
Ábyrg framtíð

Auglýstu á samfélagsmiðlum fyrir 45 milljónir
Stjórnmálaflokkar, aðildarfélög þeirra og einstaka frambjóðendur til Alþingis vörðu samtals um 44,8 milljónum króna í auglýsingar á samfélagsmiðlum Meta síðustu 30 dagana fyrir kosningar. Mestu varði Sjálfstæðisflokkurinn eða rétt tæpum níu milljónum króna, þá Flokkur fólksins sem notaði rúmar 7,5 milljónir í slíkar auglýsingar og Framsóknarflokkurinn kemur þar fast á hæla með rúmar 7,2 milljónir sem fóru í auglýsingar á samfélagsmiðlum Meta, það er Facebook og Instagram. Samfylkingin er í fjórða sæti og eyddi tæpum 5,7 milljónum og þá Miðflokkurinn sem eyddi rétt undir 4,6 milljónum.

Lokatölur úr Reykjavík norður: Stórsigur Samfylkingarinnar
Loktölur hafa borist úr Reykjavíkurkjördæmi norður. Samfylkingin vann stórsigur í kjördæminu og er með 26,1 prósent. Í síðustu kosningum var flokkurinn með 12,6 prósent.

Samtöl við kjósendur standa upp úr
Jóhannes Loftsson, stofnandi Ábyrgrar framtíðar segir það sérstakt að kjósa en geta ekki veitt sjálfum sér atkvæði, þar sem hann býr í Reykjavík suður en flokkurinn býður fram í Reykjavík norður.

Kosningavaktin: Sögulegar kosningar að baki
Eftir snarpa baráttu eru sögulegar Alþingiskosningar að baki. Sjálfstæðisflokkur fékk sína verstu kosningu frá upphafi og Samfylkingin er stærsti flokkur landsins í annað sinn í sögunni. Þá eru bæði Vinstri græn og Píratar dottin af þingi á meðan Viðreisn og Flokkur fólksins uppskáru ríkulega.

Sjálfstæðisflokkur stekkur fram úr Viðreisn og Samfylking áfram efst
Sjálfstæðisflokkurinn stekkur upp um 3,1 prósentustig og tekur fram úr Viðreisn í nýjustu könnun Maskínu. Samfylkingin bætir lítillega við sig og mælist áfram stærst en Viðreisn dalar um tvö prósentustig. Botnbaráttan herðist en litlar breytingar er að sjá þess utan.

Kosningavaktin: Íslendingar kjósa sér nýtt þing
Íslendingar munu kjósa sér nýtt þing laugardaginn 30. nóvember. Fylgst verður með nýjustu tíðindinum í aðdraganda kosninga hér í Kosningavaktinni.

Tvær á toppnum
Flestir vilja fá formann Samfylkingarinnar sem næsta forsætis- eða fjármálaráðherra þjóðarinnar samkvæmt nýrri könnun Maskínu. Formaður Viðreisnar er í öðru sæti en tvöfalt fleiri, en í síðustu könnun, telja hana besta kostinn í stól forsætisráðherra. Sífellt færri vilja sjá formenn ríkisstjórnarflokkanna sem næsta leiðtoga ríkisstjórnarinnar.

Þversagnakennt hve lítið sé talað loftslagsmál
Formaður Landverndar segir það þversagnakennt hve lítið sé talað um loftslagsmálin í kosningabaráttunni, í ljósi þess að lofstlagsváin hafi aðeins orðið meiri á undanförnum árum.

„Tvær undirskriftir sem vantaði“
Forsvarsmenn Lýðræðisflokksins og Ábyrgrar framtíðar segja stjórnmálasamtökin vera búin að lagfæra framboð sín í komandi Alþingiskosningum eftir að hafa fengið aðfinnslur frá Landskjörstjórn. Sósíalistaflokkurinn fékk líka aðfinnslur en skrifstofustjóri flokksins segir þær tilkomnar vegna tæknilegra örðugleika.

Framboðslisti Ábyrgrar framtíðar í Reykjavík norður
Stjórnmálaflokkurinn Ábyrg framtíð hefur nú birt framboðslista sinn í eina kjördæminu sem þau bjóða fram, Reykjavíkurkjördæmi norður. Jóhannes Loftsson stofnandi flokksins er í fyrsta sæti og Guðmundur Karl Snæbjörnsson læknir í öðru.

Þrjú framboð fengu aðfinnslur frá kjörstjórn
Þrjú stjórnmálasamtök hafa fengið aðfinnslur frá landskjörstjórn vegna lista sem skilað var inn í gær. Tvö þeirra segjast engar áhyggjur hafa af málinu en kosningastjóri þess þriðja harðneitar að tjá sig um málið.

Ábyrg framtíð býður bara fram í Reykjavík norður
Flokkurinn Ábyrg framtíð hyggst bjóða fram lista í Reykjavíkurkjördæmi norður í komandi þingkosningum.

Ábyrg framtíð vill að höfuðborgin sé áfram fyrir alla landsmenn
Landsmenn vilja þjónustu sem er hægt að sækja þegar þess þarf án umferðatafa eða allskonar þrenginga.

