Erlendar
78 79 80 81 82 83 84 85 86 … 264 ›
Blatter útilokar sjónvarpstækni við dómgæslu Sepp Blatter, forseti FIFA, hefur gefið það sterklega í skyn að ekki verði notast við sjónvarpstækni við dómgæslu í knattspyrnu á meðan hann sitji í forsetastóli hjá Alþjóða knattspyrnusambandinu. Hann vill þó taka marklínubúnað upp á stórmótum sem fyrst. Fótbolti 27.11.2006 16:13
Bayern íhugar að segja sig úr G-14 Karl-Heinz Rummenigge, stjórnarformaður Bayern Munchen, vandar félögum sínum í G-14 ekki kveðjurnar í viðtali við þýska blaðið Kicker í dag og ræðst þar sérstaklega að eiganda Chelsea, Roman Abramovich. Hann segir Bayern vera að íhuga að segja sig úr G-14. Fótbolti 27.11.2006 16:34
Tevez biðst afsökunar Argentínski framherjinn Carlos Tevez hjá West Ham hefur beðist afsökunar á gjörðum sínum á laugardaginn þegar hann stormaði beint til síns heima eftir að honum var skipt af velli í viðureign liðsins gegn Sheffield United - fyrsta deildarleik liðsins eftir að Eggert Magnússon tók við formennsku hjá félaginu. Enski boltinn 27.11.2006 16:06
Handboltamenn stofna G-14 Handknattleiksforystan í Evrópu hefur nú fetað í fótspor kollega sinna í knattspyrnunni og hefur stofnað sitt eigið G-14 samband. Það er samband 14 stærstu félagsliða Evrópu sem koma frá 8 löndum og verður samtökunum ætlað að bæta tengsl félagsliða við Alþjóða- og Evrópusambandið í handbolta. Handbolti 27.11.2006 15:46
Skaut vin sinn til bana vegna 1500 króna veðmáls Rúmlega fertugur karlmaður skaut vin sinn til bana í Suður-Karólínu í Bandaríkjunum um helgina eftir að þeir lentu í deilum vegna 1500 króna veðmáls þeirra á leik í háskóladeildinni í ruðningi. Sport 27.11.2006 14:45
Cannavaro fær Gullknöttinn Þýskir fjölmiðlar hafa nú gefið það út að ítalski varnarmaðurinn Fabio Cannavaro hjá Real Madrid verði sæmdur titlinum knattspyrnumaður Evrópu og fái Gullknöttinn frá franska blaðinu France Football. Úrslitin verða formlega kunngjörð í kvöld. Fótbolti 27.11.2006 15:35
Börn sitja í fangelsi fyrir að horfa á fótbolta í sjónvarpi Mikil mildi þykir að enginn skyldi slasast í gær þegar löggæslumenn stjórnvalda í Sómalíu réðust inn í kvikmyndahús þar sem 150 manns fylgdust með leik Manchester United og Chelsea. Íslamskir ráðamenn í landinu hafa fordæmt allt íþróttaáhorf í sjónvarpi og líta á menn sem horfa á fótbolta sem glæpamenn. Enski boltinn 27.11.2006 14:55
McLaren er að eyðileggja feril Hamilton David Coulthard, ökumaður Red Bull í Formúlu 1 og fyrrum ökumaður McLaren, segir að Ron Dennis og félagar hjá McLaren séu mjög líklega að eyðileggja feril hins efnilega Breta Lewis Hamilton með því að gera hann að aðalökumanni of snemma. Formúla 1 27.11.2006 14:24
Við vorum heppnir Fabio Capello viðurkenndi fúslega að hans menn í Real Madrid hefðu haft heilladísirnar á sínu bandi í gær þegar þeir lögðu Valencia 1-0 á Mestalla í Valencia. Þetta var fyrsta tap liðsins á heimavelli í 13 mánuði, en Fabio Capello er greinilega að setja stimpil sinn á lið Real Madrid sem nú situr í þriðja sæti deildarinnar á eftir Barcelona og Sevilla. Fótbolti 27.11.2006 14:18
Ferguson sagður vera með framherja í sigtinu Sænskir og ítalskir heimildarmenn halda því fram í dag að Sir Alex Ferguson hafi í huga að reyna að fá hinn 17 ára gamla sókarmann Goran Slavkovski í raðir Manchester United í janúar. Slavkovski þessi er yngsti leikmaðurinn í herbúðum Ítalíumeistara Inter Milan og hefur verið líkt við Zlatan Ibrahimovic vegna uppruna síns og hæfileika. Enski boltinn 27.11.2006 14:12
