og grýlukerta. Þau geti reynst mjög hættuleg.

Hálka, grýlukerti og snjóhengjur
Þegar vetrarslys, föll og snjó og íshrun, verða við hús er spurt um ábyrgð eigenda þeirra. Það er engin almenn skráð lagaregla um ábyrgð húseigenda vegna slíkra slysa.. Hins vegar á ábyrgur húseigandi að vera vakandi gagnvart veðrabrigðum og slysagildrum.

Sakaði nágrannana um að hafa klippt runnana of mikið og eyðilagt þá
Kærunefnd húsamála metur það sem svo að hafna beri kröfum eiganda íbúðar í fjölbýlishúsi að aðrir eigendur í húsinu skuli greiða kostnað við að fjarlægja runna og gljámispil í sameiginlegum garði. Sá sakar nágrannana um að hafa klippt þá of mikið á garðvinnudegi í maímánuði þannig að þeir skemmdust.

Gluggasmið sem sagði verkið í „algjörum forgangi“ gert að endurgreiða innborgun að fullu
Fyrirtæki sem smíðar glugga hefur verið gert að endurgreiða viðskiptavini staðfestingargjald pöntunar að fullu eftir að viðskiptavinur ákvað að rifta samningi, þrettán mánuðum eftir að hann hafði samþykkt tilboð fyrirtækisins í smíði þriggja glugga og hurðar vegna lekavandamála í fasteign. Framkvæmdir voru þá ekki hafnar og ekki vitað til þess að fyrirtækið hefði hafið smíði glugganna.

Segir mörg fjölbýlishús ekki reiðubúin fyrir nýtt sorpflokkunarkerfi
„Það er vitað mál að aðstæður í sumum húsum bjóða ekkert upp á þetta, fjölmörg hús þurfa að fara í að bæta sína aðstöðu og hefðu í raun þurft að vera búin að því,“ segir Daníel Árnason, framkvæmdastjóri Eignaumsjónar, um nýtt sorphirðukerfi sem tekur gildi um áramót.

Dró sér rúmar þrjár milljónir sem gjaldkeri húsfélags
Gjaldkeri húsfélags hefur verið dæmdur í fimm mánaða skilorðsbundið fangelsi fyrir fjárdrátt með því að hafa dregið sér samtals 3.308.425 krónur í eigu húfélagsins. Gerði hún það með því að millifæra fé af bankareikningi félagsins inn á sína persónulegu bankareikninga í 165 færslum.