Erlent
118 119 120 121 122 123 124 125 126 … 334 ›
Þyrla ríks Chelsea stuðningsmanns hverfur Þyrla sem átti að flytja ríkan aðdáenda Chelsea til Lundúna eftir viðureign Liverpool og Chelsea í Meistaradeild Evrópu í gærkvöldi er horfin. Ekkert er vitað um afdrif þyrlunnar. Erlent 2.5.2007 08:57
Danskir lögreglumenn byssuglaðir Danska lögreglan ætlar að grípa til aðgerða til þess að stemma stigu við skotárásum lögreglumanna á grunaða glæpamenn sem færst hafa í vöxt. Alls hefur fjöldi slíkra atvika tvöfaldast miðað við sama tíma á síðasta ári, úr 37 í 74. Erlent 2.5.2007 08:00
Erdogan boðar til kosninga Forsætisráðherra Tyrklands, Tayyip Erdogan, sagði í nótt að hann ætlaði sér að boða til almennra kosninga í landinu. Hann vill líka breyta stjórnarskránni á þann veg að forseti landsins verði kosinn af almenningi en ekki þinginu. Erlent 2.5.2007 07:56
Krefjast afsagnar Olmerts Háttsettur meðlimur í flokki Ehuds Olmerts hefur krafist þess að hann segi af sér. Hann vill meina að landsmenn hafi misst alla trú á honum eftir ófarirnar í stríðinu í Líbanon á síðasta ári. Þingforseti flokks Olmerts, Kadna flokksins, sagði hann skorta lögmæti til þess að stjórna áfram og að hann ætti að segja af sér svo flokkurinn gæti stofnað nýja ríkisstjórn. Erlent 2.5.2007 07:14
Sarkozy leiðir enn Samkvæmt nýjustu könnunum í Frakklandi heldur Nicolas Sarkozy, forsetaframbjóðandi hægri manna, 2 stiga forskoti á Segolene Royal, forsetaframbjóðanda sósíalista. Munurinn var ívið minni en í síðustu skoðanakönnun en þá var hann 3 stig. Sarkozy og Royal munu takast á um forsetaembætti Frakklands á sunnudaginn kemur. Erlent 2.5.2007 07:10
Bush beitir neitunarvaldi George W. Bush, forseti Bandaríkjanna, beitti í nótt neitunarvaldi gegn frumvarpi Bandaríkjaþings sem hefði bundið aukafjárveitingu til hersins við brottför hermanna frá Írak. Erlent 2.5.2007 07:02
Liverpool í úrslit Meistaradeildar Evrópu Liverpool er komið í úrslit Meistaradeildar Evrópu eftir að hafa borið sigurorð af Chelsea í gærkvöldi. Markvörður Liverpool var hetja leiksins en hann varði tvær vítaspyrnur í vítaaspyrnukeppni eftir lok framlengingar. Þetta er í annað sinn á þremur árum sem Liverpool kemst í úrslit Meistaradeildarinnar. Erlent 2.5.2007 06:53
Hugsanlega boðað til kosninga Svo gæti farið að boðað yrði til þingkosninga í Tyrklandi á næstu dögum, en stjórnlagadómstóll þar í landi úrskurðaði í dag að atkvæðagreiðsla þingsins um skipan nýs forseta væri ógild. Loftið í Tyrklandi er lævi blandið vegna málsins og óeirðir blossuðu upp í Istanbúl í dag. Erlent 1.5.2007 18:28
Tíu ár frá sigri Verkamannaflokksins Líklegt er að Tony Blair, forsætisráðherra Bretlands, tilkynni um brotthvarf sitt úr stjórnmálum í næstu viku. Tíu ár eru í dag frá því Blair tók við embætti eftir stórsigur Verkamannaflokksins á Íhaldsmönnum. Erlent 1.5.2007 18:24
1. maí fagnað víða um heim Fysta maí var fangað víðar en á Íslandi í dag. Til átaka kom í Macau og Berlín á meðan kröfugöngur í öðrum borgum fór friðsamlega fram. Fídel Kastró lét ekki sjá sig við opinber hátíðarhöld á Kúbu í dag. Erlent 1.5.2007 18:21
10 ár frá valdatöku Blairs Áratugur er í dag frá því að Tony Blair tók við embætti forsætisráðherra í Bretlandi. Hann er þaulsætnasti leiðtogi Verkamannaflokksins breska en á þó langt í land með að slá met þess forsætisráðherra Breta sem lengst hefur setið í Downing-stræti 10. Erlent 1.5.2007 12:18