Calderon ekki búinn að gefast upp Ramon Calderon, forseti Real Madrid, er enn ekki búinn að gefa upp alla von á að lokka brasilíska miðjumanninn Kaka hjá AC Milan til Madrid. Real skrifaði undir sjónvarpssamning á dögunum sem færir félaginu yfir milljarð evra í tekjur og Calderon segir að í kjölfarið verði félaginu fært að bjóða í alla bestu knattspyrnumenn heimsins. Fótbolti 27.11.2006 14:00
Banni aflétt á Írana Alþjóða knattspyrnusambandið aflétti í dag keppnisbanninum sem það setti á landslið Íran á dögunum og því geta Íranar tekið þátt í Asíuleikunum eins og til stóð. Sepp Blatter forseti FIFA segir þó að þessi ráðstöfun sé skilyrðum háð og hefur sambandið fengið frest til 5. desember til að koma sínum málum á hreint. Bannið var sett á í kjölfar þess að stjórnvöld í landinu höfðu óeðlileg afskipti af knattspyrnusambandinu í landinu. Fótbolti 27.11.2006 13:53
Mido verður frá keppni í tvær vikur Framherjinn Mido hjá Tottenham verður frá keppni næstu tvær vikurnar eftir að í ljós koma að hann er með rifinn vöðva í nára. Þessi 23 ára framherji skrifaði undir samning við félagið í sumar en hefur skorað 17 mörk á þeim tíma sem hann hefur leikið með Tottenham - lengst af sem lánsmaður frá Roma á Ítalíu. Enski boltinn 27.11.2006 13:47
Fimmti sigur Denver í röð Carmelo Anthony skoraði 33 stig þegar Denver lagði LA Clippers á heimavelli 103-88 í NBA deildinni í nótt. Þetta var fimmti sigurleikur Denver í röð í deildinni og er Anthony stigahæsti leikmaður deildarinnar það sem af er með 31 stig að meðaltali. Corey Maggette var besti leikmaður Clippers í leiknum með 22 stig og 12 fráköst. Körfubolti 27.11.2006 13:31
Hunt óskar eftir fundi með Petr Cech Miðjumaðurinn Stephen Hunt hjá Reading segist ætla að fara þess á leit við Petr Cech, markvörð Chelsea, að hann hitti sig að máli maður á mann þegar liðin eigast við að nýju í kring um jólin. Cech hefur ekki spilað með Chelsea síðan hann höfuðkúpubrotnaði í viðskiptum sínum við Hunt í deildarleik í síðasta mánuði. Enski boltinn 26.11.2006 19:45
Stuttgart í þriðja sæti Stuttgart smellti sér í þriðja sæti þýsku úrvalsdeildarinnar í knattspyrnu í kvöld með 1-0 sigri á Gladbach. Það var framherjinn Cacau sem skoraði eina mark leiksins og hefur Gladbach aðeins náð í eitt stig í síðustu sjö leikjum sínum. Leverkusen lyfti sér af mesta fallsvæðinu með 3-1 sigri á Cottbus. Fótbolti 26.11.2006 21:51
Inter heldur toppsætinu Inter Milan hefur fjögurra stiga forskot á toppi ítölsku A-deildarinnar í knattspyrnu eftir mjög þýðingarmikinn 2-1 útisigur á Palermo á Sikiley í kvöld. Zlatan Ibrahimovic og Patrick Vieira skoruðu mörk Mílanóliðsins í kvöld. Palermo búið að missa annað sætið alfarið í hendur Roma sem lagði Sampdoria 4-2 í dag þar sem Francesco Totti skoraði tvö mörk og lagði upp eitt. Fótbolti 26.11.2006 21:38
Raul tryggði Real mikilvægan sigur Gulldrengurinn Raul tryggði liði sínu Real Madrid mikilvægan 1-0 útisigur á Valencia í spænsku úrvalsdeildinni í knattspyrnu í kvöld. Markið skoraði fyrirliðinn á 53. mínútu eftir sendingu frá Roberto Carlos og er Real komið í annað sæti deildarinnar fyrir vikið. Leik Atletico Bilbao er að ljúka í beinni útsendingu á Sýn en þar hafa gestirnir frá Sevilla 2-1 forystu og hirða annað sætið af Real með sigri. Fótbolti 26.11.2006 21:29
Menn verða að vinna fyrir sæti sínu Martin Jol, stjóri Tottenham, var að vonum ánægður með frammistöðu sinna manna í dag eftir að liðið lagði Wigan 3-1 á White Hart Lane. Jol hrósaði framherjanum Dimitar Berbatov fyrir frammistöðu sína og svaraði spurningum sem dunið hafa á honum vegna sífelldra mannabreytinga í framlínunni. Enski boltinn 26.11.2006 21:07
Við vorum betri aðilinn í dag Sir Alex Ferguson vildi meina að hans menn í Manchester United hefðu verið betri aðilinn í leiknum gegn Chelsea í dag. United hefur enn þriggja stiga forskot á toppi deildarinnar eftir leiki dagsins. Enski boltinn 26.11.2006 20:18
