Innlent

Full­trúi Ís­lands yfir­gaf ekki salinn þegar Netanja­hú steig í ræðu­stól

Eiður Þór Árnason skrifar
Fjöldi yfirgaf salinn og mátti meðal annars sjá sæti fulltrúa Palestínu standa auð.
Fjöldi yfirgaf salinn og mátti meðal annars sjá sæti fulltrúa Palestínu standa auð. AP

Fulltrúi Íslands sat áfram á fundi allsherjarþings Sameinuðu þjóðanna þegar Benjamín Netanjahú, forsætisráðherra Ísraels, tók til máls. Fulltrúar fjölda ríkja gengu úr salnum á fimmtudag í mótmælaskyni en stríðsrekstur Ísraels á Gasa hefur verið harðlega gagnrýndur. Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra var ekki í salnum þegar atvikið átti sér stað. 

Þetta segir Ingileif Friðriksdóttir, aðstoðarmaður utanríkisráðherra. Hún hafi þess í stað verið á viðburði til stuðnings Palestínu-flóttamannahjálpar Sameinuðu þjóðanna (UNRWA) sem hafi farið fram á sama tíma. 

Fjöldi yfirgaf salinn og mátti meðal annars sjá sæti fulltrúa Palestínu standa auð.Ap/Yuki Iwamura

Fulltrúi fastanefndar Íslands í mannréttindamálum hafi setið í sæti Íslands í salnum og verið þar áfram, ásamt fulltrúum annarra norrænna ríkja. Ráðherravika allsherjarþings Sameinuðu þjóðanna fer fram þessa dagana. 

Klippa: Tugir fulltrúa gengu út þegar Netanjahú tók til máls

Aðstoðarmaður ráðherra segir að hún hafi jafnframt tkeið þátt í ráðherraviðburði um tveggja ríkja lausnina sem er ætlað að koma á friði í samskiptum Ísraels og Palestínu.

Tugir fulltrúa ríkja á allsherjarþingi Sameinuðu þjóðanna gengu úr salnum þegar Benjamín Netanjahú forsætisráðherra Ísraels steig í ræðustól í New York í dag. Forsætisráðherrann lét sér fátt um finnast og kallaði fulltrúana siðferðislega hugleysingja.

Fréttin er í vinnslu.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×