„Þarf að hreinsa meira til en að láta Guðna einan bera þennan kross“ Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 30. ágúst 2021 11:36 Sævar Pétursson er framkvæmdastjóri KA og á sæti í stjórn ÍTF. Óánægja er innan fótboltahreyfingarinnar á Íslandi með niðurstöðu maraþonfundar KSÍ um helgina. Að mati ÍTF, hagsmunasamtaka félaganna í efstu tveimur deildum karla og kvenna, þarf að gera breytingar á stjórn KSÍ.
Hart hefur verið sótt að KSÍ undanfarna daga eftir að ung kona steig fram í viðtali við RÚV og greindi frá kynferðisofbeldi sem hún varð fyrir af hendi landsliðsmanns. Hann viðurkenndi brot sitt og greiddi henni miskabætur. Hún var hins vegar ósátt við að Guðni Bergsson hefði greint frá því í viðtali við Kastljós að engin kynferðisofbeldismál hefðu komið á borð sambandsins með formlegum hætti. Guðni dró seinna í land og sagði að sig hefði minnt að um ofbeldismál hefði verið að ræða. Guðni sagði af sér sem formaður KSÍ í gær en stjórn sambandsins ákvað að sitja áfram. Gísli Gíslason og Borghildur Sigurðardóttir, varaformenn KSÍ, gegna störfum formanns á meðan. Í samtali við Bítið á Bylgjunni sagði Borghildur að ekki hafi verið möguleiki á því að öll stjórnin myndi hætta. Þá yrði sambandið óstarfhæft. Stjórn ÍTF fundaði í gær og yfirlýsingar er að vænta frá samtökunum í hádeginu. Sævar Pétursson, framkvæmdastjóri KA, situr í stjórn ÍTF og segir að þar á bæ ríki óánægja með hvernig KSÍ hafi tekið á málunum. „Í stórum dráttum finnst fólki ekki nógu langt gengið og er ósátt við viðbrögðin sem komu frá KSÍ um helgina. Fólki finnst að meira þurfi að gera. Sú forysta sem er í dag er rúin trausti og það þarf að taka meira til að hægt að sé að halda áfram og unnið aftur traust hjá hreyfingunni og samfélaginu. Það þarf að hreinsa meira til en að láta Guðna einan bera þennan kross,“ sagði Sævar við Vísi í morgun. Guðni Bergsson er hættur sem formaður KSÍ eftir fjögurra ára starf.vísir/daníel Honum finnst afsögn lykta af því að Guðni hafi verið gerður að hálfgerðum blóraböggli í málinu. Fleiri þurfi að axla ábyrgð. Fleiri hafa komið að þessu máli og höndlað það illa „Það er mín persónulega skoðun að Guðni sé að axla ábyrgð sem mun fleiri þurfa að gera. Mun fleiri koma að þessu máli og hafa höndlað það illa. Það þarf að skipta út meiri forystu til að það verði sátt um okkar störf. Þarna skipta nöfn litlu máli. Við þurfum að fá aðila sem byrja með hreint borð og geta komið fram af auðmýkt fyrir hönd hreyfingarinnar og höndlað þessi mál því það hefur svo sannarlega ekki verið gert,“ sagði Sævar. Klara Bjartmarz situr enn sem framkvæmdastjóri KSÍ en hún hefur unnið lengi fyrir sambandið. En er það krafa ÍTF að Klara víki sem framkvæmdastjóri? „Án þess að fara út í smáatriði hver krafan er, því yfirlýsingar frá ÍTF er að vænta og hún talar fyrir sig, er það ekkert launungarmál að langstærstur hluti félaga ÍTF og jafnvel í neðri deildunum er ósátt við þá niðurstöðu sem kom frá KSÍ í gær,“ sagði Sævar. Klara Bjartmarz hefur fengið sinn skerf af gagnrýni undanfarna daga.vísir/egill Að hans sögn er ÍTF og fótboltahreyfingin í landinu samhljóða í áliti sínu á stöðunni. „Þú verður kannski aldrei með einróma en það hefur sjaldan verið jafn mikil samstaða. Sjaldan hefur komið upp mál þar sem jafn margir eru sammála,“ sagði Sævar. Krafa að boða til aukaþings Rætt var um að boða til aukaþings KSÍ þar sem ný stjórn yrði kosin en engin formleg tillaga var lögð fram. Stjórn KSÍ hyggst sitja fram að næsta ársþingi sem fer fram í febrúar á næsta ári. Að sögn Sævars vilja aðildarfélög KSÍ ekki bíða svo lengi og boða til