Landsliðsmenn sakaðir um kynferðisofbeldi „
6 7 8 9 10 ›
„KSÍ er bara, held ég, mjög spillt apparat“ Hanna Björg Vilhjálmsdóttir, kennari við Borgarholtsskóla, fór ekki fögrum orðum um forystu KSÍ í útvarpsþættinum Sprengisandi í morgun. Hún kallar eftir því að öll stjórn sambandsins segi af sér. Innlent 29.8.2021 14:29
Mikil undiralda í knattspyrnuhreyfingunni en KSÍ heldur spilum þétt að sér Stjórn KSÍ heldur spilunum þétt að sér eftir fundarhöld gærdagsins en stjórnarmenn komu saman á fundi klukkan tíu í morgun. Heimildir fréttastofu herma að mikil undiralda sé í knattspyrnuhreyfingunni á Íslandi og að krafa sé um afsögn formanns og stjórnar KSÍ. Innlent 29.8.2021 12:19
Samtök stærstu knattspyrnufélaga landsins vilja að hluteigandi axli ábyrgð Stjórn Íslensks toppfótbolta (ÍTF), hagsmunasamtaka félaga í efstu deildum á Íslandi, segir að hluteigendur í máli KSÍ og ónefnds landsliðsmanns sem gengist hefur við kynferðisbroti eigi að axla ábyrgð. Sport 28.8.2021 23:12
Segir að minnst sex núverandi eða fyrrverandi landsliðsmenn hafi verið sakaðir um ofbeldi Kona, sem varð fyrir ofbeldi af hálfu landsliðsmanns í knattspyrnu, segir að minnst sex núverandi eða fyrrverandi landsliðsmenn í fótbolta hafi verið sakaðir um ofbeldi. Hún kallar eftir afsögn stjórnarmanna KSÍ. Innlent 28.8.2021 20:00
KSÍ hefur lokið maraþonfundi án niðurstöðu og heldur áfram á morgun Knattspyrnusamband Íslands, KSÍ, hefur fundað frá hádegi í dag og verður fundarhöldum framhaldið á morgun um ofbeldismál innan sambandsins. Fótbolti 28.8.2021 19:58
Hetjur innan vallar en víða pottur brotinn utan vallar Þeir sameinuðu íslensku þjóðina með góðu gengi sem náði hápunkti á Evrópumótinu í Frakklandi 2016 og vöktu athygli um allan heim fyrir árangur sinn. Á þeim fimm árum sem hafa síðan liðið hefur hver hrollvekjusagan af landsliðsmönnum Íslands í knattspyrnu farið sem eldur í sinu um samfélagið, ýmist í formi óstaðfestra eða staðfestra sagna. Sport 28.8.2021 15:39
Landsliðsmaður tekur undir gagnrýni á KSÍ Knattspyrnusamband Íslands hefur sætt mikilli gagnrýni eftir að Guðni Bergsson, formaður sambandsins, neyddist til að draga orð sín til baka um að KSÍ hefði engar tilkynningar fengið um kynferðisbrot landsliðsmanna í fótbolta. Martin Hermannsson, landsliðsmaður í körfubolta, er á meðal þeirra sem setur spurningamerki við starfshætti sambandsins. Sport 28.8.2021 12:46
„Það eru oft viðbrögð við ásökunum um brot sem fella forystur og fólk“ Kynjafræðingur segir allt traust almennings til KSÍ brostið og kallar eftir afsögn allra stjórnarmanna, eftir að ung kona greindi frá ofbeldisbroti leikmanns og meintum þöggunartilburðum sambandsins. Stjórn Knattspyrnusambands Íslands fundar í hádeginu vegna málsins. Innlent 28.8.2021 12:20
Svona svaraði Guðni forseti þegar faðir þolanda sendi honum bréf Guðna Th. Jóhannessyni, forseta Íslands, barst í mars 2018 bréf frá föður þolanda knattspyrnumanns í landsliði Íslands. Guðni svaraði bréfi föðurins og hafði í kjölfar samband við Guðna Bergsson, formann Knattspyrnusambands Íslands, þar sem þeir ræddu málið. Innlent 27.8.2021 22:31
KSÍ neitar að hafa boðið þolanda þagnarskyldusamning Knattspyrnusamband Íslands segir það rangt að lögmaður á vegum sambandsins hafi boðið þolanda ofbeldis af hálfu landsliðsmann í knattspyrnu þagnarskyldusamning gegn bótagreiðslu. Aðgerðahópurinn Öfgar öfgar skorar á Guðna Bergsson, formann KSÍ, að segja af sér. Innlent 27.8.2021 21:59
