Innlent
185 186 187 188 189 190 191 192 193 … 334 ›
Hæstiréttur Danmerkur stórherðir refsingar fyrir brot gegn börnum Hæstiréttur Danmerkur hefur tekið þá stefnu að herða til muna refsingar fyrir kynferðisbrot gegn börnum, og segir að með því sé verið að taka tillit til samþykktar danska þingsins árið 2002 um herta refsilöggjöf Erlent 26.10.2006 14:14
Stefna hafi ýtt undir neikvæðar afleiðingar hnattvæðingar Stefna ríkisstjórnarinnar hefur ýtt undir neikvæðar afleiðingar hnattvæðingarinnar sagði Grétar Þorsteinsson, forseti ASÍ, í ræðu sinni á ársfundi sambandsins í morgun. Þar gerði hann hnattvæðinguna og samábyrgð vegna hennar að umtalsefni sínu. Innlent 26.10.2006 13:58
Sjávarútvegsráðherra Breta segir hvalveiðarnar sorglegar Ben Bradshaw, sjávarútvegsráðherra Bretlands ítrekaði í morgun andstöðu Breta við atvinnuhvalveiðar Íslendinga og sagði engin rök fyrir ákvörðun Íslendinga. Hann og Sverrir Haukur Gunnlaugsson, sendiherra Íslands í Bretlandi, funduð í morgun um málið að ósk Bradshaw. Innlent 26.10.2006 13:57
Slysið á Vopnafirði alvarlegt Lögregla og björgunarsveitir á Vopnafirði hafa náð konu upp úr sjónum skammt frá heilsugæslustöðinni í bænum en bíll hennar fór út af bakka þar í morgun. Ekki hafa fengist upplýsingar um líðan hennar en ljóst er að slysið er alvarlegt. Verið er að vinna að því að ná bílnum upp úr sjónum en tildrög slyssins eru ókunn. Innlent 26.10.2006 13:31
Ókeypis í Þjóðmenningarhúsið um helgina Ókeypis aðgangur verður að öllum sýningum í Þjóðmenningarhúsinu í tilefni af því að handrit Skarðsbókar postulasagna er nú sýnt þar í fyrsta skipti. Handritið er sýnt til að minnast þess að 18. október voru liðin 40 ár síðan dr. Jóhannes Nordal seðlabankastjóri afhenti íslensku þjóðinni bókina. Innlent 26.10.2006 13:16
Bíll í sjóinn við Vopnafjörð Lögregla og björgunarsveitir á Vopnafirði hafa verið kallaðar út vegna bíls sem fór sjóinn skammt frá höfn bæjarins. Kona mun hafa verið í bílnum og er unnið að því að bjarga henni. Innlent 26.10.2006 11:30
Þriggja og hálfs árs fangelsi fyrir nauðgun Karlmaður á þrítugsaldri var í dag dæmdur í þriggja og hálfs árs fangelsi fyrir að hafa í sumar nauðgað tvítugri stúlku á göngustíg í Breiðholti. Innlent 26.10.2006 11:06
Kirkjuþing samþykkir stefnumótun á sviði kærleiksþjónustu Kirkjuþing samþykkti í morgun stefnumótum á sviði kærleiksþjónustu og hjálparstarfs en með því eru sóknir hvattar til að huga sérstaklega að þeim þætti í þjónustu kirkjunnar er lítur að stuðningi við fólk í erfiðum aðstæðum og leggja sérstaka áherslu á vinaheimsóknir til þeirra sem eru einangraðir. Innlent 26.10.2006 10:22
Minni hagnaður á fjórðungnum Hagnaður Straums-Burðaráss Fjárfestingarbanka á þriðja ársfjórðungi minnkaði talsvert á milli ára. Bankinn skilaði 1.549 milljóna króna hagnaði á þriðja ársfjórðungi en 6.473 milljónum króna á sama tíma í fyrra og nemur samdrátturinn 76 prósentum á milli ára. Greiningardeild KB banka spáði því að bankinn myndi skila 5 milljörðum króna á tímabilinu. Viðskipti innlent 26.10.2006 10:05
Afkoma Bakkavarar yfir væntingum Bakkavör Group hf. skilaði 4,6 milljarða króna eða 34,9 milljóna punda hagnaði á fyrstu níu mánuðum ársins. Þetta er 68 prósenta aukning frá sama tíma í fyrra. Þá nam hagnaður félagsins 2 milljörðum króna eða 15 milljón pundum á fyrstu þremur mánuðum ársins, sem er 70 prósenta aukning á milli ára. Hagnaðurinn á þriðja ársfjórðungi er 3 milljón pundum meira en greiningardeild KB banka hafði spáð. Viðskipti innlent 26.10.2006 09:45
