Innlent
179 180 181 182 183 184 185 186 187 … 334 ›
Sjö þegar yfirheyrðir vegna hlerana Rannsókn sýslumannsins á Akranesi í hlerunarmálinu er langt komin en skýrslur hafa verið teknar af sjö mönnum vegna málsins. Rannsóknin snýr að meintum hlerunum á símum Jóns Baldvins Hannibalssonar og starfsmanns hans í utanríkisráðuneytinu. Maðurinn sem á að hafa hlerað Jón Baldvin hefur verið nafngreindur og upplýsingar um hann eru í höndum sýslumanns. Innlent 31.10.2006 19:15
Pólverjar vinna mál gegn starfsmannaleigu Tólf Pólverjar sem störfuðu við Kárahnjúka unnu í dag dómsmál gegn starfsmannaleigu og fengu viðurkennt að þeir voru hlunnfarnir um á annað hundrað þúsund krónur á mánuði. Þetta er afar mikilvægur dómur, að mati verkalýðshreyfingarinnar. Innlent 31.10.2006 19:09
25 ríki mótmæla hvalveiðum Íslendinga 25 ríki mótmæla á morgun hvalveiðum Íslendinga í atvinnuskyni með formlegum hætti. Alp Mehmet, sendiherra Breta á Íslandi, mun afhenda mótmælaskjal fyrir hönd ríkjanna í utanríkisráðuneytinu klukkan 10 í fyrramálið. Innlent 31.10.2006 18:26
Veik tengsl milli pólskra innflytjenda Ný íslensk rannsókn sýnir að dæmi eru um að Pólverjum sé boðin vinna á lægra kaupi eingöngu á grundvelli þjóðernis. Sömuleiðis bendir hún til þess að pólskir innflytjendur hafi lítil samskipti sín á milli. Innlent 31.10.2006 17:53
KB banki borgar 7 milljarða í skatta Kaupþing banki greiðir nú í fyrsta skipti meira í opinber gjöld en Fjársýsla ríkisins. Bankinn greiðir langhæstu opinberu gjöldin á þessu ári - nærri sjö milljarða króna, rúmum fimm milljörðum meira en í fyrra. Tekjuskattur lögaðila hefur hækkað um 46% frá síðasta ári. Innlent 31.10.2006 17:48
Leigubílar geta ekið á sérakreinum Strætó Leigubílum verður innan skamms heimilt að aka á sérakreinum Strætó. Framkvæmdaráð Reykjavíkurborgar samþykkti á síðasta fundi sínum að heimila leigubílstjórum akstur á þessum akreinum. Sett er sem skilyrði að leigubílar nýti eingöngu akreinarnar þegar um farþegaflutninga gegn gjaldi er að ræða. Innlent 31.10.2006 16:30
Djúpstraumur sem "hikstaði" Hafrannsóknarstofnun segir að það hafi ekki verið Golfstraumurinn sem slíkur, sem stoppaði í tíu daga í nóvember árið 2004, heldur djúpstraumur sem hefur engin svipuð áhrif og Golfstraumurinn. Innlent 31.10.2006 16:25
Aðeins á eftir að veiða tvær langreyðar Hvalur 9 er nú á leið í land með tvær sextíu feta langreyðar. Búið er að skjóta sjö langreyðar af þeim níu sem heimild fékkst til að veiða. Af dýrunum sem hafa verið veidd eru fjórar kýr og þrír tarfar. Kristján Loftsson, stjórnarformaður Hvals, segir að ef veðrið haldist áfram eins og það er nú þá klári þeir kvótann. Innlent 31.10.2006 15:50
Sniglarnir vilja losna við ný vegrið Bifhjólasamtökin Sniglarnir hafa hafið undirskriftasöfnun til að mótmæla uppsetningu nýrrar tegundar vegriða. Um er að ræða svokölluð víravegrið og segja Sniglarnir þau stórhættuleg bifhjólafólki. Samtökin skora á Sturlu Böðvarsson, samgönguráðherra að taka nýju vegriðin strax niður. Innlent 31.10.2006 15:39
Framsóknarmönnum fjölgaði eftir að póstkosning var ákveðin Framsóknarmönnum í Norðvesturkjördæmi hefur fjölgað um fjórðung frá því að ákveðið var að efna til póstkosningar um skipan framboðslista flokksins í kjördæminu. Frá þessu er greint á fréttavef Skessuhorns. Innlent 31.10.2006 15:01