Brestir komnir í ríkisstjórnarsamstarfið Brestir eru þegar komnir í ríkisstjórn Ísresl eftir að skýrsla rannsóknarnefndar um stríðsreksturinn gegn Hizbollah-liðum í Líbanon í fyrra var birt í gær. Nefndin gagnrýnir Ehud Olmert, forsætisráðherra, og Amir Peretz, varnarmálaráðherra, harðlega og segir þá hafa farið út í stríð að illa ígrunduðu máli og án skýrra markmiða. Olmert ætlar ekki að víkja og einn aðstoðarráðherra sagði af sér í morgun vegna þess. Erlent 1.5.2007 12:14
Margir mótmælendur handteknir í Istanbúl Tyrkneska lögreglan hefur handtekið mörg hundruð mótmælendur eftir að til átaka kom í miðborg Istanbúl í morgun. Vinstrimenn höfuð komið þar saman til að minnast blóðbaðs í borginni þann fyrsta maí fyrir þrjátíu árum. Erlent 1.5.2007 12:10
Landsstjórn Grænlands sprungin Landsstjórnin á Grænlandi sprakk í gær. Deilur um rækjukvóta urðu til þess að vinstriflokkurinn Inuit Ataqatigiit klauf sig út úr henni. Jafnaðarmenn í Siumut flokknum og hægrimenn í Atassut, sem einnig sátu í stjórninni, reyna nú að mynda nýja. Erlent 1.5.2007 10:46
Hagnaður Danske bank eykst Danske bank skilaði hagnaði upp á tæpa 5,3 milljarða danskra króna á fyrstu þremur mánuðum ársins. Þetta jafngildir 62,5 milljörðum íslenskra króna á tímabilinu sem er 21 prósenti meiri hagnaður en bankinn skilaði á sama tíma í fyrra. Þá er afkoman nokkuð yfir væntingum greinenda í Danmörku. Viðskipti erlent 1.5.2007 10:15
Leiðtogi al-Kaída í Írak fallinn Abu Ayyub al-Masri, leiðtogi al-Kaída hryðjuverkasamtakanna í Írak, féll í innbyrgðis átökum andspyrnumanna í smáþorpi norður af Bagdad í morgun. Íraska innanríkisráðuneytið greinir frá þessu. Al-Masri tók við stjórn samtakanna eftir að Abu Musab al-Zarkawi féll í loftárás Bandaríkjahers í júní í fyrra. Erlent 1.5.2007 10:08
Evra aldrei jafnhá gagnvart jeninu Gengi evru er í fyrsta sinn komið í methæðir gagnvart japanska jeninu á helstu fjármálamörkuðum. Gengi evrunnar hækkaði talsvert á markaði í síðustu í kjölfar vangavelta fjárfesta að evrópski seðlabankinn muni hækka stýrivexti á næstu mánuðum og fór hæst í 163,31 jen á móti hverri evru. Viðskipti innlent 1.5.2007 09:15
Opinberir starfsmenn í Bretlandi í verkfall Þúsundir opinberra starfsmanna í Bretlandi munu á morgun taka þátt í eins dags verkfalli til þess að krefjast hærri launa og aukins starfsöryggis. Talið er að allt að 200.000 á rúmlega 200 starfsstöðum muni starfsmenn leggja niður störf á morgun. Stéttarfélagið segir að verkfallið sé tilkomið vegna þess að ríkisstjórnin sé að nota starfsmenn sína til þess að reyna að hafa stjórn á verðbólgunni. Erlent 30.4.2007 23:46
Lífslíkur örvhentra kvenna lægri Ný rannsókn gefur til kynna að líklegra sé að örvhentar konur láti lífið fyrr en rétthentar konur, sérstaklega úr krabbameini eða æðasjúkdómum. Vísindamennirnir benda á hugsanlega sé um að ræða tilviljun og að sannanirnar séu langt í frá fullnægjandi. Engu að síður benda margar rannsóknir til tengsla á milli þess að vera örvhentur og að vera með hina ýmsu kvilla sem síðan lækka lífslíkur. Erlent 30.4.2007 23:29
Ætla að lýsa verkfall ólöglegt Atvinnumálaráðherra Perú, Susana Pinilla sagði í dag að stjórnvöld þar í landi ætli síðar í vikunni að lýsa verkfall námuverkamanna þar í landi ólöglegt. Hún tók fram að aðeins fimm prósent námuverkamanna hefði tekið þátt í verkfallinu. Erlent 30.4.2007 22:55
Búist við óróleika í Nígeríu á morgun Borgaraleg samtök í Nígeríu óttast að yfirvöld eigi eftir að bregðast harkalega við fyrirhuguðum mótmælum á morgun. Samtökin, ásamt verkalýðsfélögum og stjórnarandstöðuflokkum hafa skipulagt mótmæli um alla Nígeríu á morgun vegna úrslita forsetakosninganna sem fram fóru þar í landi þann 21. apríl síðastliðinn. Erlent 30.4.2007 21:51
