Stéttarfélög
12 13 14 15 16 17 18 19 20 … 26 ›
Hefur litla trúa á lýðræðisást atvinnurekenda Formaður Eflingar segir vinnu við verkfallsboðun vera í gangi og hefur litla trú á lýðræðisást formanns Samtaka atvinnulífsins. Forsætisráðherra segist ekki vera vongóð um að samningar náist á næstunni. Innlent 15.1.2023 22:31
Aragrúi af fordæmum séu fyrir kröfum Eflingar Eflingarfólk á heimtingu á meiri hækkunum þar sem húsnæðiskostnaður er mun hærri á höfuðborgarsvæðinu heldur en á landsbyggðinni. Þetta segir sérfræðingur Eflingar sem telur framfærsluuppbót nauðsynlega og þoli enga bið. Ástandið á höfuðborgarsvæðinu sé fordæmalaust en framfærsluuppbót sé það ekki. Innlent 15.1.2023 09:00
Segir félagsmenn Eflingar hringja í hrönnum til að reyna að flýja „Það eru glóandi línur hér,“ segir Halldóra Sigríður Sveinsdóttir, formaður Bárunnar stéttarfélags. Hún segir að margir tugir félagsmanna Eflingar hafi haft samband við Báruna í gær og í dag þar sem þeir leitast eftir því að skipta um stéttarfélag. Halldóra segir að sömu sögu sé að segja af stéttarfélögum á höfuðborgarsvæðinu. Innlent 12.1.2023 11:49
Tilboð Eflingar óaðgengilegt Halldór Benjamín Þorbergsson, framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins, segir að tilboð Eflingar til samtakanna um gerð kjarasamnings sé óaðgengilegt og að því hafi verið lýst yfir á fundi í kjaradeilunni í húsnæði ríkissáttasemjara í dag. Himinn og haf sé á milli tilboðsins og þeirra kjarasamninga sem þegar hafi verið gerðir. Hann er hugsi yfir því að starfsmenn á opinberum vinnumarkaði séu í samninganefnd Eflingar. Innlent 10.1.2023 14:12
Sakar Eflingu um að ala á klofningi milli verkafólks eftir búsetu Aðalsteinn Árni Baldursson, formaður Framsýnar stéttarfélags, sakar forystufólk Eflingar um að ala á klofningu á milli verkafólks á höfuðborgarsvæðinu og landsbyggðinni. Þetta sé gert með því að halda því fram að félagsmenn Eflingar þurfi hærri laun sökum þess að þeir starfi á höfuðborgarsvæðinu. Hann segir að svo virðist sem að Efling stefni í að verða eyland í íslenskri verkalýðsbaráttu. Innlent 9.1.2023 14:42
Leikhús fáránleikans Það hefur ekki verið auðvelt að sitja undir gegndarlausum árásum forystumanna Eflingar undanfarnar vikur, þar sem þeir hafa haldið uppi óskiljanlegum áróðri gegn nýlegum kjarasamningi Starfsgreinasambands Íslands og Samtaka atvinnulífsins, auk þess að tala niður formann SGS og aðildarfélög sambandsins. Skoðun 9.1.2023 14:00
„Gífurlega væn gulrót“ að flýta launahækkunum Samtök á opinberum vinnumarkaði funda í dag með samninganefnd ríkisins um nýja kjarasamninga. Formaður BHM segir félagsmenn óþreyjufulla og vill undirrita samning sem fyrst. Þannig megi kannski flýta launahækkunum til að vega á móti miklum kjarabruna. Innlent 5.1.2023 11:45
Sólveig Anna reiknar með að Efling geri gagntilboð Sólveig Anna Jónsdóttir, formaður Eflingar, segir að samninganefnd stéttarfélagsins muni nú leggjast yfir samningstilboð Samtaka atvinnulífsins um gerð nýs kjarasamnings sem lagt var fram í dag. Hún reiknar með því að SA verði gert gagntilboð. Innlent 4.1.2023 15:16
Lögðu fram samningstilboð til Eflingar Samtök atvinnulífsins hafa gert samninganefnd Eflingar tilboð um gerð kjarasamningsins, sem sé efnislega samhljóða kjarasamningnum sem gerður var nýverið við Starfsgreinasambandið. Samtökin segjast tilbúin til þess að ræða aðlögun samningsins að stöðu félagsmanna Eflingar, þó innan kostnaðarramma og meginlína samningsins sem gerður var við Starfsgreinasambandið. Innlent 4.1.2023 14:09