Avion Group kaupir í Atlas Avion Group hefur fyrir hönd dótturfélags síns Eimskips Atlas Canada, Inc. eignast 85,8 prósent hlutafjár í kanadíska frystigeymslufyrirtækinu Atlas Cold Storage Income Trust eða samtals 56,2 milljónir bréfa að nafnverði á genginu 7,5 kanadíska dali á hlut. Viðskipti innlent 31.10.2006 14:59
Stór hluti fiskafla á Sri Lanka spillist Talið er að 30 til 40% af fiskafla sem veiðist á Sri Lanka spillist frá því fiskurinn er veiddur þar til hann er kominn á borð neytenda. Rýrnun gæða fisks er vandamál í fiskiðnaði á Sri Lanka og er það eitt af þeim verkefnum sem fiskiðnaðurinn tekst nú á við. Innlent 31.10.2006 14:37
Bænastund við Óshyrnu á Óshlíðarvegi Haldin verður bænastund við Óshyrnu á Óshlíðarvegi annað kvöld klukkan átta. Biðja á fyrir vegfarendum sem keyra um Óshlíð og þeim sem taka ákvarðanir um endurbætur á vegasamgöngum milli Bolungarvíkur og Ísafjarðar. Innlent 31.10.2006 14:20
Tveggja mánaða fangelsi fyrir að hefna framhjáhalds Héraðsdómur Reykjavíkur dæmdi í dag tuttugu og sex ára karlmann í fjögurra mánaða fangelsi fyrir líkamsárás, þar af tvo mánuði skilorðsbundið. Innlent 31.10.2006 13:21
Hafa kært árásir til lögreglu Hjónin sem lentu í árás á veitingastað í miðborginni um helgina, þar sem fyrrverandi lögreglumaður réðst að hópi manna sem gerðu tilraun til að nauðga konu hans, hafa kært málið til lögreglu. Innlent 31.10.2006 12:26
Fyrsta hrefnan veidd eftir að veiðar í atvinnuskyni voru heimilaðar Skipverjar á bátnum Halldóri Sigurðurssyni veiddu í dag fyrstu hrefnuna frá því að veiðar í atvinnuskyni voru heimilaðar fyrir tveimur vikum. Að sögn Konráðs Eggertssonar skipstjóra veidist hrefnan á Ísafjarðardjúpi um klukkan hálftólf og verður komið með kjötið af henni til Ísafjarðar síðar í dag, en fyrst þarf að taka sýni úr hrefnunni og sinna ýmsum rannsóknarstörfum eins og Konráð orðar það. Innlent 31.10.2006 12:55
KB banki greiðir langhæstu opinberu gjöldin Kaupþing banki greiðir langhæstu opinberu gjöld allra lögaðila, samkvæmt álagningaskrá Skattstjórans í Reykjavík fyrir þetta ár. Reykjavíkurborg er komin niður í sjötta sæti, en Kópavogsbær er hins vegar hæsti greiðandi í Reykjanesumdæmi. Innlent 31.10.2006 12:07
Samstaða um Halldór meðal ráðherra Halldór Ásgrímsson, fyrrverandi forsætisráðherra og formaður Framsóknarflokksins, verður næsti framkvæmdastjóri Norrænu ráðherranefndarinnar. Forsætisráðherrar norrænu ríkjanna sammæltust um þetta á fundi sínum í Kaupmannahöfn í morgun. Geir H. Haarde forsætisráðherra segir að samstaða hafi orðið um hann, meðal annars vegna þess að Íslendingur hafi aldrei áður gegnt starfinu. Innlent 31.10.2006 12:20
Leita manns sem reyndi að lokka unga stúlku upp í bíl sinn Lögreglan í Reykjavík leitar að manni, sem er grunaður um að hafa ætlað að beita átta ára stúlku kynferðislegu ofbeldi. Hann lokkaði hana upp í bíl sinn skammt frá Rauðavatni á sunnudag. Innlent 31.10.2006 12:04