Sögulegt samkomulag um flugsamgöngur í höfn Bandaríkin og Evrópusambandið skrifuðu í dag undir tímamótasamning í flugmálum. Hann leyfir flugfélögum að fljúga frá hvaða flugvelli sem er í Evrópu til hvaða flugvallar sem er í Bandaríkjunum og öfugt. Engar takmarkanir verða á fjölda flugferða, hvers konar flugvélar verða notaðar eða hvaða leiðir verður flogið. Erlent 30.4.2007 21:26
Wolfowitz ætlar ekki að segja af sér Paul Wolfowitz, forseti Alþjóðabankans, hefur neitað að segja af sér. Forseti Bandaríkjanna, George W. Bush, lýsti í dag yfir stuðningi við hann. Erlent 30.4.2007 21:11
Stjórnarherinn heitir hefndum Stjórnarherinn í Súdan hét því í dag að berja niður bandalag uppreisnarhópa í Darfúr-héraði landsins þar sem þeir drápu herforingja sem hafði lent þyrlu sinni á svæðinu vegna vélarbilunar. „Herinn, sem fordæmir þessa grimmu og svikulu árás, heitir því að svara henni með enn þyngri árásum... og mun brjóta þessa uppreisnarmenn á bak aftur.“ Þetta hafði ríkisfréttastöð Súdan eftir herforingja í súdanska hernum í dag. Erlent 30.4.2007 20:34
Evrópusambandið og Bandaríkin funda Evrópusambandið og Bandaríkin voru á einu máli um að loftslagsbreytingar væru forgangsmál og George W. Bush, forseti Bandaríkjanna, sagði að hann þyrfti að sannfæra Vladimir Putin, forseta Rússlands, um nauðsyn eldflaugavarnarkerfis í Evrópu. Þetta kom fram á fundi í Hvíta húsinu í dag. Angela Merkel, kanslari Þýskalands, Jose Manuel Barroso, forseti framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins og George W. Bush sátu fundinn. Erlent 30.4.2007 20:03
Herskip mögulega við landið til lengri tíma Yfirmaður norska hersins segir afar mikilvægt að herinn geti stundað æfingar á Íslandi eins og nýtt varnarsamkomulag landanna geri ráð fyrir. Hann segir að til greina komi að hafa herskip við landið til lengri tíma. Formaður varnarmálanefndar norska Stórþingsins segir varnasamstarf við Ísland fela í sér mikla möguleika en gagnrýnir norsk stjórnvöld fyrir að hafi teygt fulllangt í samningum við Ísland. Erlent 30.4.2007 18:54
Sprengingar heyrast frá Græna svæðinu Allt að tólf háværar sprengingar heyrðust í miðborg Bagdad í kvöld og reykur sást stíga upp frá Græna svæðinu svokallaða. Talið er að reykurinn hafi komið frá svæði írakskra stjórnvalda. Enn hafa engar fregnir borist af mannfalli eða skemmdum. Erlent 30.4.2007 18:25
Olmert segir ekki af sér Ehud Olmert, forsætisráðherra Ísraels, sagði í sjónvarpsávarpi í kvöld að hann myndi ekki segja af sér. Hann hefur verið harðlega gagnrýndur fyrir 30 daga stríðið í Líbanon í fyrra. Olmert sagðist þó ætla að vinna að því að leiðrétta þau mistök sem gerð hefðu verið. Erlent 30.4.2007 18:12
Erdogan hvetur til samstöðu og stillingar Forsætisráðherra Tyrklands, Tayyip Erdogan, skoraði í dag á tyrknesku þjóðina til þess að sýna samstöðu. Ávarpið var tekið upp á laugardaginn og var sýnt í sjónvarpi í Tyrklandi í dag. Er því ætlað að slá á spennuna milli þeirra sem vilja aðskilja trú- og stjórnmál annars vegar og stuðningsmanna íslamista hins vegar. Mikill óróleiki hefur verið í landinu vegna þess að nýr forseti landsins mun líklega koma úr röðum íslamista. Erlent 30.4.2007 17:57
Neitaði að fjalla um forsjárdeilu lesbía Hæstiréttur Bandaríkjanna hefur neitað að taka upp mál tveggja kvenna sem eiga í forræðisdeilu út af barni sem önnur þeirra eignaðist meðan þær voru í lesbískri sambúð. Konurnar bjuggu í Virginíufylki, en fóru til Vermont árið 2000, þar sem þar eru leyfð borgaraleg hjónabönd samkynhneigðra. Árið 2002 var önnur þeirra gervifrjóvguð og eignaðist dóttur. Erlent 30.4.2007 16:42