Úthúðar fyrrverandi starfsmanni og segir félagsdóm með ríkan sakfellingarvilja Sólveig Anna Jónsdóttir, formaður Eflingar, kallar fyrrverandi trúnaðarmann starfsmanna Eflingar „fáránlegan einstakling“ og sakar hann um lygar og áróður gegn sér. Félagsdómur dæmdi uppsögn Eflingar á trúnaðarmanninum ólöglega í gær en formaður segir dóminn hafa haft „ríkulegan sakfellingarvilja“. Innlent 4.1.2023 10:12
„Ég er og verð alltaf Eflingarmaður“ Uppsögn Eflingar á Gabríel Benjamin, trúnaðarmanni VR hjá Eflingu, var ólögmæt og brot gegn lögum um stéttarfélög og vinnudeilur. Jafnframt var brotið gegn ákvæðum í kjarasamningi VR og Samtaka atvinnulífsins frá 2019. Innlent 4.1.2023 06:07
Vonar að hreyfingin geti staðið þéttar saman fyrir næstu samninga Yfirgnæfandi meirihluti félagsmanna í VR, Landssambandi verslunarmanna og samfloti iðn- og tæknimanna hefur samþykkt skammtímasamning við Samtök atvinnulífsins. Formaður VR bindur vonir við að Efling nái að semja sem fyrst og að hreyfingin standi þéttar saman fyrir næstu samninga. Innlent 21.12.2022 19:39
Félagsmenn VR samþykktu kjarasamninga við SA og FA Félagsmenn VR hafa samþykkt kjarasamninga við Samtök atvinnulífsins og Félag atvinnurekenda en atkvæðagreiðslu lauk á hádegi í dag og voru niðurstöðurnar kynntar rétt í þessu. Báðir samningar voru samþykktir með yfir 80 prósent atkvæða. Innlent 21.12.2022 14:56
Eflingu hafi markvisst verið haldið frá viðræðum Samninganefnd Eflingar og fulltrúar Samtaka atvinnulífsins hittast í Karphúsinu klukkan eitt í dag, á fyrsta fundi undir stjórn ríkissáttasemjara frá því að kjaradeilunni var vísað þangað. Samninganefndin telur að Eflingarfélögum hafi markvisst verið haldið frá viðræðum um kjarasamninga að undanförnu. Innlent 16.12.2022 10:33
Með miklar fjárhagsáhyggjur og sitja eftir ein án samnings Tveir þriðju félagsfólks Eflingar með undir 500 þúsund krónur í mánaðarlaun er með miklar fjárhagsáhyggjur. Yfir þriðjungur allra Eflingarfélaga hafa þurft að leita sér aðstoðar vegna bágrar fjárhagsstöðu og fjórðungur gerði það hjá vinum eða ættingum. Margir eiga í erfiðleikum með afborganir lána. Innlent 13.12.2022 14:52
„Ég tel að menn hafi þarna samið af sér“ Formaður Eflingar segir nýundirritaða kjarasamninga á almennum vinnumarkaði fela í sér kaupmáttarrýrnun fyrir vinnandi fólk. Menn hafi samið af sér við gerð kjarasamninganna og hún harmi það. Innlent 13.12.2022 10:47
Friðrik vill fund nú þegar Friðrik Jónsson formaður BHM hefur sent frá sér yfirlýsingu þar sem hann hvetur formann samninganefndar ríkisins, Kristínu Lindu Árnadóttur, til að boða tafarlaust til fundar. Innlent 12.12.2022 14:42
Samningurinn felur í sér 6,75 prósent almenna launahækkun Kjarasamningur Samtaka atvinnulífsins við VR, Landssamband íslenskra verslunarmanna og samflot tækni- og iðnaðarmanna felur í sér 6,75 prósent almenna launahækkun sem afturvirk er frá 1. nóvember síðastliðnum. Skrifað var undir samningana fyrir stundu. Innlent 12.12.2022 14:01
Bein útsending: Skrifað undir kjarasamninga í Karphúsinu Samkomulag náðist í nótt í kjaradeilu Samtaka atvinnulífsins við VR, Landssamband íslenskra verslunarmanna og samflot tækni- og iðnaðarmanna. Skrifað verður undir klukkan 13. Innlent 12.12.2022 12:26
Samningar óvænt í höfn í Karphúsinu Samningar hafa tekist í kjaraviðræðum Samtaka atvinnulífsins við VR, LÍV – Landsamband íslenskra verslunarmanna, samflot iðnaðar- og tæknifólks. Þetta staðfestir Elísabet S. Ólafsdóttur aðstoðarríkissáttasemjari. Skrifað verður undir samninga klukkan 13 og verður Vísir í beinni útsendingu frá Karphúsinu. Innlent 12.12.2022 11:26