Fjallað um Jón Ásgeir og Björgólfsfeðga í Ekstra Bladet Danska Ekstra Bladet birtir í dag skjal sem Pálmi Haraldsson undirritar þar sem hann staðfestir að tilfærslur á fjármagni hafi ekki neitt með peningaþvætti að gera. Á þriðja degi umfjöllunar blaðsins er röðin kominað íslenskum athafnamönnum, því blaðið fjallar um Jón Ásgeir Jóhannesson og Björgólfsfeðga í dag. Innlent 31.10.2006 11:58
Guðfríður Lilja sækist eftir 2. sæti í prófkjöri VG Guðfríður Lilja Grétarsdóttir, forseti Skáksambands Íslands, gefur kost á sér í 2. sæti í sameiginlegu forvali Vinstrihreyfingarinnar - græns framboðs í Reykjavíkurkjördæmunum tveimur og Suðvesturkjördæmi. Innlent 31.10.2006 11:55
Golfstraumurinn stoppaði í tíu daga árið 2004 Golfstraumurinn stöðvaðist í tíu daga í nóvember árið 2004, og enginn veit hvers vegna. Þetta kom fram á ráðstefnu sem haldin var í Bretlandi, í síðustu viku. Lengri stöðvun myndi hafa skelfilegar afleiðingar fyrir Ísland. Innlent 31.10.2006 11:16
Olíufélagið og EGO lækka verð á eldsneyti Olíufélagið og EGO hafa ákveðið að lækka verð á eldsneyti. Ástæðurnar fyrir lækkuninni eru sagðar vera lækkandi heimsmarkaðsverð og styrkari staða krónunnar. Innlent 31.10.2006 11:16
Verðbólga minnkaði innan OECD Verðbólga innan aðildarríkja Efnahags- og framfarastofnunarinnar (OECD) mældist 2,1 prósent á ársgrundvelli í september samaborið við 3 prósent mánuðinn á undan. Verðbólgan er líkt og fyrri mánuði næstmest hér á landi. Viðskipti innlent 31.10.2006 11:00
Dæmdur fyrir alvarlegt kynferðisbrot Maður á fimmtugsaldri var dæmdur í tveggja ára fangelsi í Héraðdsómi Reykjavíkur í gær fyrir að hafa samfarir við 32 ára þroskahefta konu. Maðurinn starfaði sem stuðningsfulltrúi hennar á þeim tíma sem brotið átti sér stað. Innlent 31.10.2006 10:59
Valgerður fundar með norrænum starfsbræðrum sínum Valgerður Sverrisdóttir situr fund utanríkisráðherra og utanríkisviðskiptaráðherra norrænu ríkjanna í tengslum við þing Norðurlandaráðs sem hefst í Kaupmannahöfn í dag og stendur fram á fimmtudag. Innlent 31.10.2006 10:48
Dýrkeypt gleymska í Víkurskarði Karlmaður á Norðurlandi komst að því í gær að það getur verið dýrt að vera gleyminn. Lögreglan á Akureyri ók fram á hann í Víkurskarði í gær en þar var hann á gangi með hagalabyssu. Innlent 31.10.2006 10:36
Mikil velta á verðbréfamarkaði Innlendir aðilar keyptu erlend verðbréf fyrir 102 milljarða krónur á fyrstu níu mánuðum ársins. Þar er meirihluti þeirra eða um 64 milljarðar króna í hlutabréfum. Nettókaupin það sem af er ári eru mun meiri en á sama tímabili undanfarin ár, að sögn greiningardeildar Glitnis. Viðskipti innlent 31.10.2006 10:35
Promens gerir tilboð í norskt fyrirtæki Promens hf hyggst gera valfrjálst tilboð um kaup á öllu hlutafé norska plastfyrirtækisins Polimoon ASA, sem skráð er í Kauphöllinni í Osló. Tilboðið hljóðar upp á 32,50 norskar krónur á hlut, sem jafngildir heildarvirði hlutafjár Polimoon upp á 1.279 milljónir norskra króna eða 13,4 milljarða íslenskra króna. Viðskipti innlent 31.10.2006 10:29
Jón nýr framkvæmdastjóri VBS Jón Þórisson ráðinn hefur verið ráðinn framkvæmdastjóri VBS fjárfestingabanka stað Jafets S. Ólafssonar sem hefur selt hlut sinn í fjárfestingarbankanum. Þetta kemur fram í tilkynningu frá bankanum. Innlent 31.10.2006 10:17