
Vegagerð

Framkvæmdum ljúki „vonandi fyrir verslunarmannahelgi“
Vegagerðin stefnir að því að ljúka framkvæmdum við gatnamót Kringlumýrar- og Miklubrautar fyrir verslunarmannahelgi, þannig að umferð tefjist ekki lengur við þessi fjölförnustu gatnamót landsins.

Mögulegt að einhverjir stofnar séu þegar glataðir
Sviðsstjóri hjá Hafrannsóknarstofnun segir að ráðast þurfi í bráðaaðgerðir til að koma vatni í Grenlæk í Landbroti í Vestur-Skaftafellssýslu. Hann segir stöðuna sem þar er uppi grafalvarlega fyrir lífríkið, og að mögulega séu einhverjir stofnar þar þegar útdauðir.

Dauðir fiskar hrannast upp og kerfið gerir ekkert
Grenlækur í Landbroti hefur staðið á þurru á ellefu kílómetra kafla síðan í vor og meirihluti hrygningarfiska er dauður. Sonur landeigenda segir stöðuna grafalvarlega.

Umferð hafi vaxið umfram fjárveitingar til viðhalds
Bergþóra Kristinsdóttir framkvæmdarstjóri þjónustusviðs segir fjárveitingar til viðhalds vega og malbikunar ekki hafa vaxið í hlutfalli við síaukið álag á vegakerfi landsins. Vegaklæðing sé notuð til að binda slitlag þegar malbikun væri æskilegri vegna umferðarálags. Bikblæðing á fjölförnum vegum getur valdið mikilli hálku.

Flughált víðs vegar vegna nýrrar aðferðar við vegaklæðningu
Ólafur Kr. Guðmundsson umferðaröryggissérfræðingur segir nýja aðferð við vegaklæðningu á umferðarvegum valda bikblæðingu sem getur verið lífshættuleg. Hann lýsir ástandi sumra vega með þungri umferð þannig að sé eins og hellt hafi verið olíu yfir veginn.

Hættulegar bikblæðingar víða á vegum landsins
Vegfaranda í Ölfusi blöskraði aðkoman á veginum milli Hveragerðis og Þorlákshöfn í gær þar sem bikblæðingar eru áberandi. Upplýsingafulltrúi Vegagerðarinnar segir ljóst að ná verði betri tökum á vandamálinu.

Fá ekki fjármagn til að laga Flóttamannaleiðina fyrr en 2028
Upplýsingafulltrúi Vegagerðarinnar segir fjármagn frá ríkinu til að ráðast í úrbætur á Flóttamannaleiðinni ekki koma fyrr en árið 2028. Unnið er að því að skila veginum til sveitarfélaganna.

Of snemmt að kenna bikblæðingum um
Vegagerðin varaði við bikblæðingum á veginum um Öxnadalsheiði í dag. Upplýsingafulltrúi Vegagerðarinnar segir að ekki megi gefa sér þær forsendur að blæðingarnar hafi valdið slysinu.

Vill úrbætur sem fyrst á Flóttamannaleið
Bæjarstjóri Garðabæjar deilir áhyggjum íbúa í bænum af öryggi barna sem þurfa að fara yfir Flóttamannaleið á leið sinni á sumarnámskeið. Vegurinn sé illa farinn og umferð um hann hafi margfaldast. Hann kallar eftir því að Vegagerðin, sem á veginn, geri úrbætur sem fyrst.

Framkvæmdir hafnar við umferðarþyngstu gatnamótin
Framkvæmdir eru hafnar við umferðarþyngstu gatnamót landsins. Þær munu tefja umferð í sumar en markmiðið er að auka öryggi gangandi og hjólandi vegfarenda.

Bein útsending: LOKI – Kolefnisreiknir innviðaframkvæmda
Vegagerðin stendur fyrir hádegisfundi milli klukkan 11:30 og 12:30 í dag þar sem kynntur verður til leiks LOKI, nýr kolefnisreiknir fyrir innviðaframkvæmdir sem Vegagerðin hefur látið þróa. Hægt verður að fylgjast með fundinum í beinu streymi í spilaranum að neðan.

Segir veginn ekki hafa gefið sig
Starfsmenn Vegagerðarinnar á vettvangi rútuslyssins á Rangárvallavegi í gær segja ekki hafa séð þess merki að vegurinn hafi gefið sig undan rútunni.

Í djúpneti íslenskra stjórnmála
Ekki ætla ég að deila við matvælaráðherra um það hvort ummæli um lagareldisfrumvarpið hafi á köflum verið dapurleg eða jafnvel ómálefnaleg. En það er víst að dapurlegt og ómálefnalegt lagareldisfrumvarp má ekki samþykkja í þinginu.

Malbika hægri akrein Reykjanesbrautar á morgun
Vegagerðin stefnir á að fræsa og malbika hægri akrein á Reykjanesbraut, á milli gatnamóta við Vogaveg og Grindavíkurveg á morgun.

Framkvæmdir hafnar við brú yfir Fjarðarhornsá
„Þetta er fyrsta steypan hér við Fjarðarhornsá í Kollafirði. Brúin verður vonandi komin í gagnið 1. desember,“ segir Páll Halldór Björgúlfsson, verkefnastjóri framkvæmdarinnar við brúna.