Hagnaður Landsbankans eykst um 16 prósent Hagnaður Landsbanka Íslands nam 26,2 milljörðum króna á fyrstu níu mánuðum ársins. Þetta er 16 prósenta aukning frá síðasta ári. Bankastjórar Landsbanks segja afkomuna góða og hafi aðstæður á sviði erlendrar fjármögnunar batnað eftir ákveðinn óróa í byrjun árs. Þá nam hagnaður bankans á þriðja ársfjórðungi rúmum 5,7 milljörðum króna sem er 2,1 milljarði minna en greiningardeild KB banka reiknaði með. Viðskipti innlent 26.10.2006 09:20
Hollvinasamtök Óðins stofnuð í dag Hollvinasamtök varðskipsins Óðins verða stofnuð í dag. Fram kemur í tilkynningu að markmið samtakanna sé að varðveita Óðinn og gera skipið að glæsilegri umgjörð um sögu þoskastríðsáranna og björgunarsögu íslenskra varðskipa, en Óðinn tók þátt í þorskastríðunum þegar landhelgin var færð út í 50 mílur og síðar þegar hún var færð út í 200 mílur. Innlent 26.10.2006 09:20
Fjögur fíkniefnamál komu til kasta lögreglunnar í Kópavogi í nótt Fjögur fíkniefnamál komu til kasta lögreglunnar í Kópavogi í nótt og handtók hún fjóra karlmenn á aldrinum 18 til 26 ára vegna rannsókna. Innlent 26.10.2006 07:16
Björgunarsveitir á Austfjörðum voru kallaðar út í gærkvöldi Björgunarsveitir á Austfjörðum voru kallaðar út í gærkvöldi til að leita að manni, sem fór akandi frá Eskifirði um klukkan fimm áleiðist til Mjóafjarðar, en kom ekki þangað á tilsettum tíma. Innlent 26.10.2006 07:07
Kviknaði í dæluskúr Eldur kviknaði í dæluskúr Hitaveitu Akureyrar við Laugaland í Eyjafjarðarsveit rétt um kl. 20 í kvöld. Greiðlega gekk að slökkva eldinn en skúrinn er ónýtur að sögn lögreglu. Lögregla telur líklegt að kviknað hafi í skúrnum út frá rafmagni. Innlent 25.10.2006 23:21
Kveikt í rusli í gamla Hampiðjuhúsinu Eldur kviknaði í rusli í stigagangi gamla Hampiðjuhússins við Brautarholt í Reykjavík á níunda tímanum í kvöld. Tilkynning barst lögreglu kl. 20:22 og gekk greiðlega að slökkva eldin og slökkvistarfi lokið 26 mínútum síðar. Enginn var í hættu. Fjölmörg útköll hafa borist slökkviliði vegna elds í húsinu síðustu mánuði. Innlent 25.10.2006 23:13
Vill aukna samvinnu ASÍ og BSRB Grétar Þorsteinsson, forseti Alþýðusambands Íslands, óskar eftir samvinnu ASÍ og BSRB við undirbúning næstu kjarasamninga. Þetta kom fram í ræðu Grétars á 41. þingi BSRB í dag. Innlent 25.10.2006 22:58
Kalt vatn komið á aftur í Kópavogi Kalt vatn tók aftur að renna um krana hjá íbúum í stórum hluta Kópavogs um kl. 22 í kvöld eftir að það fór af á sjöunda tímanum. Grafa tók í sundur kaldavatnslögn við Nýbýlaveg og voru íbúar í Hjallahverfi, við Nýbýlaveg og víðar vatnslausir í á fjórðu klukkustund. Innlent 25.10.2006 22:43
Jakob Sigurðsson nýr framkvæmdastjóri viðskiptasviðs ÍE Jakob Sigurðsson hefur verið ráðinn framkvæmdastjóri viðskiptasviðs Íslenskrar erfðagreiningar. Jakob er með B.S. gráðu í efnafræði frá Háskóla Íslands og MBA gráðu frá Kellogg stjórnunarskólanum við Northwestern-háskóla í Illinois í Bandaríkjunum. Hann hefur undanfarin tvö ár starfað sem forstjóri Alfesca, áður SÍF. Jakob gegndi áður stjórnunarstöðum hjá alþjóðlega efnafyrirtækinu Rohm and Haas í Bandaríkjunum og í Evrópu. Innlent 25.10.2006 22:17
