Hernaður
25 26 27 28 29 30 31 32 33 … 54 ›
Fyrrverandi yfirmaður Roscosmos særðist í Donetsk Dmitry Rogozin, fyrrverandi yfirmaður Geimvísindastofnunar Rússlands, Roscosmos, og núverandi hernaðarráðgjafi í Donbas, er sagður hafa særst í loftárás Úkraínumanna í Doentsk-borg. Erlent 22.12.2022 16:17
Pútín viðurkennir vandræði og styður stækkun hersins Vlaldimír Putín, forseti Rússlands, lýsti í gær yfir stuðningi við áætlun Varnarmálaráðuneytisins um að stækka rússneska herinn um um það bil helming. Þá sagði forsetinn að herinn þyrfti að ganga í gegnum ýmsar endurbætur og að engu væri sparað til. Erlent 22.12.2022 11:19
Ekki ölmusa heldur fjárfesting í öryggi og lýðræði „Fjárstuðningur ykkar er ekki ölmusa. Hann er fjárfesting í öryggi heimsins og lýðræði, sem við förum með á sem ábyrgastan hátt,“ sagði Vólódímír Selenskí Úkraínuforseti þegar hann ávarpaði Bandaríkjaþing í gærkvöldi. Erlent 22.12.2022 06:26
Rýnt í stöðuna í Úkraínu: Selenskí birtist óvænt í „hakkavélinni“ Vólódímír Selenskí, forseti Úkraínu, heimsótti óvænt Bakhmut í austurhluta Úkraínu í dag. Harðir bardagar hafa geisað um bæinn um mánaða skeið og hefur bænum verið lýst sem „hakkavél“. Vladimír Pútín, forseti Rússlands, sagði fyrr í morgun að ástandið í austurhluta Úkraínu væri „gífurlega flókið“ fyrir rússneska hermenn. Erlent 20.12.2022 14:49
Drónaárásir á Kænugarð í morgunsárið Loftvarnaflautur hafa ómað í úkraínsku höfuðborginni Kænugarði í morgun vegna drónaárása rússneska hersins. Vítalí Klitschko, borgarstjóri Kænugarðs, segir að fjöldi sprenginga hafi heyrst í höfuðborginni í morgun. Erlent 19.12.2022 06:31
Auglýsingaherferð sýnir glæstan lífsstíl rússneskra hermanna Ný auglýsingaherferð Rússa sýnir ungan mann kaupa sér glænýjan bíl fyrir peningana sem hann fékk fyrir þátttöku í innrásinni í Úkraínu. Yfirvöld í Rússlandi halda áfram að sækja fleira fólk í herinn þrátt fyrir að hafa sagt að til væri feykinóg af hermönnum. Erlent 18.12.2022 18:53
Viss um að Rússar geri aðra atlögu að Kænugarði Valerí Salúsjní, yfirmaður herafla Úkraínu, segist handviss um að Rússar muni gera aðra atlögu að Kænugarði. Þeir séu að þjálfa og vopna um tvö hundruð þúsund nýja hermenn og muni reyna að nota þá til að opna nýja víglínu á nýju ári. Erlent 15.12.2022 23:05
Japanir óttast stríð og ætla að kaupa mikið magn vopna Deilur um það hvernig fjármagna eigi umfangsmikla hernaðaruppbyggingu í Japan eru sagðar ógna stjórnarsamstarfinu þar í landi. Fumio Kishida, forsætisráðherra og leiðtogi Frjálslynda lýðræðisflokksins, vill fjármagna uppbygginguna með skattlagningu en sú áætlun er ekki vinsæl innan flokksins. Erlent 14.12.2022 23:00
Fjárfestum í friðsömum lausnum Leiðarljós Mannréttindayfirlýsingar Sameinuðu þjóðanna er að sérhver einstaklingur sé borinn frjáls og jafn öðrum að virðingu og réttindum. Yfirlýsingin var undirrituð 10. desember 1948 eftir að mannkynið hafði kynnst hungri og stríði sem endaði með fjöldamorðum af völdum kjarnorkuvopna, stríði sem grundvallaðist á mannhatri og grimmd, grillunni um að sumt fólk væri æðra öðru líkt og helförin sýndi. Skoðun 14.12.2022 17:30