United missti af stóru tækifæri Jose Mourinho, knattspyrnustjóri Chelsea, vill meina að topplið Manchester United hafi í dag missta af stóru og gullnu tækifæri til að ná afgerandi forystu í deildinni. Liðin skildu jöfn 1-1 í stórleik helgarinnar í dag. Enski boltinn 26.11.2006 20:01
Stórmeistarajafntefli á Old Trafford Manchester United og Chelsea skildu jöfn í uppgjöri toppliðanna í ensku úrvalsdeildinni á Old Trafford í Manchester í dag. Louis Saha kom heimamönnum yfir eftir hálftíma leik með góðu langskoti, en Ricardo Carvalho jafnaði metin fyrir Chelsea í síðari hálfleik þegar Englandsmeistararnir náðu að jafna með miklu harðfylgi. Forskot United er því enn þrjú stig á toppi deildarinnar. Enski boltinn 26.11.2006 18:00
Berbatov stal senunni í sigri Tottenham Búlgarski sóknarmaðurinn Dimitar Berbatov átti stórleik í dag þegar Tottenham þokaðist loks upp í efri helming ensku úrvalsdeildarinnar með 3-1 sigri á Wigan á heimavelli. Berbatov skoraði eitt mark og lagði upp önnur tvö fyrir þá Jermaine Defoe og Aaron Lennon eftir að Henry Camara hafði komið gestunum yfir snemma leiks. Enski boltinn 26.11.2006 17:38
Ciudad Real fagnaði sigri Ciudad Real tryggði sér í dag sigur í EHF Ofurbikarnum í handbolta þegar liðið lagði Íslendingalið Gummersbach frá Þýskalandi í úrslitaleik keppninnar 36-31 eftir að hafa verið yfir í hálfleik 18-13. Ólafur Stefánsson skoraði 4 mörk fyrir Ciudad í leiknum og gamla brýnið og þjálfari liðsins Talant Duishebaev skorað sjálfur 5 mörk. Handbolti 26.11.2006 16:53
United hefur yfir í hálfleik Manchester United hefur yfir 1-0 gegn Chelsea í hálfleik í stórleik helgarinnar í ensku úrvalsdeildinni. Heimamenn í United hafa verið öllu sterkari aðilinn í fyrri hálfleik og það var franski framherjinn Louis Saha sem skoraði mark liðsins á 29. mínútu. Þetta var 99. deildarmark framherjans í úrvalsdeildinni. Enski boltinn 26.11.2006 16:50
Beckham orðaður við West Ham Þrálátur orðrómur er enn á kreiki um gjörvalla Evrópu þess efnis að David Beckham muni fara frá Real Madrid í janúar því hann sé ekki inni í framtíðaráformum Fabio Capello þjálfara. Fótbolti 26.11.2006 16:24
Tottenham yfir í hálfleik Tottenham hefur yfir 2-1 gegn Wigan í hálfleik í ensku úrvalsdeildinni í knattspyrnu. Camara kom Wigan yfir í leiknum, en frábær mörk Defoe og Berbatov komu heimamönnum yfir undir lok hálfleiksins eftir að Tottenham hafði verið miklu betri aðilinn allan hálfleikinn. Þá er stórleikur Manchester United og Chelsea að hefjast nú klukkan 16. Enski boltinn 26.11.2006 16:03
Eggert ætlar að ræða við Kenyon Eggert Magnússon sagði í samtali við BBC í dag að hann ætlaði að setjast niður með Peter Kenyon hjá Chelsea með það í huga að ræða hugsanleg kaup West Ham á vængmanninum Shaun Wright-Phillips. Alan Pardew, stjóri West Ham, er ósáttur við að Chelsea hafi lekið fyrirspurn félagsins í blöðin. Enski boltinn 26.11.2006 15:38
Newcastle lagði Portsmouth Newcastle vann mikilvægan sigur á Portsmouth í fyrsta leik dagsins í ensku úrvalsdeildinni í knattspyrnu. Það var Antoine Sibierski sem skoraði sigurmark liðsins í síðari hálfleik og var þetta fyrsti sigur liðsins í 9 leikjum. Enski boltinn 26.11.2006 15:21
Gummersbach - Ciudad Real í beinni á Eurosport Leikur Íslendingaliðanna Gummersbach og Ciudad Real í EHF Ofurbikarnum í handbolta er nú hafinn og er sýndur beint á Eurosport sjónvarpsstöðinni. Fyrr í dag lagði Lemgo rússneska liðið Medvedi 37-33 þar sem Ásgeir Örn Hallgrímsson skoraði 3 mörk. Logi Geirsson gat ekki leikið með Lemgo vegna meiðsla. Handbolti 26.11.2006 15:04