aukaþings. „Ég held að það verði krafa aðildarfélaganna að það verði boðað til aukaþings. Mér heyrist að það sé almennur vilji hjá félögunum að stjórnarfólk endurnýi umboð sitt til að vinna til baka það traust sem þarf til að stýra svona fjöldahreyfingu eins og KSÍ. Þú getur ekki verið í fararbroddi fyrir hreyfinguna þegar þú ert ekki með fullt traust og umboð hennar til að taka á þessum málum,“ sagði Sævar. Þarf að rétta upp hönd og viðurkenna ítrekuð mistök Hann segir að KSÍ þurfi að byrja á núllpunkti og viðurkenna mistök sín til að hægt verði að endurheimta traust, bæði fótboltahreyfingarinnar og almennings. „KSÍ þarf að byrja upp á nýtt. Það þarf breyta þeirri menningu sem hefur verið viðloðandi þarna. Það er kannski ekki auðvelt að segja einn, tveir og þrír hvað það er nákvæmlega en fyrir það fyrsta þarf fólk að rétta upp hönd og viðurkenna mistökin sem voru ítrekað gerð og læra af þeim. Þú þarft að fara fram á við með betrumbótum en ekki feluleik og undankomu og tækla vandamálið sem er til staðar,“ sagði Sævar. „Til að hægt sé að ráðast í endurbætur þarf sú stjórn og forysta sem fær það verk að vera með traust hreyfingarinnar og almennings. Það er mitt mat að sú forysta sem er núna sé ekki með það traust. Ég hef ekkert út á einstaklingana að setja en það er bara búið að vinna hlutina það illa að þetta traust er ekki til staðar.“
KSÍ Kynferðisofbeldi Landsliðsmenn sakaðir um kynferðisofbeldi Mest lesið Leyndu því að yfir hundrað íþróttamenn höfðu fallið á lyfjaprófi Sport Robertson vildi ekki ræða Liverpool Fótbolti Reiddist Guðjóni og hætti í landsliðinu: „Þér er ekki fyrirgefið fyrir svona“ Fótbolti Hlakkar til að mæta syni Eiðs Smára Fótbolti Þarf að velja á milli Ólympíuleika og Onlyfans Sport Endurkomukóngarnir tryggðu sigur á lokasekúndunni Körfubolti „Menn eru búnir að læra“ Fótbolti Undrabarnið í aðalhlutverki í sýningu Spánverja Fótbolti Földu sig inn á klósetti í 27 klukkutíma og sáu úrslitaleikinn fritt Fótbolti Í bann fyrir að hylja skilaboð gegn hommafælni Fótbolti Fleiri fréttir Arnar sá Souness slást við leikmenn sína: „Voru allir skíthræddir við hann“ Sara Björk sá vel um sínar og Ísland mætir Norður-Írlandi í umspili Coco Gauff batt enda á franska ævintýrið „Minn draumur er að fá að spila í úrslitakeppninni“ Í bann fyrir að hylja skilaboð gegn hommafælni „Menn eru búnir að læra“ Robertson vildi ekki ræða Liverpool Rodgers skrifaði loks undir hjá Steelers Hlakkar til að mæta syni Eiðs Smára Endurkomukóngarnir tryggðu sigur á lokasekúndunni Leyndu því að yfir hundrað íþróttamenn höfðu fallið á lyfjaprófi Þarf að velja á milli Ólympíuleika og Onlyfans Dagskráin: Íslenska karlalandsliðið í fótbolta mætir Skotum Elín Klara og Reynir Þór valin best Til í að taka af sér tána til að komast fyrr inn á völlinn Földu sig inn á klósetti í 27 klukkutíma og sáu úrslitaleikinn fritt „Spenntur að spila á móti svona stórum gæjum“ Úsbekistan á HM í fótbolta í fyrsta sinn Undrabarnið í aðalhlutverki í sýningu Spánverja Segir nýja Brassann hjá Chelsea geta orðið eins góður og Lamine Yamal Gerðu markalaust jafntefli við Brasilíumenn Dómari í enska boltanum segist hata VAR Undrabarnið nú verðmætasti knattspyrnumaður heims Guðjóni Val tókst ekki að hjálpa löndum sínum Liverpool byrjar undirbúningstímabilið á móti Stefáni Teiti Sjúkraþjálfarinn fær stöðuhækkun hjá Þórsliðinu Hættur eftir að hafa spilað með 42 liðum Í bann eftir að hafa montað sig af dólgslátum Kerkez spilar ekki með Ungverjum: Sagður á leið til Liverpool að skrifa undir Allt snýst um McTominay í Skotlandi: „Reif Serie A í sig“ Sjá meira