Oddvitaáskorunin: Fór í þrjátíu sekúndna gamlárssund í áratug vegna veðmáls
Vísir stendur fyrir Oddvitaáskoruninni 2022 þar sem skorað er á oddvita allra flokka í sveitarfélögum um land allt að taka þátt. Áskorunin felur í sér stutta kynningu og að svara nokkrum léttum spurningum.

Hvernig björgum við Reykjavíkurflugvelli?
Við búum á undarlegum tímum. Í nýlegri könnun á vegum Bylgjunnar vildu 79% þátttakenda hafa flugvöll áfram í Vatnsmýri en samt vinna borgaryfirvöld af því hörðum höndum að loka vellinum og flytja annað.

Hvað vilja borgarbúar?
Ábyrg framtíð hugsar til framtíðar. Við viljum flæðandi umferð í borginni með því að fækka gönguljósum sem auðvelt er að breyta yfir í göngubrýr eða undirgöng. Við ætlum að fækka umferðaljósum á t.d. á Bústaðavegi, setja í stað þeirra lítil hringtorg eða sjálfstýrandi ljós og „ná þannig flæði“.

Einkabíllinn eflir lýðheilsu, velsæld og menningarstarf
Einkabílum fjölgaði verulega um og eftir 1970 og olli byltingu í þjóðfélaginu er varðar afköst, tímasparnað og möguleika að stunda margvíslega menningarstarfsemi, félagsstarf og nám sem varð auðveldara jafnframt vinnu og heimilishaldi.

Viðey í fortíð og framtíð
Við hjá Ábyrgri framtíð hugðumst fara í vettvangskönnun til Viðeyjar. Það var hægara sagt en gert, því engar siglingar eru í boði yfir vetrarmánuðina. Fyrsta ferðin verður daginn eftir bæjar- og sveitarstjórnarkosningarnar, að öllu óbreyttu.

Ekki leita dýrt yfir ódýrt - Leysum frekar umferðarvandann strax
Samgöngusáttmálinn sem kynntur var árið 2018, var einstætt tímamótasamkomulag þar sem háar fjárhæðir voru eyrnamerktar risaframkvæmdum sem margar voru þá enn á slíku hugmyndastigi að fáir vissu í raun um hvað var verið að semja.

Vanhæft RÚV?
Aldrei hafa fleiri smit mælst á einum degi frá upphafi faraldurs enmiðvikudaginn 10. nóvember, þ.e. 200 manns. Og það þrátt fyrir að 89% landsmanna, 12 ára og eldri séu full bólusettir.

Ábyrg framtið-xY
Senn líður að kosningum til Alþingis, kosningar í kjölfar fordæmalausra tíma í sögu þjóðarinnar. Undanfarið eitt og hálft ár hefur gildismati okkar verið snúið á haus.

Oddvitaáskorunin: Mótmælti samkomutakmörkunum á Austurvelli allar helgar síðan í október
Vísir stendur fyrir Oddvitaáskoruninni 2021 þar sem skorað er á oddvita allra flokka í kjördæmum um land allt að taka þátt. Áskorunin felur í sér stutta kynningu og að svara nokkrum léttum spurningum.

Synjun um framboðslista Ábyrgrar framtíðar staðfest
Landskjörstjórn hefur staðfest úrskurð yfirkjörstjórnar Suðurkjördæmis um að framboðslista sem Ábyrg framtíð skilaði inn yrði hafnað. Grundvöllur úrskurðarins var sá að tilskyldum meðmælafjölda var ekki náð.

Formaður Ábyrgrar framtíðar um synjun framboðslista: „Ef þetta er ólöglegt, þá gætu kosningarnar í heild sinni orðið ólöglegar“
Jóhannes Loftsson, formaður Ábyrgrar framtíðar, lýsir yfir mikilli óánægju með að lista framboðsins hafi verið hafnað af yfirkjörstjórn í suðurkjördæmi í gær. Grundvöllur úrskurðarins var sá að tilskyldum meðmælafjölda var ekki náð og því býður flokkurinn aðeins fram í einu kjördæmi, Reykjavíkurkjördæmi norður.

Ábyrg framtíð fékk ekki tilskilinn meðmælafjölda í Suðurkjördæmi
Yfirkjörstjórn í Suðurkjördæmi úrskurðaði síðdegis að framboðlista sem Ábyrg framtíð skilaði inn yrði hafnað. Grundvöllur úrskurðarins var sá að tilskyldum meðmælafjölda var ekki náð.

Efasemdarmönnum gengur hægt að safna undirskriftum
Meiri gangur er í atkvæðagreiðslu utan kjörfundar í aðdraganda þingkosninga en á sama tíma við síðustu kosningar. Nýju stjórnmálahreyfingunni Ábyrgri framtíð gengur hægt að safna undirskriftum, en á meðal stefnumála hennar er að nota óhefðbundin lyf við Covid-19.

Þvingað samþykki?
Á mánudag var íbúum hjúkrunarheimila boðin þriðja sprautan vegna Covid-19. Þau voru með þeim fyrstu til að fá sprautur, milli jóla og nýárs. Almenningi var einnig boðin önnur eða þriðja sprautan í Laugardagshöll.