Stjórnvöld skapa rammann og nauðsynlegt að sýna þeim þrýsting Kristrún Frostadóttir, formaður Samfylkingarinnar segir stjórnvöld bera ábyrgð á því að setja umgjörð utan um íbúðamarkaðinn. Hún vísar því á bug að stjórnvöld hafi gert það sem þau geti til þess að sporna við hækkunum. Innlent 8.12.2022 23:18
„Að fólki skuli detta þetta til hugar er að mínu viti skammarlegt“ Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar fer hörðum orðum um ákvörðun Reykjavíkurborgar að draga saman seglin í leikskólamálum, meðal annars með því að fækka starfsfólki og skera niður í skólamáltíðum. Viðtal við Sólveigu má sjá hér í innslaginu að ofan og hefst á níundu mínútu. Innlent 8.12.2022 09:00
Ætlar ekki niður á fjóra fætur til að ná samningi Formaður VR segir tímarammann fyrir skammtímasamning vera mjög knappan en klára þurfi slíkan samning á allra næstu dögum. Ef það takist ekki þurfi að ræða langtímasamninga og því kunni að fylgja átök. Þó markmiðið sé að klára samninga fljótt og vel segist formaðurinn ekki ætla að fara niður á fjóra fætur til að ná samningi fyrir jól. Innlent 7.12.2022 14:29
Efling vísar kjaradeilu til ríkissáttasemjara Stéttarfélagið Efling hefur vísað kjaradeilu sinni við Samtök atvinnulífsins (SA) til ríkissáttasemjara. Formaður Eflingar segir það óhjákvæmilega aðgerð. Innlent 7.12.2022 12:58
Voru ekki beðin um að fresta undirskrift: „Sirkus sem heldur bara áfram“ Formaður Framsýnar segir ekki rétt að forkólfar Framsýnar á Húsavík hafi verið beðnir um að fresta því að skrifa undir samning Starfsgreinasambandsins við Samtök Atvinnulífisins. Fulltrúarnir hafi einfaldlega ekki komist suður til að skrifa undir. Umræða um að Framsýn hafi ekki ætlað að vera með sé hluti af tilraunum fólks til að grafa undan samningunum. Innlent 7.12.2022 10:14
Forystufólk einbeiti sér að eigin samningum í stað þess að rífa niður aðra Formaður Starfsgreinasambandsins segir formann Eflingar hafa tekið meðvitaða ákvörðun um að vera ekki í samfloti við aðra fyrir kjaraviðræður og leggur til að hún einbeiti sér að því að ná kjarasamnningi handa sínu fólki frekar en að rífa niður samning Starfsgreinasambandsins. Formaður Eflingar segir gagnrýni sína fullkomlega réttmæta og segir samninginn til marks um óþolinmæði. Innlent 5.12.2022 23:09
Ekki mikill tími til stefnu Von um skammtímasamning er úti ef ekki tekst að semja á næstu dögum að mati formanns VR. Mikil ólga ríkir innan verkalýðshreyfingarinnar eftir að Starfsgreinasambandið samdi við Samtök atvinnulífsins um helgina. Innlent 5.12.2022 18:43
Vill einbeita sér að samningum í stað þess að munnhöggvast við félaga sína Formaður VR segir stöðuna sem upp er komin eftir deilur milli formanns Eflingar og formanns Starfsgreinasambandsins sorglega og eitthvað sem hann átti ekki von á. Sjálfur ætli hann ekki að taka afstöðu og munnhöggvast við félaga sína en er þó gagnrýninn á samning Starfsgreinasambandsins við Samtök atvinnulífsins. Innlent 5.12.2022 18:07
Villuljós í Vikulokum Það var áhugavert að hlusta á kunnuglega orðræðu Hildar Björnsdóttur, borgarfulltrúa og oddvita Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík, um launaþróunina í útvarpsþættinum Vikulokunum á Rás 1 sl. laugardag. Þar ræddi oddvitinn um hvernig hún vill skerða þjónustu Reykjavíkurborgar, skerða réttindi opinbers starfsfólks og ná þannig fram hagræðingu í fjármálum borgarinnar. Skoðun 5.12.2022 12:31
Herinn í viðbragðsstöðu fyrir umfangsmikil verkföll á Bretlandseyjum Hjúkrunarfræðingar, sjúkraliðar og sjúkraflutningamenn eru meðal þeirra sem hafa boðað umfangsmikil verkföll á Bretlandseyjum í desember vegna launamála. Breski herinn hefur verið settur í viðbragðsstöðu vegna málsins. Verkalýðsfélög innan annarra geira hafa sömuleiðis boðað verkfall. Erlent 30.11.2022 17:19