Eldflaugaárásir gerðar á miðborg Kænugarðs Rússar gerðu eldflaugaárás á miðborg Kænugarðs, höfuðborgar Úkraínu, snemma í morgun. Vitali Klitschko borgarstjóri greinir frá því á samfélagsmiðlum að sprengingar hafi orðið í Sjevtsjenkiskíj-hverfinu og að björgunaraðilar séu nú að störfum á vettvangi. Erlent 14.12.2022 07:10
Indverjar og Kínverjar börðust á umdeildum landamærum Yfirvöld í Indlandi hafa sakað Kínverja um að reyna að leggja undir sig indverskt landsvæði í austurhluta Indlands í síðustu viku. Til átaka kom á milli indverskra og kínverskra hermanna við landamæri ríkjanna sem lengi hefur verið deilt um. Erlent 13.12.2022 19:38
Senda besta loftvarnarkerfið til Úkraínu Ríkisstjórn Joe Biden, forseta Bandaríkjanna, vinnur að því að senda Úkraínumönnum svokallað Patriot-loftvarnarkerfi. Það er háþróað kerfi sem er sagt sérstaklega skilvirkt við það að skjóta niður stýri- og eldflaugar. Erlent 13.12.2022 18:04
Meðlimur BTS hefur herþjálfun Hinn þrjátíu ára gamli Jin, elsti meðlimur suður-kóresku K-pop sveitarinnar hefur nú hafið herþjálfun þar í landi. Jin er fyrsti meðlimur sveitarinnar til þess að hefja þjálfun í kjölfar herkvaðningar. Tónlist 13.12.2022 10:52
Farnir að nota fjörutíu ára sprengikúlur Rússneski herinn hefur gengið verulega á skotfærabirgðir Rússlands fyrir stórskotalið og framleiðsla þar í landi heldur ekki við notkunina í innrás Rússa í Úkraínu. Bandaríkjamenn segja herinn byrjaðan að nota rúmlega fjörutíu ára skot sem eru líkleg til að virka ekki sem skildi. Erlent 12.12.2022 23:41
Hættir við blaðamannafund í fyrsta sinn í tíu ár Vladimír Pútín, forseti Rússlands, hefur hætt við að halda árlegan blaðamannafund í lok árs. Er það í fyrsta sinn í tíu ár sem þessi fundur fer ekki fram. Forsetinn hefur notað fundina til að styrkja ímynd sína í Rússlandi og svara spurningum blaðamanna ríkismiðla Rússlands. Erlent 12.12.2022 18:07
Ein og hálf milljón manns án rafmagns eftir árásir Rússa Viðbúið er að það muni taka einhverja daga að koma rafmagni aftur á í hafnarborginni Odesa í Úkraínu eftir árásir Rússa í gærkvöldi. Um ein og hálf milljón manns eru nú án rafmagns eftir árásirnar. Erlent 11.12.2022 10:11
Settu upp eldflaugaskotpalla við stærsta kjarnorkuver Evrópu Rússar eru nú sagðir hafa sett upp fjölda eldflaugaskotpalla við kjarnorkuverið í Zaporizhzhia í Úkraínu. Erlent 9.12.2022 07:30
Rýnt í stöðuna í Úkraínu: Pútín segir stríðið lengra en hann bjóst við Vladimír Pútín, forseti Rússlands, hefur viðurkennt að hin „sértæka hernaðaraðgerð“ eins og hann kallar innrás Rússa í Úkraínu, hefði staðið lengur yfir en hann bjóst við. Hins vegar hefði Rússum tekist að ná landsvæði og sagði hann að kjarnorkuvopn Rússlands hefðu komið í veg fyrir að átökin stigmögnuðust. Erlent 8.12.2022 11:04
Bandaríkjamenn fordæma „óábyrgt“ hjal um kjarnorkuvopn Bandaríkjamenn hafa fordæmt Rússa fyrir óábyrgt tal um mögulega notkun kjarnorkuvopna eftir að Vladimir Pútín Rússlandsforseti gaf það í skyn í gær að áhættan á notkun vopnanna væri að aukast en að Rússar yrðu ekki fyrstir til að grípa til þeirra. Erlent 8.12.2022 07:08
Hörmungar, djörfung og dáð Hinn 24. febrúar síðastliðinn réðust Rússar inn í Úkraínu og umbreyttu stöðu öryggis- og varnarmála í Evrópu. Erlent 8.12.2022 07:01