Þolanda landsliðsmanns var boðinn þagnarskyldusamningur Ung kona sem var beitt kynferðisofbeldi af leikmanni karlalandsliðsins segir formann Knattspyrnusambands Íslands hafa verið meðvitaðan um brotið. Formaðurinn segist ekki hafa verið meðvitaður um að brotið hafi verið af kynferðislegum toga. Innlent 27.8.2021 19:31
„Blaut tuska í andlitið á þolendum“ Hanna Björg Vilhjálmsdóttir, kynjafræðingur og formaður jafnréttisnefndar Kennarasambands Íslands, segir formann Knattspyrnusambands Íslands ekki vera að axla ábyrgð á kynferðisbrotamálum innan hreyfingarinnar og sakar hann um að ljúga upp í opið geðið á þjóðinni. Innlent 26.8.2021 12:04
KSÍ hefur verið í sambandi við Gylfa og hans fólk Knattspyrnusamband Íslands hefur verið í sambandi við Gylfa Þór Sigurðsson og fjölskyldu hans. Fótbolti 26.8.2021 11:31
„Við viljum auðvitað hafa þessa hreyfingu okkar án ofbeldis“ Guðni Bergsson, forseti Knattspyrnusambands Íslands, telur að sögusagnir um meint brot landsliðsmanna kunni að blandast inn í það þegar leikmannahópar fyrir stórmót eru settir saman. Slík mál séu þó þess eðlis að oft sé ekki hægt að segja allt um þau sem segja þurfi til að skýra málin. Innlent 25.8.2021 20:32
Arnar Þór hefur ekki rætt við Gylfa Arnar Þór Viðarsson, þjálfari íslenska karlalandsliðsins í fótbolta, segist ekki hafa rætt við Gylfa Þór Sigurðsson eftir að hann var handtekinn á Englandi vegna gruns um kynferðisbrot gegn ólögráða stúlku. Fótbolti 25.8.2021 13:59
Svona var blaðamannafundur KSÍ Landsliðsþjálfararnir Arnar Þór Viðarsson og Eiður Smári Guðjohnsen sátu fyrir svörum á blaðamannafundi í Laugardal í dag þar sem þeir tilkynntu hópinn fyrir næstu leiki í undankeppni HM karla í fótbolta. Fótbolti 25.8.2021 12:32
Fyrsti landsliðshópurinn frá handtöku Gylfa tilkynntur á morgun Arnar Þór Viðarsson hefur eflaust þurft að brjóta heilann um ýmislegt fyrir val sitt á landsliðshópi karla í fótbolta. Hann verður tilkynnur á morgun en Ísland mætir Rúmeníu, Norður-Makedóníu og Þýskalandi í undankeppni HM í byrjun september. Fótbolti 24.8.2021 13:33
Segir Guðna og forystu KSÍ vita af umræddu kynferðisofbeldi „Í mínum huga eru viðbrögð KSÍ sorgleg. Börn og ungmenni eiga meira skilið en að alast upp við það gildi og menningu að ofbeldi sé ekki ámælisvert.“ Þetta segir í grein frá Hönnu Björg Vilhjálmsdóttur, framhaldsskólakennara og forkonu jafnréttisnefndar KÍ. Undir greinina skrifa einnig meðlimir í femínistahópnum Öfgum og hópnum Aktívismi gegn nauðgunarmenningu. Segja þær KSÍ þurfa að taka gerendur ofbeldis úr íslenska karlalandsliðinu í fótbolta. Fótbolti 19.8.2021 10:46
Mikil er skömm þín, KSÍ Vönduð forysta er auðmjúk, hugrökk, horfist í augu við eigin mistök, með skýra sýn á markmið, ábyrg, trúverðug, traust, með gott siðvit og tilfinningagreind. Í yfirlýsingu KSÍ frá 17. ágúst sl. er grein minni frá 13. ágúst sl. svarað. Þar skoraði ég á KSÍ að axla ábyrgð á ofbeldismenningu og ofbeldismönnum innan þeirra raða sambandsins. Skoðun 19.8.2021 09:01
KSÍ þaggi hvorki niður ofbeldismál né hylmi yfir með gerendum Knattspyrnusamband Íslands vísar á bug dylgjum þess efnis að sambandið þaggi niður ofbeldismál eða hylmi yfir með gerendum. Þetta kemur fram í yfirlýsingu frá sambandinu til fjölmiðla. Íslenski boltinn 17.8.2021 13:55