Stefnt að því að ljúka samningaviðræðum um Ölfusárbrú nú í maí
„Við erum búin að vera í samningsviðræðum undanfarnar vikur og stefnum á að ljúka þeim í maí,“ segir Guðmundur Valur Guðmundsson, framkvæmdastjóri þróunarsviðs Vegagerðarinnar, um stöðu mála er varðar nýja Ölfusárbrú.

Atvinnubílstjórar sýni minnstu tillitssemina
Verkstjórar hjá Vegagerðinni og ÍAV segja atvinnubílstjóra vera almennt ótillitsamari en aðrir þegar ekið er fram hjá framkvæmdasvæði. Það eru þá rútubílstjórar, strætóbílstjórar, vörubílstjórar og aðrir.

Vilja tryggja öryggi starfsfólks í vegavinnu
Öryggi starfsfólks við vegavinnu er til umfjöllunar á morgunfundi Vegagerðarinnar í dag. Á fundinum verður kynnt vitundarátakið; Aktu varlega! – mamma og pabbi vinna hér, flutt stutt erindi um reynslu fólks af því að starfa í nálægð við þunga og hraða umferð. Samgöngustofa frumsýnir myndband um akstur gegnum vinnusvæði.

Opið bréf til samgönguráðherra og vegamálastjóra
Við undirrituð, ferðaþjónar í Dölum viljum koma á framfæri hvernig ástand á vegi 60 koma við okkur. Sökum ónýtrar klæðningar á vegi, hefur nú verið tekið til þess ráðs hjá Vegagerðinni að mylja klæðninguna niður á feykistórum kafla í Dalabyggð á vegi 60, Vestfjarðavegi. Afgangurinn er allur meira og minna að molna niður.

Á vesturleiðinni en ekki á hundrað og tíu
Sævar Helgi Lárusson, öryggisstjóri Vegagerðarinnar, segir alltof mikið um hraðakstur í grennd við vegaframkvæmdir. Á morgun verður haldinn morgunfundur á vegum Vegagerðarinnar og Samgöngustofu um átakið „Aktu varlega! - mamma og pabbi vinna hér.

Manstu ekki eftir mér
Ég er á vestur leiðinni, á háheiðinni. Á hundrað og tíu, ég má ekki verða of seinn, orti skáldið hér forðum daga. Þórður heitir hann Árnason, Ragga Gísla samdi svo tónverkið.

Fjárveitingar til vegamála standast engan samanburð
Það er áhugavert að lesa rit það sem Samfylkingin hefur gefið út og ber yfirskriftina Krafa um árangur í atvinnu- og samgöngumálum.

Leiðin í vinnuna smám saman þrefaldast: „Þetta er eins og í einhverri bíómynd“
Breiðhyltingur segir farir sínar ekki sléttar af framkvæmdum við Breiðholtsbraut. Síðustu mánuði hefur gönguleið hennar í vinnuna smám saman þrefaldast vegna framkvæmdanna. Hún segir málið hreinlega eins og í bíómynd.

Nýr Kjalvegur - Hraðbraut í gegnum hálendið
Á Alþingi liggur nú fyrir þingsályktunartillaga um endurnýjun vegar yfir Kjöl með einkaframkvæmd en nokkrum sinnum hefur verið reynt að mæla fyrir málinu í gegnum tíðina án árangurs.

Þessar reykvísku götur verða malbikaðar í ár
Malbikað verður fyrir alls um 842 milljónir króna í Reykjavíkurborg í sumar. Gert er ráð fyrir að hægt verði að hefja framkvæmdir við fræsun og yfirlagnir í maí og áætlað að þeim ljúki í september.

Opna Grindavíkurveg fyrir íbúa, starfsfólk og viðbragðsaðila
Vegagerðin opnaði Grindavíkurveg frá Reykjanesbraut eða Grindavík þeim sem eiga erindi þar í dag. Aðeins Grindvíkingar, viðbragðsaðilar og starfsfólk fyrirtækja í bænum og við Svartsengi mega aka veginn.

Stefnir í að bið eftir jarðgöngum lengist
Ófærðin sem birtist vegfarendum á fjallvegum á norðurhelmingi landsins um páskana, þar sem þúsundir manna komust ekki leiðar sinnar, hefur kallað fram endurnýjaðar kröfur um jarðgöng. Óvissa ríkir hins vegar um hvernig jarðgangaáætlun verður fjármögnuð og stefnir í að í flestum landshlutum þurfi menn að bíða lengi eftir næstu göngum.

Bæjarstjóri Akureyrar telur þörf á göngum
Ástihildur Sturludóttir, bæjarstjóri Akureyrar, segir þurfa að huga alvarlega að jarðgöngum milli Eyjafjarðar og Skagafjarðar og á fleiri stöðum á landinu.

Skipulagsstofnun brýnir fyrir Vegagerðinni að vanda til verka
Skipulagsstofnun gerir ýmsar athugasemdir við matsáætlun Vegagerðarinnar vegna Sundabrautar og ítrekar meðal annars að í umhverfismatsskýrslu verði greint frá því á hvaða forsendum öðrum kostum, til að mynda jarðgöngum, var hafnað.

Vinna hafin við nýjan Grindavíkurveg
Vinna hófst í dag við að leggja veg yfir hraunið sem rann yfir Grindavíkurveg í eldgosinu sem nú stendur yfir. Jón Haukur Steingrímsson jarðverkfræðingur hjá Eflu telur að vegkaflinn verði um 300 til 400 metrar á lengd. Verkið mun taka nokkra daga.