Segjast hvorki hafa hvatt né stutt Úkraínu til árása í Rússlandi „Við höfum hvorki hvatt Úkraínumenn né stutt þá til að gera árásir í Rússlandi,“ sagði Antony Blinken, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, í samtali við blaðamenn í gær. Stjórnvöld í Kænugarði hafa ekki lýst árásunum á hendur sér. Erlent 7.12.2022 09:25
Geimherinn vill rannsaka jónahvolfið frá Íslandi Utanríkisráðuneytinu hafa verið kynntar hugmyndir um mælingar á jónahvolfinu frá Íslandi, af geimher Bandaríkjanna (e. United States Space Force). Fullrúar USSF hafa þegar komið hingað til lands í vettvangskönnun. Innlent 7.12.2022 06:31
Bandaríski herinn skiptir út frægum þyrlum Forsvarsmenn bandaríska hersins gerðu í gær samkomulag við eigendur fyrirtækisins Bell um að skipta út öllum UH-60 Black Hawk þyrlum hersins. Bell mun samkvæmt samningnum framleiða frumgerð af farartækinu V-280, sem er nokkurs konar blendingur þyrlu og flugvélar, fyrir árið 2028. Erlent 6.12.2022 12:18
Víða rafmagnlaust eftir enn eitt stýriflaugaregnið Rafmagnslaust varð víða í borgum Úkraínu í dag eftir að Rússar skutu tugum stýriflauga að ríkinu. Loftvarnir Úkraínu eru sagðar hafa skotið niður flestar stýriflaugarnar en minnst tveir eru látnir í Saporisjía-héraði. Erlent 5.12.2022 15:35
Dularfullar sprengingar á tveimur herstöðvum í Rússlandi Nokkrir eru látnir eftir sprengingar á tveimur herflugvöllum í Rússlandi. Báðir vellirnir eru í hundruð kílómetra fjarlægð frá landamærunum að Úkraínu; nærri borginni Ryazan og í Saratov. Erlent 5.12.2022 12:48
Bein útsending: Opinbera fyrstu nýju sprengjuvélina í þrjátíu ár Flugher Bandaríkjanna ætlar að opinbera nýja kynslóð huldusprengjuvéla í næstu viku en þær eru meðal annars hannaðar til að bera kjarnorkuvopn. Sprengjuvélarnar kallast B-21 Raider og eiga að leysa hinar víðþekktu vélar B-2 Spirit af hólmi. Erlent 2.12.2022 21:00
Segjast ætla að draga Rússa til ábyrgðar Forsetar bandaríkjanna og Frakklands sögðust á blaðamannafundi í gær ætla að draga Rússa til ábyrgðar fyrir stríðsglæpi og önnur ódæði þeirra í Úkraínu. Joe Biden sagðist tilbúinn til viðræðna við Vladimír Pútín, forseta Rússlands, en eingöngu ef Pútín væri að leita leiða til að binda enda á innrásina í Úkraínu. Erlent 2.12.2022 13:40
„Án Bandaríkjanna værum við í vanda“ Sanna Marin, forsætisráðherra Finnlands, hefur kallað eftir því að Evrópuríkin efli varnargetu sína í kjölfar átakanna í Úkraínu. Hún segir styrk Evrópu ónógan án Bandaríkjanna. Erlent 2.12.2022 08:06
Rýnt í upphaf innrásarinnar: Rússar komust nær sigri en flestir átta sig á Þótt eldflaugar eins og Javelin og NLAW, sem hannaðar eru til að granda skriðdrekum, nytu mikillar athygli og bakhjarlar Úkraínu sendu slík vopn þangað í massavís, var það hið hefðbundna stórskotalið sem gerði Úkraínumönnum kleift að verja Kænugarð í upphafi innrásar Rússa í febrúar og mars. Um tíma voru tólf rússneskir hermenn á móti hverjum úkraínskum hermanni á svæðinu. Erlent 1.12.2022 11:49
Enn einn leiðtogi ISIS er fallinn Talsmenn Íslamska ríkisins tilkynntu í dag að Abu al-Hasan al-Qurashi, leiðtogi hryðjuverkasamtakanna, væri fallinn. Samtökin fengu um leið nýjan leiðtoga en þeir hafa fallið hver á fætur öðrum frá því sá fyrsti og frægasti, Abu Bakr al-Baghdadi dó. Erlent 30.11.2022 17:03