Gylfi Þór verður áfram laus gegn tryggingu Gylfi Þór Sigurðsson hefur gengið laus gegn tryggingu allt frá því að hann var handtekinn í síðasta mánuði. Ákveðið hefur verið að sama fyrirkomulag muni gilda til 16. október. Innlent 14.8.2021 21:05
Segir KSÍ hafa vitað af brotum leikmanna landsliðsins Hanna Björg Vilhjálmsdóttir, framhaldsskólakennari og forkona jafnréttisnefndar Kennarasambands Íslands, segir KSÍ hafa vitað af nauðgun, heimilisofbeldi og fleiri brotum leikmanna íslenska karlalandsliðsins í knattspyrnu. Hún segist hafa fengið miklar þakkir fyrir þá umræðu sem hún opnaði fyrr í dag. Innlent 13.8.2021 19:51
Gagnrýnir KSÍ vegna frásagnar af hópnauðgun landsliðsmanna Forkona jafnréttisnefndar Kennarasambands Íslands og framhaldsskólakennari segist hafa heyrt fjölda frásagna af landsliðsmönnum í knattspyrnu sem séu sagðir beita konur ofbeldi. Bæði kynferðislegu og heimilisofbeldi. Knattspyrnusamband Íslands bregðist ekki við. Innlent 13.8.2021 14:06
Um KSÍ og kvenfyrirlitningu Óhætt er að fullyrða að knattspyrna sé vinsælasta íþrótt heims. Fólk sem hefur í raun engan áhuga á íþróttum á sér uppáhaldslið og fylgist spennt með mótum. Á sama tíma hefur spilling og ákveðið siðleysi fylgt íþróttinni, a.m.k undanfarna áratugi. Vafalaust tengist það þeirri staðreynd að vinsældunum fylgja miklir fjármunir. Skoðun 13.8.2021 11:01
Liðsmenn Everton sagðir vilja að Gylfi verði nafngreindur Liðsmenn knattspyrnufélagsins Everton hafa kallað eftir því að liðsfélagi þeirra, sem handtekinn var fyrir viku grunaður um kynferðisbrot gegn barni og heimildir Vísis staðfesta að sé Gylfi Þór Sigurðsson, verði nefndur á nafn. Innlent 23.7.2021 09:35
Gylfi sagður neita sök Gylfi Þór Sigurðsson, leikmaður Everton í ensku deildinni og landsliðsmaður, er sagður harðneita þeim ásökunum sem bornar eru á hann. Hann er grunaður um kynferðisbrot gegn barni og var handtekinn á föstudaginn í Manchester í Englandi. Innlent 21.7.2021 10:50
Gylfi Þór sá sem var handtekinn Gylfi Þór Sigurðsson landsliðsmaður í knattspyrnu er sá leikmaður hjá enska knattspyrnuliðinu Everton sem lögregla í Manchester handtók á föstudag í tengslum við kynferðisbrot gagnvart ólögráða stúlku, samkvæmt áreiðanlegum heimildum fréttastofu. Everton greindi frá því í gær að um væri að ræða leikmann liðsins. Innlent 20.7.2021 13:52
Innflytjandinn ákveðið að fjarlægja allt markaðsefni með Gylfa Þór Innflytjandi orkudrykkjarins State Energy hefur ákveðið að taka niður allt auglýsingaefni með Gylfa Þór Sigurðssyni, fótboltamanni Everton og landsliðsmanni, sem mátti finna í Hagkaup og fleiri verslunum. Innlent 20.7.2021 13:27
Forysta KSÍ ræddi um Gylfa í morgun Klara Bjartmarz, framkvæmdastjóri Knattspyrnusambands Íslands, segir að sambandið hafi ekki fengið upplýsingar um hvort knattspyrnumaðurinn sem lögregla í Manchester handtók á föstudag hafi verið Gylfi Þór Sigurðsson, landsliðsmaður og leikmaður Everton í ensku úrvalsdeildinni. Innlent 20.7.2021 10:43
Leikmaður Everton til rannsóknar í lögreglumáli Enska fótboltaliðið Everton hefur staðfest að leikmaður þeirra sé til rannsóknar í lögreglumáli. Breskir miðlar greindu frá því í dag að leikmaðurinn hafi verið handtekinn grunaður um kynferðisbrot gegn barni. Fótbolti 19.7.2021 23:51
Uppgjörið: Valur - Breiðablik 0-0 | Breiðablik Íslandsmeistari eftir spennutrylli Íslenski boltinn