Óskir annarra trú- eða lífsskoðunarfélaga verið virtar við útför Samkvæmt nýrir ályktun um breytingar á lögum, sem samþykkt var á Kirkjuþingi í kvöld, verða styrktar reglur sem lúta að trúfrelsi og óskum annarra trú- og lífsskoðunarfélaga við útfarir. Ályktunin er um frumvarp til laga um breytingu á lögum um kirkjugarð, greftrun og líkbrennslu. Innlent 25.10.2006 21:37
Vatnslaust í stórum hluta Kópavogs Kalt vatn fór af stórum hluta Kópasvogs á sjöunda tímanum í kvöld. Grafa tók í sundur kaldavatnslögn við Nýbýlaveg og hafa íbúar í Hjallahverfi, við Nýbýlaveg og víðar verið vatnslausir. Samkvæmt upplýsingum starfsmanna bæjarins stendur viðgerð yfir og er áætlað að vatn verði aftur komið á upp úr klukkan tíu. Innlent 25.10.2006 21:40
Stoð kippt undan Hornafirði Verið er að kippa einni stoðinni undan samfélaginu að ástæðulausu, segja bæjaryfirvöld á Hornafirði um þá ákvörðun að segja upp starfsmönnum ratsjárstöðvarinnar á Stokksnesi. Þau segja yfirvöld ekki geta fríað sig ábyrgð og bent á bandaríska herinn. Innlent 25.10.2006 20:14
Ímynd Íslands skaðist af hvalveiðum Ímynd landsins er verðmætasta auðlind íslensku þjóðarinnar, segir talsmaður ferðaþjónustunnar og íslensk stjórnvöld eru að taka þá áhættu að stórskaða hana með hvalveiðum. Á heimasíðu Greenpeace hafa 90 þúsund manns heitið því að íhuga alvarlega að sækja Ísland heim ef þjóðin hættir hvalveiðum. Þriðja langreyðurin var skotin við Snæfellsnes í dag. Innlent 25.10.2006 20:08
Latibær tilnefndur til BAFTA-verðlauna Sjónvarpsþættirnir um Latabæ hafa verið tilnefndir til hinna virtu BAFTA-verðlauna í Bretlandi í flokki alþjóðlegs barnaefnis. Magnús Scheving, höfundur og framleiðandi þáttanna, segir að um einstaka viðurkenningu sé að ræða. Innlent 25.10.2006 19:44
Mögulega raðnauðgarar að verki Lögreglan í Reykjavík rannsakar hvort sömu mennirnir standi á bak við hrottalegar nauðganir á tveimur stúlkum í miðborg Reykjavíkur, sem áttu sér stað með hálfsmánaðar millibili. Þriðja nauðgunin, þar sem þolandi var erlend námsstúlka sem þáði bílfar með ókunnugum manni, gæti einnig tengst málinu. Innlent 25.10.2006 19:27
Ferðinni til Bandaríkjanna haldið áfram Ferð farþegaflugvélar af gerðinni Boeing 758-200, sem lent var í öryggisskyni á Keflavíkurflugvelli kl. 16:10 í dag, var haldið áfram til Newark í Bandaríkjunum rúmri klukkustund síðar. Vélinni var flogið af stað aftur um kl. 17:30. Mikill viðbúnaður var á Keflavíkurflugvelli þegar flugvélinni, með 172 farþega innanborðs, var lent vegna bilunar í hreyfli. Innlent 25.10.2006 18:57
Torfæruhjól skemma reiðgötur Reiðgötur, víða um land, eru orðnar að slysagildrum af völdum fólks sem spænir þær upp á torfæruhjólum, segir formaður Landssambands hestamannafélaga. Alvarlegum slysum á hestamönnum hefur fjölgað. Innlent 25.10.2006 18:11
Kjartan höfðar mál gegn ríkinu til að fá gögn Kjartan Ólafsson ætlar að höfða mál gegn íslenska ríkinu og krefst þess að fá aðgang að öllum gögnum um hleranir. Lögmaður hans segir stjórnvöld fela þessi mál í afkimum til að stjórna umræðunni. Innlent 25.10.2006 18:04
Óviðurkvæmilegt fréttabréf Í fréttabréfi Nemendafélags Menntaskólans við Hamrahlíð nú í haust var birtur listi yfir Ellefu bestu lög til að nauðga við. Forseti skólafélagsins harmar að ritnefndin hafi brugðist því trausti sem henni var sýnd. Innlent 25.10.2006 17:56
Stærsta útkall Landhelgisgæslu um árabil Landhelgisgæslan fór í sitt stærsta útkall um árabil þegar Boeing 757 flugvél Continental flugfélagsins kom inn til lendingar í Keflavík eftir að tilkynna um bilun í hreyfli. Innlent 25.10.2006 17:42